Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2006 Fréttir UV Sveðjumaður áfram í gæslu- varðhaldi Hæstiréttur ís- lands staðfesti á mánudag gæslu- varðhaldsúrskurð yfir Tindi Jónssyni sem ákærður hefur verið íyrir að höggva mann með sveðju í höfuð og líkama í Garðabæ í október á síðasta ári. Tindur kærði úrskurð Hér- aðsdóms Reykjaness sem dæmdi hann í gæsluvarð- hald þar til dómur félli en mál hans bíður aðalmeð- ferðar.Tindur er ákærður fyrir tilraun til manndráps og verði hann sakfelldur getur hann hlotið allt að sex ára fangelsi. Textavél á Patreksfjörð Vesturbyggð þarf að kaupa nýjan textabúnað fyrir Skjaldborgarbíó á Pat- reksfirði. Kom fram í máli Guðmundar Guðlaugsson- ar bæjarstjóra á bæjarráðs- fundi að nú sé svo komið að bíófilmur komi ekki lengur textaðar. Því hafi ekki verið hjá því komist að ijárfesta í búnaðinum ef halda ætti áfram að sýna kvikmyndir í Skjaldborgar- bíói. Textabúnaðurinn kostar 1,6 miljónir króna. Vonast bæjarstjórinn til að hægt verði að afla styrkja fýrir helmingi kostnaðarins á móti framlagi úr bæjar- sjóði. Síðasta Star Wars- myndin var forsýnd í Skjaldborg. Svipturá :i staðnum Lögreglan í Reykjavík stoppaði ökumann rétt eftir miðnætti aðfararnótt mið- vikudags á Sæbraut. öku- maðurinn ók á 146 kíló- metra hraða á klukkustund þar sem leyfilegur hraði er 60. Maðurinn sem er 25 ára var sviptur á staðnum og tók lögreglan bifreið hans og keyrði hana á lögreglu- stöðina. ökumaðurinn var allsgáður þegar hann var stoppaður. „Nú liggurá að taka upp þáttinn minn og klára þaö allt,“ segir V Erna Bergmann Björnsdóttir, önn- urþeirrasem mun stjórna þætt- inum Á bakvið böndin, sem verður sýndur á Sirkus.„Svo þarf ég reyndar líka að taka til heima hjá mér. Það er svona þegar maður er aldrei heima, þá safnast alltsaman. En nú verður ráðin bót á þvi." Hvaö liggur á Foreldrar í írabakka í Breiðholti eru reiðir vegna barnaníðings sem býr í blokkinni þeirra. Oddný Lína Sigurvinsdóttir. móðir í írabakka, segir að foreldrarnir vilji gefa skýr skilaboð til níðinga um að þau líði ekki slíka menn í kringum börnin sin. Ellý Þorsteinsdóttir hjá Velferðarsviði Reykjavíkur vill finna farsæla lausn á málið. „Viö linnum ekki látum fyrr en hann er farinnÁ „Við viljum þennan mann burt," segir Oddný Lína Sigurvinsdóttir, ein af fjöldamörgum áhyggjufiillum foreldrum sem búa á Irabakka. Sigurður Jónasson, sem er dæmdur bamamðingur, býr á jarðhæð í blokkinni og óttast foreldrar að hugsanlega muni Sigurður hremma börnin þeirra. Sigurður var dæmdur í eins árs fangelsi fýrir að nauðga tveimur piltum og 17 ára andlega vanheilum pilti í júm' á síðasta ári og hefúr hann lokið afplánun sinni. „Við viljum gefa skýr skilaboð um að við líðum ekki að hafa svona menn í kringum börnin okkar," seg- ir Oddný Lína áhyggjufull yfir ná- lægð Sigurðar. Hún segir að þær séu búnar að láta alla vita í blokkinni og að börnin séu hrædd við hann en viti af honum. Oddný Lfna segir að tryggja þurfi öryggi barnanna og slíkt verði ekki gert nema með því að vekja athygli á þessu máli. Hengja mynd á Ijósastaura „Við linnum ekki látum fýrr en hann er farinn,“ segir Oddný Lína og bætir við að ef hann fari ekki þá muni þær fara með bréf í alla póstkassa í hverfinu og hengja upp myndir af honum á ljósastaurum til þess að hægt verði að tryggja öryggi barn- anna. Hún segir að eina leiðin til þess að sigra svona menn sé með því að rjúfa þögnina og vara fólki við honum. Býr í íbúð á öðru nafni Sigurður, sem er að nálgast fimmtugt, gistir í íbúð sem er á nafni fyrrum sambýliskonu hans. Oddný Lína segir að hugsanlega sé það þess vegna sem Sigurður býr núna í barnaumhverfi því lítið annað en barnafjölskyldur eru í blokkinni að hennar sögn. Hún von- ar að félagsyfirvöld bregðist við kalli áhyggjufullu mæðr- anna á írabakka því ef ekkert verði að gert þá gæti það haft hræði- legar afleiðingar fýrir börn. „Þessi maður á bara sjá sóma sinn og koma sér burt," segir Oddný Lína ákveðin. BaraaÉingi úfilutað W i baraa&loftk Níðingar og börn í sitthvort húsið _ ~ í viðtali í gær við DV sagði Sigurður Kr. Friðriksson) fram- kvæmdarstjóri félagsbústaða, að hans persónulega skoðun væri sú að ekki ætti að setja barnaníðinga í sama fjölbýlishús og börn. Hann segir að þegar þeir úthluti íbúðum þá fái þeir ekki að vita um fortíðina heldur er það Velferðarsvið sem veit það. Hann segir að til að þessi staða komi ekki upp þurfi félagsbústaðir að vera betur upplýstir. Reynt að finna lausn „Við gerum ráðstaf- anir ef svona mál koma upp," segir Ellý ÞorsteinsdóttirhjáVel-' ferðarsviði Reykjavík- urborgar, og bætir við að þetta tiltekna máf hafi ekki komið á borð til hennar. Hún segir að það muni verða skoðað í sameiningu við Félags- bústaði ef það verður kvartað og reynt að finna sem farsæla lausn á vandamálinu. valur@dv.is Milljón krónur í kynningu á skipulagi á Álftanesi Siðlaust og ámælisvert Álftaneshreyfingin telur það sið- laust og ámælisvert að í fýrrakvöld var samþykkt á bæjarstjórnarfundi, með meirihluta Sjálfstæðisflokksins, samningur við almannatengslafýrir- tækið KOM ehf. þar sem fyrirtækið á að kynna sjónarmið flokksins varð- andi skipulag miðsvæðis Álftaness. Sigríður Rósa Magnúsdóttir, for- maður bæjarráðs Álftaness, segir að ekkert sé óeðlilegt við þessa sam- þykkt meirihlutans. Það sé eðlilegt að fyrirhugað skipulag sé kynnt fyrir bæjarbúum eins og það liggi fyrir og andstaða Álftaneshreyfingarinnar sé fyrst og fremst pólitísk og hafi ekkert með skipulagið sjálft að gera. „Þeir eru bara komnir í kosningaham," segir Sigríður Rósa. Miklar deilur hafa staðið um skipulag miðsvæðisins milli Sjálf- stæðisflokksins og Álftaneshreyfing- arinnar. Að sögn Kristjáns Svein- björnssonar, bæjarfulltrúa Álftanes- hreyfingarinnar, hugnast þeim ekki nýgert skipulag og vilja samkeppni í samræmi við vilja íbúa en um helm- ingur íbúa krafðist samkeppni í undirskriftasöfnun þegar skipulagið var auglýst. Sigríður Rósa segir á móti að Alftaneshreyfingin hafi farið með miklu offorsi í þessa undir- skriftasöfnun og hún þekki fjölda manns sem sér eftir að hafa sett nafn sitt á framangreindan lista. „Nú ætía sjálfstæðismenn að taka milljón úr sveitarsjóði til að kynna sitt sjónarmið og gera þannig tilraun til að kaupa nýja afstöðu íbúa," segir Kristján Sveinbjörnsson. „Nú er ætíun sjálfstæðismanna að kaupa þjónustu almannatengsla- fyrirtækisins KOM ehf. og láta sveit- arsjóð og þar með alla íbúana greiða kostnaðinn, sem er áætlað að verði um ein millj- ón króna. Þessi samningur D- listans er siðlaus og ámælis- vert að sveitarsjóður kosti með beinum hætti kosninga- baráttu D-listans.“ Kristján Sveinbjörnsson „Nú er ætlun sjálfstæðismanna að kaupa þjónustu almannatengslafyrirtæk- isins KOM ehf. og láta sveitarsjóð og þar með alla íbúana greiða kostnaðinn."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.