Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Síða 15
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS2006 15
Þeir Hörður Sveinsson og Bjarni Ólafur Eiríksson eru strax byrjaðir að láta til sín taka með danska úr-
valsdeildarliðinu Silkeborg. Báðir voru þeir í byrjunarliðinu og skoraði Hörður tvö mörk og lagði upp
það þriðja í góðum útivallarsigri á Viborg, sem er í þriðja sæti deildarinnar.
„Þetta var alger áskabyrjun," sagði Hörður Sveinsson, Keflvíking-
urinn marksækni, við DV Sport í gær. Hann skoraði á sunnudag
tvö mörk með nýja liðinu sínu Silkeborg og lagði upp það þriðja í
3-2 útisigri á Viborg í dönsku úrvalsdeildinni. Bæði hann og Bjami
Ólafur Eiríksson léku um helgina sína fyrstu leiki með félaginu.
„Það er ekki hægt að biðja um
meira en þetta. Það er frábært að
byrja ferilinn hjá nýju félagi með
tveimur mörkum og góðum úti-
vallarsigri. Viborg hafði íyrir leik-
inn aðeins tapað einum heimaleik
og við aðeins unnið einn útileik á
tímabilinu,“ sagði Hörður í gær.
Hann kom Silkeborg yfir tvíveg-
is í Ieiknum en bæði mörkin komu
snemma í hvorum hálfleik. Hann
átti svo ríkan þátt í sigurmarkinu
sem kom í uppbótartíma en þá átti
hann laglegt þríhyrningsspil við
Dennis Flinta sem skoraði svo
markið þýðingarmikla. Hörður var
reyndar tvívegis nálægt því að full-
komna þrennuna.
Smá óheppni
„Það var smá óheppni. Ég átti
skalla rétt fram hjá markinu í eitt
skiptið og svo rétt missti ég af fyrir-
gjöf þar sem boltinn fór bara í gegn-
um vörnina. En engu að síður hefur
þetta verið frábært," sagði Hörður
sem var vinsæll hjá dönskum fjöl-
miðlamönnum eftir leikinn.
„Það er mikilvægt að standa sig
vel núna þar sem ég er enn á láns-
samningi frá Keflavík. Það er hins
vegar mjög gott tækfæri að fá að
spila hérna úti, bæði upp á fram-
haldið að gera og líka að bæta sig
sem knattspyrnumaður."
Á lánssamningi
Hörður verður á lánssamningi
út tímabilið en því lýkur í vor og
verður þá ákvörðun tekin um það
hvort Silkeborg ætli að kaupa hann
frá Keflavík. Félagið er nú þegar
búið að tryggja sér forkaupsrétt en
ef það kýs að nota hann ekki mun
Hörður koma heim í sumar og
spila með Keflavík í Landsbanka-
deildinni.
Hörður sagði í viðtali við
danska ríkisútvarpið að knatt-
spyrnan í Danmörku væri betri en
á íslandi. „Heima spilum við það
sem líkist helst „kick and run"
bolta en það hentar mér betur að
spila tekníska knattspyrnu eins og
hér er gert. Þar að auki græði ég á
því að spila með góðum leikmönn-
um,“ sagði hann. Sá sem tók við-
talið hélt vart vatni yfir frammi-
stöðu Harðar og sagði að hún hefði
verið framúrskarandi góð.
Kom ekki á óvart
Bjarni Ólafur Eirfksson var
einnig í byrjunarliðinu en hann var
í vetur keyptur til liðsins frá Val.
„Þjálfarinn hefur stillt upp þessu
liði í undanförnum æfingaleikjum
og því kom það ekki á óvart að við
byrjuðum báðir," sagði Bjarni um
það að byrja inn á í sínum fyrsta
leik. „Og ég er þokkalega ánægður
með eigin frammistöðu þótt mað-
ur geti alltaf gert betur. En ég er
enn að venjast aðstæðum hér."
Með sigrinum lyfti Silkeborg sér
upp í 8. sæti deildarinnar og er nú
sex stigum frá fallsæti. Viborg er
enn í þriðja sæti
eftir tapið og er nú
fjórtán stigum á
undan Silkeborg. í
öðru sæti er Bröndby,
sem vann í gær topp-
lið FC Köbenhavn, en
Silkeborg á næst tvo leiki
gegn Bröndby. Það hittist
þannig á að leikirnir eru í
lokaleik 2. umferðar annars
vegar og fyrsta leik 3. umferðar
hins vegar.
„Það er vonandi að við náum
stigum gegn þeim," sagði Bjarni
eirikurst@dv.is
Tvö mörk Hörður
Sveinsson skýtur hér að
marki Viborg í gær.
DV-mynd Torben Larsen
ELÍSABET KASKÓTRYGGIR
LÍKA GAMLA BÍLA MEÐ LOÐNA
TENINGA í SPEGLINUM.
ER ÞAÐ EKKI SÆTT?
„Heima spilum við það sem líkist heist „kick
and run" bolta en það hentar mér betur að
spila tekníska knattspyrnu eins og hér er gert.
Þar að auki græði ég á því að spila með góð-
um leikmönnum."
BETRI KJÖR Á BÍLATRYGGINGUM OG BÍLALÁNUM
elisabet.is
Vátryggjandi er Tryggingamiðstödin hf.
JÓNSSCN t LC'WACKS