Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Blaðsíða 14
76 FIMMTUDAGUR 16. MARS2006
Sport DV
13 Evrópu-
þjóðir fyrir
neðan Island
Nýr styrkleikalisti Al-
þjóðaknattspymu-
sambandsins, FIFA,
var gefinn út í gær. ís-
land féll um eitt sæti á
listanum frá síðasta
mánuði, eftir leikinn gegn
Trinídad & Tóbagó sem ís-
land tapaði, 2-0. ísland er
nú í 97. sæti og eru alls
þrettán Evrópuþjóðir neðar
á listanum en 52 þjóðir taka
þátt í næstu Evrópukeppni
en undankeppni hefst
næsta haust. Það þýðir að
ísland er samkvæmt listan-
um 39. sterkasta þjóð Evr-
ópu en alls komast 16 lið í
úrslitakeppni mótsins sem
fer fram sumarið 2008.
Andrés hættur
hjá ÍA
Knattspymumaðurinn
Andrés Vilhjálmsson hefur
fengið sig lausan
undan þeim þriggja
ára samningi sem
hann skrifaði undir í
haust við knatt-
spyrnudeild ÍA á
Akranesi. Andrés, sem er 23
ára gamall, er í krefjandi
námi og bað um að hann
yrði leystur undan samn-
ingnum á þeim forsendum,
eftir því sem kemur fram í
frétt á heimasíðu félagsins.
Hann á m'u leiki að baki í
efstu deild með ÍA en hann
gekk til liðs við félagið árið
2003 frá KA á Akureyri.
19.15 Keflavík-Fjölnir í
fyrsta leik liðanna í
íjórðungsúrslitum
Iceland Express-deild
karla.
20.00 KR-Snæfell í
ST=m fyrsta leik liðanna í
fjórðungsúrslitum
Iceland Express- deild
karla. Leikurinn er í
beinni á Sýn.
ppr^i 20.00 Stuðnings-
mannaþátturinn Liðið
mitt á Enska boltanum.
21.40 HM 2006 í Þýska-
..... landi. Fjallað um lið
Spánar og Kostaríku.
23.10 Þáttur um banda-
Sl=fn rísku mótaröðina í
golfi.
Guðfinnur Arnar Kristmannsson, handboltakappi frá Vestmannaeyjum, hefur síö-
astliðin fimm ár dvalið í Svíþjóð þar sem hann hefur spilað handbolta ásamt því
að vinna fulla vinnu. Á mánudaginn vann lið hans, IK Heim, topplið Sávehof þar
sem Guðfinnur skoraði fimm mörk. Hann segir í samtali við DV sport að hann
ætli að hætta í vor og flytja heim i sumar. Hann telur að landslið Sviþjóðar van-
meti ekki íslendinga en liðin mætast í vor í umspili um laust sæti á HM í Þýska-
landi.
| A HM í Frakklandi
Guðfínnur lék með Is-
lenska landsliðinu á HM
í Frakklandi árið 2001.
IK Heim hefur aðsetur í Gautaborg þar sem Guðflnnur og kærasta
hans búa en hann hefur spilað með liðinu undanfarin tvö ár en
fimm ár em liðin síðan þau fluttu til Svíþjóðar. Hann kallar Heim
„hálfatvmnumannalið'* 1 en Guðfinnur vinnur fullan vinnudag
ásamt því að leika með liðinu, líkt og tíðkast hér heima.
„Sigurinn gegn Savehof var mjög
óvæntur en afar kærkominn. Nú eru
framundan leikir við lið úr 1. deild-
inni um sæti í úrvalsdeildinni að ári
og gott að fara með þennan sigur
sem veganesti í þá leiki."
Ein umferð er eftir í sænsku úr-
valsdeildinni en Heim mætti í gær
liði Hammarby sem er í öðru sæti
úrvalsdeildarinnar. Fjórtán lið spila í
deildinni, tvö neðstu falla og liðin í
11. og 12. sæti mæta þeim liðum
sem lentu í 3. og 4. sæti í 1. deildinni
um hvort liðið spilar í úrvalsdeild-
inni að ári. Heim á ekki möguleika
að komast ofar en í 12. sæti.
„Ég ætíaði reyndar ekkert að spila
í vetur en eftir að liðið vann sér sæti
í úrvalsdeildinni í fyrra lentu þeir í
vandræðum með leikmenn og
ákvað ég þá að taka skóna aftur
fram," sagði Guðfinnur og segist
ekki sjá eftir þeirri ákvörðun að hafa
flutt til Svíþjóðar. „Þetta hefur verið
dýrmæt og góð lífsreynsla. Mig lang-
aði bara að breyta til. En við ætíum
þó að koma heim í sumar og flytjum
þá til Reykjavíkur."
Hættir í vor
Aðspurður segir hann það þó al-
gerlega eftir að koma í ljós hvort
hann spili með liði á höfuðborgar-
svæðinu á næsta tímabili en Guð-
finnur hefur aðallega leikið í stöðu
hægri skyttu. ,Ætli ég leggi samt ekki
skóna á hilluna í vor."
Þó svo að Svíar hafa átt afar sterkt
landslið í handbolta í gegnum árin
er áhugi á deildinni ekki ýkja mikill.
„Við fáum um 400-500 áhorfendur á
okkar leiki og er það með því
minnsta sem gerist í deildinni.
Stærstu klúbbarnir eru að fá um
1600-1700 áhorfendur að meðaltali.
Handboltinn skipar heldur ekki
stóran sess í íþróttaumfjöllun í sjón-
varpi en það er þó að breytast og
eykst áhuginn með því. En hér í
Gautaborg er svo íshokkílið sem fær
alltaf 12 þúsund áhorfendur á sína
heimaleiki og það er líka erfitt að
keppa við það," segir Guðfinnur í
léttum dúr.
Breiddin meiri í Svíþjóð
En hann er þó viss um að bestu
liðin á íslandi myndu spjara sig vel í
sænsku úrvalsdeildinni. „Sænska
deildin hefur vinninginn þegar kem-
ur að breiddinni og tel ég líka líklegt
að nokkur lið úr 1. deildinni gætu
gert ágæta hluti í úrvalsdeildinni
heima."
En hann segir að landsliðin séu
frekar svipuð að styrkleika en liðin
mætast í umspili um laust sæti á HM
sem fer fram í Þýskalandi snemma á
næsta ári. Um er að ræða afar þýð-
ingarmikla leiki en Svíar hafa átt
brattann að sækja og misstu til
mynda af EM í Sviss eftir að hafa
tapað fyrir Póllandi síðastliðið
vor í samskonar leikjum og
gegn Islandi í vor.
Sterkari heimavöllur
„Þetta var kannski ekki
draumamótherji okkar ís-
lendinga en ég tel möguleika
liðanna frekar jafna. Ég
nokkra leiki með íslenska lið-
inu í Sviss og finnst það vera
ungt og sprækt. Það spilar einnig
stórt hlutverk fyrir bæði lið að
lykilmenn liðanna missi ekki
leikjunum vegna meiðsla. En
það er klárt að Svíarnir
bera virðingu fyrir
okkur. Þeir vita að við eigum þá Ólaf
Stefánsson og Guðjón Val Sigurðs-
son og eru þeir logandi hræddir við
þá og fleiri leikmenn liðsins. Ég er
einnig með því að Alfreð Gíslason sé
tekinn við liðinu, fyrst að þjálfara-
málin fóru eins og þau fóru."
Fyrri leikur liðanna verður í Glo-
ben-höllinni stóru í Stokkhólmi
fyrstu helgina í júní en þrátt fyrir að
höllin rúmi 12 þúsund áhorfendur
segir Guðfinnur að
heimavöllur ís-
lenska liðsins sé
sterkari.
„Áhorfendur
eru langt frá
vellinum í
Globen og
myndast
engin ofur-
stemmning á
vellinum eins
og gæti vel
gerst heima."
eirikurst@dv.is
Guðfinnur Arnar Krist-
mannsson Hefurgertþað
gott I sænsku úrvalsdeildinni
I handbolta.
Aganefnd KKÍ hefur dæmt í máli Hall-
dórs Rúnars Karlssonar:
ELÍSABET ER BARA í RAFRÆNUM VIÐSKIPTUM. 1
ÞAÐ VÆRI SVO SEINLEGT FYRIR SKJALDBÖKU
AÐ BERA ÚT GREIÐSLUSEÐLA.
BETRI KJÖR Á BÍLATRYGGINGUM OG BÍLALÁNUM
elisabet.is
Vitryggjandi er Tryg|lng«midttMin hf.
Tveggja leikja bann
Aganefnd KKI hefur dæmt Hall-
dór Rúnar Karlsson, fyrirliða
Njarðvíkur, í tveggja leikja bann en
hann var rekinn út úr húsi í úrslita-
leik Keflavíkur og Njarðvíkur um
deildarmeistaratitilinn á dögun-
um. Halldór mótmælti villu sem
hann fékk, fékk fyrst tæknivillu og
var svo rekinn út þegar hann hélt
mótmælum sínum áfram. Halldór
missir af leikjunum við ÍR í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar en má
taka þátt í oddaleiknum ef af hon-
um verður. Halldór fékk tveggja
leikja bann þar sem hann hafði
áður verið kærður til aganefndar-
innar á þessu tímabili. Halldór
skoraði 11 stig að meðaltali og nýtti
83% skota sinna í eina deildar-
leiknum sem hann spilaði gegn ÍR í
vetur en í hinum tók hann einmitt
út bann eftir að hafa verið rekinn
A leiðinni ítveggja leikja bann Hall-
dor Rúnar Karlsson, fyrirliði Njarövikur, I
leiknum gegn Keflavík þar sem hann fór
fyrrí sturtu en aðrir leikmenn.
út úr húsi í tapi Njarðvíkur fyrir
Keflavík í undanúrslitaleik bikars-
ins.