Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2006 Fréttir DV Viðar Friðfinnsson Fór illa út I strlðsá- tökum staðanna Ásgeir Davíðsson Geiri á Goldfinger segist ekki tengjast þessu máli. Einar Ágúst Einars son Sakiaust fórnar- lamb átakanna. Jón Karl Stefánsson, ritstjóri vefritsins eggin.net „Að kenna Milosevic einum saman um Júgóslavíustríðin er fárániegt. Ástæður strlð- anna liggja í flóknum efna- hags- og samfélagsvanda- málum, ekki einum manni. Vanþekking blaðamanna á þessari flóknu deilu hefur valdið þvíað þeir afskræma söguna. Línan sem flestir virð- ast fyigja er hin úrelta tvípóla kaldastríðsfréttamennska þar sem leitað er að„góða gæjan- um"og hinum„vonda". Hann segir / Hún segir „Andlát Miloseciv verður að teljast mikil vonbrigði fyrir réttarhöld strfðsglæpadóm- stólsins fyrir fyrrverandi Júgóslavíu. Dómstóllinn þurfti svo sannarlega að fá niður- stöðu í þetta langdregna en mikilvæga mál, bæði til að sanna tilveru slna gagnvart fórnarlömbum strlðsátakanna og stuðla að réttlæti þeim til handa. “ Sparavatn með sjó Spara á ferskvatn á Sauðarkróki. Með það fyrir augum hafa Skagafjarðar- veitur óskað eftir því við bæjaryfirvöld að fá heimild til að bora sjótökuholur á hafnarsvæðinu. „Þetta verð- ur gert meðal annars til að draga úr ferskvatnsnotkun, einkum í rækjuvinnslunni, þar sem hægt er að nota sjó í stað vatns," segir í fundar- gerð samgöngunefndar Skagafjarðar sem samþykkti borun sjótökuholanna á þriðjudag. Milosevic og Alþjóða glœpa domstóllinn Viðar Friðfinnsson dyravörður á Bóhem handleggsbrotnaði í febrúar eftir hrika- lega líkamsárás tveggja manna. Viðar segir að Ásgeir Davíðsson, eða Geiri á Gold- finger, hafi fyrirskipað árásina vegna harðvítugra átaka á milli nektarstaðanna Bó- hem og Goldfinger um viðskiptavini. Nokkrir vopnaðir menn fóru á Bóhem á fimmtudag og hittu Hlyn Vigfússon, eiganda staðarins, og var lögreglan með sér- stakan viðbúnað vegna þessa. Tveir piltar ákærðir fyrir innbrot og þjófnað Rændu tveggja milljón króna sjónvarpi Sæmundur Heiðar Emils- son Játaði inn- brotið I gær. Sæmundur Heiðar Emilsson og Jón Þór Eymundsson hafa verið ákærðir fyrir að hafa brotist inn á heimili á Arnarhóli í Kjalaranesi í desember á þar síðasta ári. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavrkur í gær. Drengirnir eru einnig ákærðir fyrir að hafa brotist aftur inn á sama heimili stuttu síð- ar. Sæ- mundur játaði brotið á sig en Jón Þór Ey- mundsson mætti ekki til þing- festingar- innar í gær. Þeim er gefið að Bang & Olufsen Sjón- varpið eitt kostar tæpar tvær milljónir. sök að hafa rænt sjónvarpi af heimil- inu. Það var tæplega tveggja milljón króna virði, með þeim dýrari sem fást á íslandi. Sjónvarpið, sem er af gerðinni Bang & Olufsen, er að sögn kunnugra með þeim glæsilegri sem hægt er að fá nú til dags. Sjónvarpið er svo vel búið að ef það er tekið úr sambandi í fimmtán mínútur ræsir sig innbyggð þjófa- vörn sem gerir það að verkum að ekki er hægt að horfa á sjónvarpið nema maður sé með þar til gerðan kóða. Var sjónvarpið því gagnslaust fyrir þjófana. Eftir að hafa komist yfir svo glæsilegt sjónvarp ákváðu þeir kumpánar að gera aðra tilraun og brutust aftur inn og tóku þá nokkur verðmæti. Fyrirtaka verður í málinu síðar í mánuðinum og þá verður ákæran á hendur Jóni Þóri þingfest. vatur@dv.is Þórdís Ingadóttir, sérfræðingur I þjóðarrétti. Viðar Friðfinnsson fyrverandi dyravörður á Goldfinger og núver- andi dyravörður á Bóhem varð fyrir hrottalegri líkamsárás þegar tveir grímuklæddir menn réðust á hann við vinnu með hafnar- boltakylfu um miðjan febrúar síðasúiðinn. Viðar segir að árásin sé mnnin undan rifjum Ásgeirs Davíðssonar eða Geira á Goldfinger vegna deilna á milli staðanna. Viðar hefur kært Geira fyrir tilraun til manndráps og sakar hann um að hafa sent mennina. Lögregl- an var í viðbragsstöðu á fimmtudaginn var vegna málsins. „Ég var að kalla á leigubíl fyrir gest þegar árásin átti sér stað," segir Viðar en gesturinn sem hann kallaði á leigubíl fyrir var Einar Ágúst Ein- arsson, fyrrverandi júróvisjónfari og meðlimur í sveitaballahljómsveit- inni Skítamóral. Viðar segir að þeir hafi verið að bíða eftir leigubílnum þegar tveir grímuklæddir menn réðust af offorsi á Viðar vopnaðir hafnarboltakylfu með þeim afleiðingum að kylfan brotnaði í tvennt á hendi hans. Við árásina handleggsbrotnaði Viðar og þar að auki fingurbrotnaði Einar Ágúst. Hótuðu að myrða fjölskyld- una Viðar segir að uppruna deilunnar megi rekja til þess að kúnnar frá Goldfinger fóru að koma yfir á Bó- hem þegar hann byrjaði að vinna þar. Viðar segir að Geiri hafi ekki þolað að hann væri að vinna á Bó- hém vegna þessa og hafi margoft hótað eiganda staðarins, Hlyni Vig- fússyni og heimtað að hann ræki Viðar. „Þrír vopnaðir menn mættu á Bóhem á fímmtudaginn vegna deilunnar." „Menn komu á Bóhem og hótuðu Hlyni lífláti og að þeir myndu drepa fjölskyldu hans," segir Viðar en Hlynur staðfesti frásögn Viðars þeg- ar haft var samband við hann. Lögreglan með viðbúnað „Þrír vopnaðir menn mættu á Bóhem á fimmtudaginnvegna deil- unnar," segir Viðar. Hann fullyrðir að þetta hafi verið fundur þar sem krafist var þess af Hlyni að Viðar yrði látinn fjúka eða þeir myndu rústa staðnum. Lögreglan staðfestir að sérstakur viðbúnaður hafi verið hjá henni vegna þessa máls á fimmtu- daginn en ekki hafi reynt á hann. Kom ekki nálægt málinu „Ef það eru einhverjar deilur í gangi þá eru þær ekki á mínum veg- um," segir Geiri á Goldfinger um ásakanir Viðars og Hlyns. Geiri segir að þegar Viðar var dyravörður hjá honum hafi fylgt honum heljarinnar vandræði sem að lokum urðu til þess að hann sagði Viðari upp. „Ég gat ekki verið með þennan mann í vinnu," segir Geiri en reynsla hans af Viðari var ekki með besta móti. Bóhem Deilur sagðar vera að Bóhem rænir viðskiptavinum frá Goldfinger Hefur nóg annað að gera „Ég tengist ekki neinum deilum á 2. 990 iniðagjald www.i raffik.is/laibach www.nildi.is ,Laibach eru Euöirnir!” .Síf>urjón Kjartartiton, íiAM LÁIbÁCH n Á 5 Á EB.MÁRS ,Han>, Karnmstein, Nine Inch Nails og margir flciri væru ekki til cf Laibach hcfóu ekki rutt brautina.” Ótíarr Prvppé, HAM. Pr Spock Bóhem, ég hef nóg annað að gera" segir' Geiri og bætir við að Hlynur á Bóhem eigi hugsanlega í ein- hverjum vandræð- um en það komi hon- um alls ekki við. Hann segir að Viðar hafi vissulega reynt að stela kúnnum frá staðnum en ekki tekist sem skyldi og þá aðallega vegna þess að hann var aldrei vel liðinn á Gold- finger þegar hann vann þar. Kæra Viðars er í rannsókn en ljóst er að þessari deilu er hvergi nærri lokið. vatur@dv.is Lögreglan í viöhragðsstööu vep stripphúllustríös

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.