Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 13
DíV Fréttir FIMMTUDAGUR 16. MARS2006 13 Dýrtað vera sver Gestir sem sækja Ost- frieslandhótelið í Norden í norðurhluta Þýskaiands borga gjald eftir þyngd sinni. Gjaldið er um 40 krónur á hvert kíló. Það þýðir að maður sem vegur 60 kíló þarf að borga 2400 krónur fýrir nóttina, en sá sem vegur 100 kíló borgar 4 þúsund krónur. Eigandi þessa þriggja stjörnu hót- els, Jurgen Heckroth, hefur sínar ástæður fyrir gjald- tökunni. „Fólk sem er létt- ara lifir yfirleitt lengur og getur komið oftar." Þóttistfá hjartaáfall 61 árs gamall Austurrík- ismaður hefur verið ákærð- ur fyrir þjófnað. Hann þótt- ist fá hjartaáfall og var lagð- ur inn á spítala. Þegar þangað var komið rændi hann meðvitundalausa sjúklinga. Eftir að hafa leikið þann leik á yfir 100 spítölum í Austurríki var hans loksins fangaður. Hjúkrunarkona kom að honum þar sem hann var að stelast í vasa þeirra sem voru á stofu með honum. Kolb vísað úrstarfi Caroline Kolb, kennara í Bandaríkjunum, hefur ver- ið rekin úr starfi sínu fyrir að bíta nemanda sinn. 14 ára gamall nemandi henn- ar, Garrick Hudson, var með sælgæti uppi í sér og neitaði að hrækja því. Hon- um var vísað út úr stofunni, en að sögn móður hans beit Kolb hann þegar hann sneri aftur í stofuna til þess að sækja bækur sínar. Kolb neitar sök, en hún hefur verið kærð fyrir líkamsárás. Fjöldasjálfs- morðíJapan Fjórir aðilar, sem grunaðir eru um að hafa framið sjálfsmorð, fúnd- ust í gær. Þetta eru þriðju fjöldasjálfsmorðin í landinu á innan við viku. Líkin, sem eru af konu og þremur körlum, fundust í bfl 150 kfló- metrum vestur af Tokíó. Þau voru öll á fertugs- aldri. Bflnum var lagt á afskekktum fjallavegi. Níu manns eru taldir hafa framið sjálfsmorð í tveimur fjöldasjálfs- morðum sfðastliðna daga í Japan. Verið er að rannsaka hvort fólkið hafi kynnst á netinu. Einhverfi unglingurinn Jason McElwain sló í gegn í Bandaríkjunum þegar hann skoraði sex þriggja stiga körfur á fjórum mínútum í leik með framhaldsskólaliði sínu. Saga hans hefur snert hjörtu margra, að sögn George W. Bush Bandaríkjafor- seta sem hitti McElwain á þriðjudag. McElwain segist ekki hafa gert sér grein fyrir áhrifunum sem hann hafði fyrr en tölvupóstunum fór að rigna inn frá fjölskyldum sem eiga einhverf börn. Sex þriggja stiga körfur á fjórum mínútum er stórkostlegt afrek. Jason McElwain, eða J-Mac eins og félagar hans kalla hann, sló heldur betur í gegn þegar hann komst í stuð í sínum fyrsta leik fyrir skólaliðið sitt í framhaldsskólanum í Rochester í New York fylki. McElwain var búinn að vera í kringum liðið í þrjú ár, sækja vatn og hjálpa til við að stjórna æfingum. Þjálfarinn leyfði hon- um að vera með í einum leik og McElwain nýtti tækifærið til hins ýtrasta. Á þriðjudag fékk hann svo að hitta sjálfan George W. Bush, sem segist vera snortinn yfír afreki J-Mac. „Jason, má ég kalla þig J-Mac?" spurði George W. Bush Jason McElwain í gær og hélt áfram: „Þú mátt kalla mig George W." Bush sagðist ekki hafa ráðið við sig þegar hann sá fréttina af afreki J-Mac. „Ég sá þetta í sjónvarpinu og bara grét, eins og svo margir aðrir. Þetta er saga sem snertir hjörtu margra." Svo sneri hann sér að McElwain og sagði: „Þú veist örugg- lega ekki hversu mikil áhrif þú hef- ur haft á fólk í Bandaríkjunum og í raun um allan heim." Allt er nú breytt Síðan Jason McElwain átti stór- leikinn er allt breytt, að sögn móður hans Debbie. „Síminn hefur verið rauðglóandi síðan, við getum varla sofið. Við þurfum að taka símann úr sambandi á nóttunni," segir „Ég sá þetta í sjón- varpinu og baragrét, eins og svo margir aðrir. Þetta ersaga sem snertir hjörtu margra." móðirinn stolta. Þau hafa fengið 35 tilboð um að gera kvikmynd eftir sögu Jasons og fréttamenn hafa verið duglegir í að heyra í þeim. Ein af breytingum í lífi Jasons er að hafa fengið að hitta sjálfan for- seta Bandaríkjanna. Debbie fór yfir öllu helstu atriðin, áður en þau hittu forsetann, það er að segja hvernig ætti að hegða sér í kringum valdamesta mann í heimi. A toppi veraldar Eftirleikinn var McEiwain hyiitur, enda varð allt vit- laust I salnum. Gerði sér ekki grein fyrir áhrifunum Jason segist ekki hafa gert sér grein fyrir þeim áhrifum sem hann hafði á fólk. „Það var ekki fyrr en tölvupóstunum fór að rigna inn frá fjölskyldum sem eiga einhverf börn sem ég áttaði mig á þessu," segir Jason sem segir einhverfuna ekki hafa nein áhrif á sig. Jason fylgist nú mikið með há- skólakörfuboltanum, NCAA deild- inni. Úrslitakeppninn fer að hefjast og var Jason fljótur að setjast í spá- dómsstól þegar hann var spurður um hana. Móðir hans var þó öllu rólegri. „Eins og sjá má, þá er körfubolti hans ær og kýr." kjartan@dv.is Tvífari David Beckham er til sölu Þykist vera Beckham Tvífari Davids Beckham býður enskum konum blíðu sína fyrir rúm- lega 60 þúsund krónur. Maðurinn, sem gengur undir nafninu Dave Bradley, segist eiga enska lands- liðsbúninginn og að honum sé sama þó að konur kalli sig David Beckham þegar hann sængar hjá þeim. Blaðamaður The Sun kom upp um kappann í gær. Hún hafði samband við manninn og keypti stefnumót hjá honum fyrir um 25 þúsund krón- ur. „Ef þú bætir við um 40 þúsund getum við eytt nóttinni saman og þú mátt gera það sem þú vilt við mig. Venjulega byrja ég á því að nudda konur og svo kela ég við þær. Eftir það sjáum við bara hvað gerist." Hann segir þó að margir sam- kynhneigðir menn hafi samband. „Margir samkynhneigðir hafa haft samband við mig. Beckham er goð í augum samkyn- hneigðra. Þeir myndu þurfa að borga 20 þúsund krónur á klukkutímann. Ég held að þeir vilji mig fremur, því ég er gagnkynlmeigður." Þykist vera Beckham Dave Bradley þykist vera David Beckham og sefur hjá konum. NYTT-NYTT-NÝTT Hárspangir frá kr. 290 Síðar hálsfestar frá kr.990 Síðir bolir kr. 1990 Nýja vorlínan frá Pilgrim komin Ný breið belti og margt fleira SKARTHUSIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.