Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Qupperneq 23
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 23
Lesendur
Ur bloggheimum
Vinna eins og meiniek
„En nóg um það.. nú
feraðskellaávett-
vangsnám og fer
maður þá að
kennal 2vikur ..O
MY LORD.. það
verður nú eitthvað
skrautlegt.. 0 Próftafl-
an hefur látið Ijós sitt
skfna og er ég búin íprófum þann 19.maí
og get þá byrjað að vinna strax á mánu-
deginum eftir það.. maður ætlar sér sko
að vinna eins og MEINlEK þetta sumarið..
þoli ekki að vera svona námsmaður og
eiga aldrei næga peninga á milli hand-
anna..“
Drifa Lind Harðardóttir
- blog.central.is/drifalind
Ómetanlegt
„Verzlunarskóla-
blaðspartý = 0 kr.
Afengi = 0 kr.
Töpuð myndavél
= -35.000 kr.Töp-
uð gucci gleraugu
= -32.000 kr.Nýr
kjóll fyrir partýið = -
5.900 kr.
Samtals = -72.900 kr.
Sorrý stelpur - engar fleiri myndir í
bráð...“
Hildur Sif Haraldsdóttir
- blog.central.is/pjallan
Skopmynd
„Fyrirsvona 1-2 mánuðum siðah teiknaði
ég skopmynd afMúhamed. Þá var um-
fjöllunin um þetta mál á hæsta stigi og
allt búið að vera vitlaust þarna úti. Ég
hugsaði sem svo að hverjum væri ekki
sama þó að einhver lítil mynd birtist á lít-
illi heimasiðu á litla Islandi. Ég meina það
ríkir málfrelsi og það þýðir að maður á að
notfæra sér rétt sinn til að gera virkilega
mikið grín að fólki sem tekur þvi-mjög
nærri sér. Ég teiknaði einhverja mynd,
skrifaði texta við hana og
í hreinskilni sagt var
hún mjög fyndin. Ég
setti hana á sið-
una, en tók hana
svoút afturein-
hverjum mínútum
seinna.Ég fórað
hugsa um möguleg-
ar afleiðingar sem
gætu fylgt þessu: forsíður á
blöðum: „Islenskur kynþáttahatari stofn-
ar isiensku þjóðinni i hættu,“ sprengju-
árásir, hryðjuverk, skammir frá mömmu
og pabba o.fl.“
Pálmar Ragnarsson
- palmar.leti.is
Birmingham Six sleppt úr fangelsi
Á þessum degi árið 1991 var sex
manna hópi sleppt úr fangelsi eftir
16 ára dvöl. Paddy Joe Hill, Hugh
Callaghan, Richard Mcllkenny,
Gerry Hunter, Billy Power og Johnny
Walker voru á sínum tíma dæmdir í
lífstíðarfangelsi fyrir morð á 21
manni á tveimur vertshúsum í
Birmingham á Englandi árið 1974.
Þeir héldu fram að játningar þeirra
hefðu verið illa fengnar, með bar-
smíðum og pyntingum. Allir voru
þeir írskir að uppruna, fæddir í
Belfast. Þeir höfðu búið í Birming-
ham í nokkur ár, en nokkrum
klukkutímum fyrir sprengingarnar
yfirgáfu þeir borgina og ætluðu til
Belfast. Þeir sögðu lögreglu ósatt um
raunverulegan tilgang ferðarinnar,
en sá var aðallega til að sækja jarðar-
för eins IRA-manns sem lést er hann
var að koma sprengju fyrir í
Coventry.
Þegar sexmenningamir
mættu í réttarsal höfðu þeir
auðsjáanlega orðið fyrir bar-
smíðum. Þeir kærðu fangels-
isverði og lögreglumenn fyr-
ir ofbeldið, en hinir ákærðu
Sexmenningarnir
frá Birmingham
Frjálsir úr fangelsi eft-
irsextán og hálftár.
voru sýknaðir. Hreyfing fór að kom-
ast á. mál þeirra árið 1985
þegar blaðamaðurinn
í dag
áriö 1911 varö ICristján
Jónsson ráöherra Is-
lands og sat sem slíkur
fram í júlí árið eftir.
Chris Mullen, sem síðar varð þing-
maður, kannaði lögreglurannsókn-
ina íyrir þátt á sjónvarpsstöðinni
Granada. 1988 var málið tekið upp,
en dóminum varð ekki haggað. Við
þriðju áfrýjun sexmenninganna árið
1991 var dóminum hnekkt og frelsi til
handa þeim varð að veruleika. Mál
mannanna er þekkt sem ein mestu
réttarmistök síðari ára. Þeim voru
greiddar skaðabætur sem hlupu á
hundruðum milljóna króna.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
'wmm
Meistarar Keflvíkingar voru deildarmeistar-
ar eftir spennandi móti körfunni.
Spennandi
leikir í körfunni
Axel hringdi: Að loknu venjulegu
tímabili í Iceland Express-deildinni
í körfubolta þykir mér óhætt að full-
yrða að leikirnir hafi sjaldan verið
skemmtilegri. f síðustu umferð gat í
raun allt gerst, spenna ríkti bæði á
Lesendur
toppi og á botni deildarinnar. Einn-
ig er gaman að sjá breiddina í deild-
inni. Grindavík vinnur bikarmeist-
aratitilinn, en nær ekki að vinna
deildina. Keflavík og Njarðvík eru
með mjög sterk lið og verður for-
vitnilegt að sjá þau í úrslitakeppn-
inni. Einnig eru þarna spútníldið
eins og Skallagrímur og Snæfell,
sem halda uppi heiðri Vesturlands
með miklum sóma. Frábært tíma-
bil!
Góð þjónusta íZöru eru góðir starfsmenn að mati lesenda DV.
Góð þjónusta í Zöru
Ungur maður í Reykjavík skrifar:
Um helgina gerði ég mér ferð í
Smáralind til þess að kaupa mér föt,
nánar tiltekið sparibuxur. Þarna er
gott úval af fatnaði og verðið finnst
mér vera með besta mótí. En það
sem stendur upp úr hjá fyrirtækinu
er þjónustan. Ég var afar ánægður
með starfsmennina, sérstaklega
einn þeirra sem veitti mér allar þær
upplýsingar sem ég þurfti. Hann var
líka óhræddur við að benda á aðrar
búðir, þegar ég spurði um flík sem
ekki fékkst hjá fyrirtækinu. Það þyk-
ir mér vera merld um góða þjónustu;
hann var greinilega að hugsa um
hag minn sem neytanda, ekki ein-
göngu að reyna að græða. Ég mæli
með því að fólk geri sér ferð þangað
og skoði málið.
Ofsóknir gegn reykingafólki
Kristinn Snæland skrifar:
Manni blöskrar er þingkonur í
Framsóknarflokknum og Vinstri
grænum þykjast bera umhyggju
fyrir starfsfólld á veitingahúsum og
Lesendur
krám. Þær minnast hins vegar
aldrei á kolsýringinn frá bílum sem
er eitraður, heldur tala bara um
reykingafólk og vilja úthýsa þeim.
Loka á alla frá veitingastöðum,
hvort sem um er að ræða þorra-
blót, árshátíðir eða ættarmót.
Hinn ágæti þingmaður, Sigurður
Kári, benti réttilega á að ekki væri
það rétt að allir væru í lífshættu
sem nálægt reykingarmönnum
kæmu. Ekki stóð á svari; hann var
úthrópaður sem talsmaður tóbaks-
framleiðenda. Þvílíkt bull og of-
stæki. Fylgið hrynur af framsókn
og Vinstri grænum. Unga fólkið er
að refsa ykkur. Þið ættuð að
skammast ykkar.
Kristinn er á móti
Frumvarpi um bann
við reykingum.
Helgi Reynisson
Feryfirnokkrar
góðar deitreglur
Verslunarmaðurinn segir
Stefnumótakiller
Það er ýmislegt sem ég geri
vel. En að velja bíómyndir fyrir
fyrsta stefnumót er ekki eitt af
því. Fyrsta deit #1: Við spiluðum
pool, farið út að borða, rúntuð-
um um bæinn, hlógum að fötluð-
um og atvinnulausum og topp-
uðum svo kvöldið með því að
fara í bíó. Ég fékk að velja mynd-
ina og valdi Ocean’s 12. Slæm
ákvörðun. Hversu aðlaðandi er
maður eiginlega á meðan maður
hrýtur sig í gegnum George Cloo-
ney-mynd?
Fyrsta deit #2: Keila, matur,
vandræðalegar þagnir, suggestive
augngotur og svo hlógum við að
öldruðum og samkynhneigðum.
Þetta stefnumót endaði líka í bíó
og aftur fékk ég að velja mynd-
ina. Það tókst álíka vel og á hinu
stefnumótinu. Ég valdi þýsku
stórmyndina Der Untergang.
Reyndar mjög góð mynd en alveg
skelfileg stefnumótsmynd. öll
rómantíkin sem hafði verið í loft-
inu var steindauð, löngu áður en
frú Göbbels drap öll börnin sín í
tíu mínútna löngu atriði sem var
svo sorglegt að ég fór næstum því
að grenja yfir því. Hversu ógeðs-
lega kúl hefði það verið!?
Fyrsta deit #3: Við fórum
einmitt f pool, fengum okkur að
borða, hlógum að innflytjendum
og langveikum börnum og höfð-
um rosa gaman. Gamanið kárn-
aði þegar ég valdi bíómyndina til
að fara á - The Descent. Ég hef
aldrei, ALDREI orðið jafn logandi
hræddur. Þegar deitið mitt tók í
höndina á mér, ekki til að vera
rómó heldur til að kreista á með-
an hann öskraði úr sér lungun af
hræðslu... Hápunktur stefnu-
mótasögu minnar.
Mjólkurfræðingur fer fram fyrir neytendur
„Tilviljun réði því að ég kom inn f
þetta starf Neytendasarhtakanna,”
segir Jóhannes Gunnarsson og rifjar
upp fyrsm skref sín í neytendamál-
um þjóðarinnar.
„Árið 1978 starfaði ég sem mjólk-
urfræðingur í Borgamesi og þáver-
andi formaður NS bað mig um að
auglýsa fyrir sig opinn fund um
neytendamál. Það endaði með því
að ég varð fundarstjóri kvöldsins og
kominn í hringiðu neytendabarátt-
unnar. Fundurinn var haldinn í
framhaldi af kvörtunum sjö reiðra
kvenna yfir útrunnum matvælum
sem seld voru í Borgamesi. Það þarf
vart að taka ff am að þær fengu lausn
sinna mála í gegnum NS. Sem betur
fer em verslanir famar að passa bet-
ur upp á þetta, enda núorðið bann-
að að selja slíkar vörur."
Það er ekki það eina sem hefur
breyst á þeim 22 árum sem Jóhann-
es hefur farið skeleggur fram fýrir
neytendur.
„Félagatala samtakanna hefur
aukist verulega og þau orðið miklu
sterkari fyrir vikið. Þau njóta líka
mun ríkari viðurkenningar en á
ámm áður. Svo hafa neytendur
breyst talsvert mikið í jákvæðari átt.
Þeir em gagnrýnni og sækja sinn
rétt frekar en áður. Ég er samt ekki í
nokkrum vafa um að neytendur
þurfa að fá frekari upplýsingar um
hver réttur þeirra er, þótt þeir séu
meðvitaðri en áður um að hægt sé
að sækja aðstoð innan NS. Samtök-
in þyrftu samt meira fjármagn til að
standa að almennri upplýsinga-
starfsemi sem ég kalla samfélags-
lega skyldu. Við emm með samning
við viðskiptaráðuneytið um að
sinna kvörtunar- og leiðbeiningar-
„Neytendur þurfa að
fá frekari upplýsingar
um hver réttur þeirra
þjónustu, sem þýðir að allir neyt-
endur geta fengið upplýsingar um
lagalegan rétt sinn og aðstoð til að
ná honum. Gallinn er hins vegar sá
að stjómvöld græða um 35-40 pró-
sent af því sem það kostar að fram-
kvæma hann. Við þurfúm þess
vegna að nota hluta af félagsgjöld-
um til að uppfylla samninginn. Ég
myndi vilja sjá ríkari þátttöku rfkis-
ins í þessari samfélagslegu þjónustu
og sinna okkar félagsmönnum með
mhannes er faeddur og uppalinn í Reykjavík, sonur hjónanna Gunnars Jóhannes-
sonar og Málfríðar Gísladóttur. Hann er menntaður mjólkurfræðingur fra Dalum
Mæjeriskole í Óðinsvéum í Danmörku og útskrifaðist þaðan 1971. Hannvann sem
slíkur í Borgarnesi, en hætti 1980. Hann tók þa upp storf hja Verðlagsstofnun, en
tók síðan við formannsstöðu hjá NS árið 1984.