Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2006, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2006, Blaðsíða 38
I Útvarpað úti Siguröur G. Tómasson og Stefán Jón Hafstein á góðum degi sumarið 1990. 38 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 Síðast en ekki síst DV Rétta myndin Sameinaðir stöndum vér. DV-mynd Stefán Enginn vill kenna stripperóbikk Líkamsræktaraðferð sem kennd er við strippdans hefur átt miklum vinsældum að fagna í Bandaríkjun- um á undanförnum árum. Aðferðin gengur út á að iðkendur dansa eggj- andi dans í takt við tónlist - en fara þó ekki úr fötunum. Vinsældir að- ferðarinnar í Bandaríkjunum hafa leitt til þess að frændur okkar Danir eru einnig byrjaðir að strippa í föt- um sínum til grenningar eða styrk- ingar. Þessi aðferð er talin LuíXC virka mjög vel til hvoru- tveggja. Líkamsræktarjöfrar hér á landi virðast ekki deila áhuganum með Bandaríkjamönnum og frænduin vorum Dönum. í samtali sögðust þeir ekki vilja taka cj- aðferðina upp á sína arma, þar sem hún væri heldur ósmekkleg og myndi tæplega laða að sér við- "V. skiptavini. Eða væri í það mesta tískubóla - ■ sem myndi springa innan skamms. IEróbikk Þessi stúlka stundar venjulegan eróbikkdans. Stripp- eróbikk mun væntanlega ekki k°ma bingað til lands - í bráð. Teri Hatcher Ein fjöl- I margra bandariskra kvenna sem æfa stripp og 1 lofar æfinguna i hástert. Hvaðveist þú um Geirsdóttur 1. Hvað fékk hún mikið í starfslokagreiðslu hjá FL Group? 2. Hvað starfaði hún lengi sem forstjóri hjá fyrirtæk- inu? 3. Hvar er hún forstjóri nú? 4. Hvaða gráðu útskrifaðist hún með frá Bandarrkjun- um? 5. Hvað heitir faðir hennar sem hún tók við af sem for- stjóri? Svör neðst á síöunni Hvað segir mamma? „Húneralveg rosalega dug- leg. Næstum því einum of,“ segirJóhanna Lúðvigsdótt- ir, móðir Kötlu Margrétar Þorgeirsdóttur leikkonu.„Ég hefrosa gam- an afhenni I Stelpunum, horfi oft á þá þætti. Síðan er lika búið að vera rosa mikið að gera hjá henni undanfariö. Það er bæði gott og vontþvi ég sé því minna afhenni en ella. Hún er nefnilega oft að vinna um kvöld og helgar. Það er eins og maður segir; maður myndi ekki vilja vera giftur henni. “ Jóhanna Lúðvfgsdóttir er móðir Kötlu Margrétar Þorgeirsdóttur leikkonu. Katla sló í gegn á sfðasta ári í sjónvarpsþáttunum Stelpurnar á Stöð 2. Hún fer núna með stórt hlutverk íTúskildingsóperunni í Þjóðleikhúsinu. *■ ■■? w: Kaffi Nauthóll til sölu á 12 milljónir Myndi sóma sér vel á Austfjörðum „Húsið er alltof lítið. Það er fyrir- séð mikil framtíðaruppbygging á svæðinu í kringum Nauthólsvík og ég er að búa mig undir það,“ segir Bjöm Ingi Stefánsson, eigandi að Kaffi Nauthól við Nauthólsvík. Kaffl- húsið hefur undanfarin ár staðið í miklum blóma í miðri útivistarpara- dís Reykvíkinga og séð útivistarfólki fyrir heilsusamlegum mat og drykk. Björn Ingi hyggst nú selja húsið til brottflutnings úr Nauthólsvíkinni en ætlar að halda rekstrinum áfram í nýju og stærra húsi. „Háskólinn er væntanlegur þarna í nágrenninu og mér skilst að borgin ætli að byggja meira upp í kringum útivistarmál í Nauthólsvík- inni. Hingað til höfum við verið með eina klósettið á svæðinu,“ segir Björn Ingi sem sér mörg tækifæri í áframhaldandi veitingarekstri í Nauthólsvík. „Það verða einhverjar áherslu- breytingar með tilkomu nýja húss- ins en samt verður aðaláherslan áfram á heilsusamlegt fæði,“ segir Björn Ingi. Húsið sem nú er til sölu er upp- runalega sumarbústaður og um 150 fermetrar að stærð. Samkvæmt upp- Nauthólsvík Á góðum degi er Nauthólsvíkin þétt setin afsóldýrkendum. Þá er tilvalið að sækja sér hressingu á Kaffi Nauthól. lýsingum frá fasteignasölunnni Akkúrat, sem sér um sölu hússins, fylgja öll tæki til veitingareksturs með í kaupunum. „Verðið er áætlað í kringum 12 milljónir. Þá þarf bara að bæta við flutningskostnaði og þá er kaupandi kominn með fínasta veitingahús hvar sem er á landinu. Það væri til dæmis vel til fundið að flytja það á Austfirði miðað við alla þá uppbygg- ingu sem þar á sér stað,“ segir Bjarni Pétursson fasteignasali. Samþykkis frá borgaryfirvöldum vegna nýja hússins er að vænta á næstu dögum og ráðgert er að það rísi fyrir sumarið. svavar@dv.is Kaffi Nauthóll Húsiðer 150 fermetra sum- arbústaður og hefur hýst Kaffi Nauthól um margra ára skeið. Húsið er til sölu til brott- flutnings en reksturinn fylgir ekki með i kaupunum. Utvarpið úti hjá fólkinu „Ég man nokkuð vel eftir þessu," segir Stefán Jón Hafstein, forseti borgarstjórnar, um gömlu mynd- ina. Hún sýnir hann ásamt sjón- varpsmanninum Sigurði G. Tómassyni á góðviðrisdegi sumarið 1990. „Þarna erum við á dægur- máladeild Rásar 2 á góðum degi." Stefán segir að ástæðan fyrir því að myndin var tekin utandyra hafi verið sú að þeir hafi viljað vera úti hjá fólkinu. „Við sendum útvarps- menn um alla borg og stjómuðum útsendingu íyrir utan Útvarpshús- ið," segir Stefán sem vildi hleypa lofti í útvarpið á heitum sumardeg- inum. „Við vomm alltaf með ein- hver uppátæki á þessum tíma. Einu sinni hjólaði ég um borgina og út- varpaði um leið í beinni," segir Stefán. Hann vann hjá Ríkisútvarpinu í ríflega tíu ár og hleypti miklu lífi í það. „Þetta var skemmtilegur tími og góð reynsla." AÐDÁUNARVERT erhversu grjót- harður Egill Helgason er greinilega I launaviðræðum. 1. Hún fékk 130 milljónir króna. 2. Hún starfaði sem for- stjóri í fimm mánuði. 3. Hún er forstjóri hjá Promens. 4. Hún útskrifaðist með mastersgráðu í iðnaðarverkfræði og viðskiptafræði. 5. Hann heitir Geir A. Gunnlaugsson. Krossgátan Lárétt: 1 dimm, 4 lof, 7 slysi,8 listi, 10 fengur, 13 rölt, 13 þjást, 14stafur, 15 gerast, 16 dvöl, 18 ólærð,21 naut,22 krafs, 23 handleggs. Lóðrétt: 1 dolla, 2 söng- flokkur,3 greindastur,4 haft, 5 eyri, 6 eyði, 9 hræðsla, 11 meðvindur, 16vogur, 17 hlóðir, 19 kopar, 20 hrúga. Lausn á krossgátu Þ'SQ>j 07 'Jja 6 L '9is L15|JA 91 '!Qia| 11 '!QJA>| 6 'jQS 9 'ju s 'ep|addeuq y 'in;seje|>| £ 'jo>| z 'sop \ UíaJBOi 'sutje £Z 'joj>( zi 'ippn; u '>|!3| 81 'jsja 91 'a>js s 1 '>|!Jd y 1 'bqji £ l 'dej j 1 jge 01 '?J>|s 8'|ue|0/'soji) p '>j>iop l :»?J?n Veðrið i, 70 AiPf 20 40^ f 60 sEoO 4 Qt ■ ot 8 .. ** f 2Ö 3.£?> * *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.