Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 32
T1 / íll)j í 0 í Við tökum Wðl
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
J^mfnleyndar er gætt. QQ Q Sj QQ Q
SKAFTAHLÍÐ24,10SKEYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMIS50S000 5 690710 TllTl7
v,'*
ÞjóQverjarnir koma
Gullæði í Súöavík
Sjóstangaveiði
Búist er við tæp-
iega þúsund Þjóð-
verjum í veiðina.
fbúar í Súðavík og á Tálknafirði
undirbúa nú komu nær eitt þúsund
Þjóðverja á staðina í vor og sumar. -
Um er að ræða sjóstangaveiðimenn
á vegum þýska fyrirtækisins Angle-
reisen sem sérhæfir sig í slíkum ferð-
um utan Þýskalands. Sökum þess
munu 10 Súðvíkingar vera sestir á
skólabekk og eru á grunnnámskeiði í
þýsku á vegum Fræðslumiðstöðvar
Vestfjarða.
Það er nýstofnað fyrirtæki, Fjord
Fishing, sem stendur að sjóstanga-
veiðinni. Ómar Már Jónsson, sveitar-
stjóri á Súðavík, er stjómarmaður þar
en að sögn hans standa flest sveitar-
félög á Vestijörðum að fyrirtækinu.
„Við hófúm undirbúning að þessu
dæmi á síðasta ári en ætlunin er að
auka fjölbreytni í ferðamannaþjón-
ustu á svæðinu," segir Ómar Már.
„Það komu hingað aðilar frá Angle-
reisen auk fjölmiðlafólks ffá
sjóstangaveiðitímaritum í Þýskalandi
og Anglelreisen hafa aldrei kynnst
eins góðum viðbrögðum hjá með-
limum sínum við nýjum stað. Við
teljum okkur þvf vera með góða
söluvöru í höndunum."
Fram kemur í máli Ómars að
samið hafi verið við Bátasmiðju Guð-
mundar og Bátaland um sérsmíði á
m'u Sómabátum, sjö metra löngum,
fyrir veiðina auk þess að nota eigi
tvær trillur, eða samtals ellefú báta.
„Þar sem mikið magn af fiski veiðist
yfirleitt í þessum ferðum verður að
leigja kvóta fyrir bátana en selja svo
aflann í landi á móti,“ segir Ómar
Már. „Það má því segja að þarna sé
komið alveg nýtt útgerðarmynstur
þar sem fólk borgar útgerðinni fyrir
að fá að veiða.“
Útgerð þessi hefst í byrjun apríl á
Tálknafirði og mánuði seinna í Súða-
vík. Ómar segir að þýska sjóstanga-
veiðifólkið sé einkum
á höttunum eftir
■ stórum fiskum eins
og steinbít eða lúðu
auk þess að reyna
að krækja í stóran
þorsk og ýsu.
Ómar Már Jónsson
„Það má því segja að
þarna sé komið alveg nýtt
útgerðarmynstur þar sem
fólk borgar útgerðinni fyr-
ir aðfá aöveiða."
Klondike á
kajanum?
• Menntaskól-
inn við Hamra-
hlíð frumsýnir á
morgun verkið
íslenski fjöl-
skyldusirkus-
inn. Verkið þyk-
ir einkar athygl-
isvert en nem-
endur sömdu allt sjálfir. Það sem
vekur einna mesta athygli í þessum
magnaða sirkus er sú staðreynd að
Helgi Rafn Ingvarsson sér um að
semja og útsetja alla tónlist í verk-
inu. Skiptir litlu hvort þar er um
sirkusstef eða kórsöng að ræða.
Hann rúllar þessu öllu upp og er
snöggur að. Helgi Rafn sýnir þarna
áður ókunna takta og sannar um
leið að það er líf eftir Idol-stjörnu-
leit - ef sannir hæfileikar eru fyrir
hendi...
• Jóhannes í Bónus átti góðan dag í
gær: Hrundið var ákærum í mála-
ferlum gegn fyrirtækjum hans
og fjölskyldunnar. Yfir sjö
þúsund hlustendur Bylgj-
unnar kusu Bónus vin-
sælasta fyrirtæki lands-
ins og tók Jóhannes á
móti þeirri viðurkenn-
ingu klukkustund eftir
að sýknudómurinn féll
á þessum degi neytenda.
Auk Bylgjunnar stóðu Neyt-
endasamtökin að vali vin-
sælasta fyrirtæki landsins.
Þar lét hann þess getið að
þriðji hápunktur dagsins
væri sá að mamma hans
ætti afmæli í dag en
Kristín Fanney móðir
hans fæddist 15. mars
1918...
0 0
SÉ*
vcrur, úc.
sanmjarnt
0 S
, . ,M hí
mr að
flœounum
vísum!
Dalvegi 4 • Sími 564 4700
Opið: Mánud.-föstud. 06:00 -18:00, laug. 06:00 - 17:00, sunn. 07:00-17:00
Hamraborg 14 • Sími 554 4200
Opið: Mánud-laugard. 08:00 - 18:00, laug. 08:00-16:00, sunn. 09:00-16:00