Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2006, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Styrkir í boði
Atvinnuþróunarfélag
Vestfjarða hefur vakið at-
hygli á því að umsóknar-
ffestur til að sækja um þrjá
styrki rennur út á næstunni,
að því er fram kemur á
bb.is. Meðal annars er um
að ræða svokallaðan Frum-
kvöðlastuðning. í
því verkefni eru
veittir styrkir til
nýsköpunarverk-
efna á lands-
byggðinni. Þá eru
auglýstir styrkir til
úrbóta í umhverf-
ismálum fyrir árið
2006. Úthlutað
verður um 40 milljónum
króna til umhverfismála.
Skiptist upphæðin í þrjá
meginflokka. Tíu milljónum
verður úthlutað til minni
verkefna.
Fundað
um olíu
Umhverfisnefnd ísa-
fjarðarbæjar lagði til á
ftrndi sínum í gær að
myndaður yrði vinnuhópur
til að íjalla um framtíðar-
staðsetningu olíubirgða-
stöðvar á ísafirði. í tillögu
nefndarinnar er lagt til að
vinnuhópinn skípi hafnar-
stjóri, bæjartæknifræðingur
og formenn umhverfis-
nefndar og hafnarstjórnar.
Að sögn Kristjáns Kristjáns-
sonar, formanns nefndar-
innar, er mikið verk fyrir
höndum. „Það þarf að
kaupa sérfræðiþjónustu á
ýmsum sviðum, til dæmis
lögfræðiþjónustu, verk-
fræðiþjónustu og hagfræði-
þjónustu," segir Kristján og
kemur fram á vef bb.is.
Óhöpp í
Hafnarfirði
Óvenju mikið var um
umferðaróhöpp í umdæmi
Lögreglunnar í Hafnarfirði
síðdegis í fyrradag að því er
fram kemur á vef Víkur-
frétta. Ein aftanákeyrsla var
tilkynnt á Krýsuvíkurvegi.
Þá valt bíll við Álftanesveg
og lenti á hvolfi utan vegar.
Og síðan varð þriggja bíla
árekstur á Reykjanesbraut
til móts við Molduhraun.
Engin alvarleg meiðsl urðu
á fólki í þessum óhöppum.
Gísli Hjartarson ritaði kveðjubréf til ættingja sinna áður en hann tók líf sitt. Sigurð-
ur, bróðir Gísla, segir að bréfið sé einkabréf til ættingjanna en staðfestir að Gísli
bar ekki fyrir sig að DV sérstaklega væri orsakavaldur í dauða hans. Talið er að
Gísli hafi látist snemma morguns. Nákvæm dánarstund verður líklega ljós í dag.
Nefndi ekki DV sem ástæðu
„Blöskrar umræDan um Gísla"
DV í gær Tveir menn sem DV talaði við ígær sögðust hafa sloppið naumlega undan Gisla er
þeir voru aðeins tólfára.
„Það rétta er að fram kom í
kveðjubréfi Gísla heitins að sú um-
fjöllun sem hann átti von á vegna
rannsóknar lögreglunnar og um-
fjöllunar fjölmiðla hafi knúið hann
til að kveðja. Hafi einhver skiiið orð
mín. í fréttatímum sjónvarpsstöðv-
anna á annan veg er það ekki réttur
skilningur," segir Sigurður Hjartar-
son, bróðir Gísla Hjartarsonar á
ísafirði.
Gísli fannst látinn á heimili sínu
eftir að hafa fallið fyrir eigin hendi,
sama dag og frétt um kærur á hend-
ur honum birtust í DV.
Dauði Gísla ekki sök DV
Sigurður segir að kveðjubréf
Gísla heitins sé aðeins fyrir fjöl-
skyldu hans og hann geti ekki vitn-
að beint í það. Hann staðfestir eigi
að síður að þar hafi DV ekki verið
nefnt sérstaklega á nafn.
„Mér dettur ekki í hug halda því
fram að lát Gísla hafi verið beinlínis
sök DV eða á ábyrgð einhverra ann-
arra. Hann er farinn og það hefur
ekkert upp á sig að velta sér upp úr
því. En það var okkur öllum áfall
„Mér dettur ekki í hug
halda því fram að lát
Gísla hafí verið bein-
línis sök DV eða á
ábyrgð einhverra
annarra. Hann er
farinn og það hefur
ekkertupp á sig áð
velta sér upp úr því."
enda var fjölskyldunni ekki kunn-
ugt um að hann væri borinn ein-
hverjum sökum og við höfðum
aldrei heyrt á það minnst," segir
Sigurður.
Fjölskyldan vill frið
Sigurður er skipstjóri í Bolung-
arvík og hefur búið þar lengi. Hann
segist ekki vera vanur svona fjöl-
miðlafári og vill ekkert fremur en að
umræðunni um bróður hans linni.
„Það er nógu erfitt fyrir fjölskyld-
una að ganga í gegnum það áfall
sem dauði bróður míns hafði í för
með sér, svo ekki bætist við þessar
endalausu umræður í fjölmiðlum.
Við viljum aðeins fá frið til að kveðja
bróður okkar," segir Sigurður.
Lést snemma morguns
Enn hefur ekki verið skorið úr
um kiukkan hva.ð nákvæmlega Gísli
lést en að sögn bróður hans er talið
að það hafi verið mjög snemma um
morguninn. Dánarstund Gísla
verður hins vegar ekki ljós fyrr en
eftir krufningu. Skýrslu læknanna
um það er að öUum líkindum að
vænta í dag.
bergtjot@dv.is
NFS auglýsti eftir veðurfréttamönnum
Doktorar vilja í sjónvarpið
í dag verður gengið í að fara yfir
þær umsóknir sem bárust þegar
sjónvarpsstöðin NFS auglýsti eftir
veðurfréttamönnum. Ur fjölda
umsókna er að velja og sérstaka at-
hygli vekur að meðal umsækjenda
eru fjölmargir einstaklingar með
doktorsnafnbót.
„Það er gaman að svo margir
hafi áhuga," segir Sigurður Þ.
Ragnarsson, yfirveðurfræðingur
NFS. „Við setjum tiltölulega
ströng skilyrði og krefjumst há-
skólamenntunar í raungreinum
auk þekkingar á veðurfræði vegna
þess að þeir sem ráðnir verða eiga
Hvað liggur á?
einnig að vera með innslög sem
tengjast faginu. Þetta er orðin yfir-
gripsmikil þjónusta hjá okkur og
viðveran hjá okkur hefur verið
ansi mikil. Þess vegna þurftum við
að bæta við maqnskap," segir Sig-
urður.
Eftir að vaiið hefur verið úr um-
sóknabunkanum tekur við þjálfun-
arnámskeið og eftir það geta áhorf-
endur NFS átt von á að sjá nýjan
veðurfræðing á skjánum. Kannski
doktor.
Islensk veðrátta Krakkar að leikisnjó sem
spáð hafði verið af veðurfræðingum NFS.
„Mér liggur á að gera treiler fyrir teiknimyndafyrirtækið mitt,“segir Eyþór Guðjónsson
kvikmyndaleikariog athafnamaður.„Við erum að búa til teiknimynd í fullrilengd upp úr
Grettissögunnisvo loksins sé hægt að dreifa ævintýrum fornkappans út um allan heim."
'T>
Tívolílóð
til sölu
Feðgamir Guðmundur Sigurðs-
son og Sigurður Fannar Guð-
mundsson eiga í viðræðum um
sölu á svokallaðri Tívolílóð og ná-
lægum lóðum í Hveragerði þar sem
íyrirhugað er að reisa íbúðablokk
fyrir aidraða. Sigurður Fannar stað-
festi í samtaM við Sunnlenska að
viðræður stæðu yfir en vifdi að svo
stöddu ekki tjá sig frekar um máiið.
Umræddar lóðir keyptu þeir feðgar
fyrir um 65 miHjónir og hafa síðan
fengið þær samþykktar sem sam-
eiginlegan byggingarreit, skipulagt
á þeim umrætt fjölbýlishús og auk-
ið þannig verðmæti landsins.