Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 31
DV Síðast en ekki sist FIMMTUDAGUR 16. MARS 2006 31 Spurning dagsin Barcelona eða Júventus Óli Júlíusson Hverjir vinna meistaradeildina? Barcelona eða Júventus? 16. liða úrslit í meistardeildinni fór fram í síðustu viku.Tvö af vinsælustu liðum á (slandi, Liverpool og Chelsea.féllu bæði úr keppni gegn Benfica og Barcelona. Aðstoðarmenn forsætisráðherra Ögmundur Jónasson skrifar á ogmundur.is „Að gefnu tilefni velti ég því fyrir mér hve marga aðstoðarmenn Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, hafi ráðið til starfa i forsætis- ráðuneytinu. Björn Ingi Hrafnsson er titlaður aðstoðarmaður ráðherra, ef ég man rétt. Hann er kraftmikill pólitískur áhugamaður og betri en eng- inn fyrir sinn mann. Það má í sjálfu sér segja líka um Steingrím Ólafs- son, upplýsinga fulltrúa forsæt' isráðuneytis- ins. Allt gott um það, nema hvað ég hefði haldið að upplýsinga- fulltrúi for- sætisráðuneyt- isins héldi örlít ið aftur af fram- sóknarmennskunni í sjálfum sér þeg- ar hann notar embættistitil sinn í opinber- um blaðaskrif- um. Það gerir Steingrímur Ólafsson hins vegar ekki. í dag (mánud.) skrifar hann grein í Blaðið, sem ber yfirskriftina Tómu tunnur stjórnarandstöð- unnar. Þar eru pólitískum and- stæðingum forsætisráðherra og félögum hans í Framsóknar- flokknum ekki vandaðar kveðj- urnar. Þeim eru gefnar einkunn- ir og virðist frammistaða manna metin með öfugum formerkjum. Við Össur Skarp- héðinsson, megum vel una við þessa framsóknar-ein- kunnagjöf en fyrir- sögnin virðist öðrum fremur hafa verið ætluð okkur. Steingrimur Ólafsson telur mikilvægt að koma pólitískum skoðunum sínum á framfæri. Það er hið besta mál og á hann að hafa til þess fullt frelsi. Að titla sig upplýs- ingafulltrúa forsæt- isráðuneytisins þeg- ar hann heldur inn á síður dagblaðanna í þessum erinda- gjörðum orkar hins vegar tví- mælis. Eða hvers vegna skyldu embætt- ismenn forsæt- isráðuneytisins blanda sér í pólitísk deilu- mál í nafni ráðu- neytisins? Það hljóta menn að eiga að gera í eigin nafni. Annars væri fróðlegt að fá að vita hvert er verk- svið upplýsingafull- trúa forsætisráðuneyt- isins og á hvern hátt hann er talinn gagnast skatt- I a. anum sem greiðir hon um laun. Ætli verkefnið hljóti ekki að vera að upplýsa um málefni ráðu neytisins - eða hvað? “ Sigurjón Kjartansson vill að blaðamenn fylgist með þeim sem Styrmir Gunnarsson fundar með reglulega. Sannleikurinn á bak við þögnina X hefilr Styrmir \ / ÆSSs stSifói1* hv^ð er Þessu frSíl Sltur a allskonar sem hann veit að . .——frettir inn í r samfélag- / Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Moggans, er forvitnilegur fýr. Ég las einu sinni viðtal við hann, stórmerkilegt og fágætt viðtal, sennilega það eina sem hann hefur veitt á ævinni, því hann hefur ekki viljað baða sig í sviðsljósinu, enda maður skuggans, maður þagnarinnar. Mér fannst ansi merkilegt að lesa í þessu viðtali hvemig hann lýsti sínum daglegu störfum. Jú, þau felast að hans sögn í því að halda sambandi við allskonar fólk í samfélaginu. Meðan hann lætur aðra um að vera á gólfinu og vasast í hinu dag- lega amstri, þá er hann að hitta allskonar fólk í samfélag inu, ungt sem gamalt. Ég var lengi að brjóta heilann um hvaða fólk þetta væri sem Styrmir væri að hitta og það var ekki fyrr en nokkrum mánuðum eftir að þetta viðtal birtist sem leikar fóru að skýrast. Nú höfum við fengið nokkra mynd af því í gegnum fjölmiðla, hvaða fólk Styrmir er að hitta. Styrmir stundar svipaða iðju og ein helsta hetja kvikmyndasögunnar, Don Cor- leone. Hann er milligöngu- maður um ýmis þjóðþrifamál eins og Baugsmálið og Guð veit hver önnur. Hann hittir áhrifafólk reglulega og býð- ur ráðherrum að eiga með sér vikulega fundi. Þetta kemur fram á bloggsíðu Val- gerðar Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra, sem tekur það ff am að hún hafi ekki þegið þetta boð, en þá veltir maður því fýrir sér hvort aðrir ráðherrar sitji slíka fundi með ritstjóranum. Það virðist liggja í hlutarins eðli. I bókinni Forsætisráðherrann, viðtalsbók Dags B. Eggertssonar við Steingrím Hermannsson, kemur fram að ritstjórar Moggans hafi átt þátt í myndun ríkisstjóma. Það skýrir ýmislegL Mogginn var á sínum tíma stærsta blaðið og eðlilegt að ritstjórar þess hefðu eitthvað með það að gera hverjir stjómuðu landinu. Þannig hefur Styrmir upplifað sig sem valdamikinn mann sem veit hvað er þessu samfélagi fyrir bestu. Hann situr á allskonar fréttum sem hann veit að almúganum er ekki hollt að lesa. Hann skammtar fréttir inn í samfé- lagið. Mogginn er traustvekjandi og vandaður fjöl- miðill þar sem vandvirknin felst í að skrifa sem minnst og opinbera sparlega. Það hefur því greinilega verið gott að hafa Styrmi sín megin. Þannig gekk það í áratugi og almenningur hafði ekki græna glóm. En að undanförnu hefur hin- um grimmu keppinautum Moggans telqst að upplýsa okkur um eitt og annað og virðist eins og sé hægt og rólega að fjara undan þessu ofurvaldi ritstjórans. Hann hefur verið gripinn með buxumar á hælunum og plott hans em komin fram í dagsljósið. Nú t vitum við loksins úr hverju Mogginn er | búinn til. Innihaldið skiptir öllu máli. Ja.lla.ri Sigurjón Kjartansson fRtTtftSW'®)’ SEFUR ALDREI Viðtökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrirbesta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrarnafnieyndar er gætt. Síminn er

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.