Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2006 Menning DV Vel sagt Þegar ég var lítill drengur var ég stimdum sendur í kaupstaðinn, eins og það var kallað. í raun og veru finnst mér ég ennþá vera í einhverri slflcri kaupstaðarferð, langri og yfimáttúr- legri kaupstaðarferð, en ég hef gleymt því hver sendi mig og einnig því hvað ég átti að kaupa. (Steinn Steinarr) Björntekurviðaf Ólafi Darra í leikritinu Glæpur gegn diskó- inu eftir Gary Owen, sem leikstýrt er af Agnari Jóni Egilssyni og sýnt í Borgarleikhúsinu, hefur Bjöm Ingi Hilmarsson tekið við hlutverki Ólafs Darra Ólafssonar. Þessu valda annir hjá Ólafi Darra, sem m.a. leikur í Pétri Gaut í Þjóðleikhúsinu, segir leikstjórinn Agnar Jón í smttu spjalli við menn- ingarsíðu. Hann segir að Bjöm Ingi sé engu síðri en Ólafur Darri og það sé skemmtilegt að sá hvemig hlutverkið taki stakkaskiptum með nýjum leikara. Steypibaðsfélagið Stútur sýnir verkið í samstaríi við Vesturport og Borgarleikhúsið. „Það er laugar- dagskvöld, og þrír strákar reyna að skera á böndin sem hafa haldið aftur af þeim frá fæðingu, með hjálp (og hindrun) vímuefria, kvenfólks og ómótstæðilegrar tón- listar. Dauður köttur, diskókvöld sem aldrei átti sér stað, bijóstin á starfskonu tryggingastofiiunar og hauslausar dúfur em vendipunktar í þessu mannlega ferðalagi um karlmennskuna," segir á vef Borg- arleikhússins. Aðrir leikarar em Friðrik Friðriksson og Guðmundur Ingi Þorvalds- son. Björn Ingi Hilmarssi Tekur við afúlafi Darrc Glæpi gegn diskóinu. Drottning kaðlanna Steinunn Sigurð- ardóttir fatahöimuð- ur verður á Sjónþingi Gerðubergs á laugar- daginn kl. 13.30-16 og sama dag verður opnuð yfirlits- sýning á verkum hennar. Stjómandi er Sigríður Sigur- jónsdóttir, prófessor við hönnun- ardeild Listaháskóla íslands. Spyrl- ar em Páll Hjaltason, arkitekt og eigandi stofiínnar +Arkitektar, og Gunnar Hilmarsson, yfirhönnuður hjá Day Berger Mikkelsen Copen- hagen. Steinunn var íyrsti íslend- ingurinn til að stunda nám í Par- sons School of Design I New York og dvaldi þar í þrettán ár. Að námi loknu vann Steinunn með fremstu fatahönnuðum heims; Gucci, Ralph Lauren, Calvin Klein og La Perla. Hún var kölluð drotting kaðlanna, vegna þess hve hún skapaði fallegar kaðlapeysur. Hún vann eftún frá grunni og bjó til ný efrii sem aldrei höfðu sést áður. Árið 1995 hóf Steinunn störf hjá Gucci og starfaði með hönnunar- hópi Tom Fords sem byggja átti upp fýrirtækið. Upp úr því fór hún að vinna sem yfirhönnuður hjá La Perla og eftir tveggja ára starf hjá fyrirtækinu ákvað hún að snúa sér að því að hanna föt undir eigin nafrii. Þess má geta að Steinunn fékk menningarverðlaun DV í hönnun árið 2003. Menningarmið- stöðin Gerðuberg og Síminn munu bjóða landsmönnum upp á nýjung sem felst í því að hægt verður að skoða sýninguna á netinu. Sýning- in stendur til 30. apríl og er að- gangur ókeypis. Níu nætur er sérkennileg saga sem rambar á brún skáldskapar og lygi, minn- inga og sannleika, geðveiki og heilbrigði. Sigríður Albertsdóttir segir að sag- an sé djúp, myrk og skelfileg, en fantavel skrifuð. Öpvændnn á indíánnslóðum Níu nætur Bernardo Carval- ho Bjartur 2006 Þýðing: Sigrún Ástríður Eiríks- dóttir ★ ★★ Bókmenntir í ágúst árið 1939 framdi norð- ur-Ameríkumaðurinn Buell Quain sjálfsmorð á meðan á dvöl hans hjá Krahó-indíánum í Brasilíu stóð. Quain var aðeins 27 ára að aldri en hafði þá þegar getið sér gott orð fyrir mannfræðirannsókn- ir sínar og þegar dauða hans bar að hafði hann um tíma unnið að vett- vangsrannsóknum meðal indíán- anna. Ekki var mikið vitað um ástæður þess að hann stytti sér aldur en þó benti sitthvað til þess að hann hafi verið haldinn ólækn- andi sjúkdómi og því ákveðið að flýta fyrir dauða sínum. Upplifir marga martröðina Sextíu og tveimur árum síðar rekst brasilískur rithöfundur á nafn Quains í blaðagrein, er full- viss um að hann hefur heyrt nafn hans áður og ákveður að rannsaka til hlítar hvað olli því að Quain stytti sér aldur. Leitin, sem er mjög þráhyggjufull á köflum, ber hann víða, m.a. á skjalasöfn í Bandaríkj- unum og Brasilíu, hann leitar uppi fólk sem þekkti Quain og er enn til frásagnar og eins ferðast hann á indíánaslóðir til þess að komast nær persónu Quains. Þar upplifir hann marga martöðina og er stundum frá sér af hræðslu því hegðun og siðir indíánanna eru óútreiknanlegir. Ferð rithöfundar- ins í indíánaþorpið færir hann nær örvæntingu Quains en hann er litlu nær um orsakir sjálfsmorðs- ins. Skjölin sem hann les, viðtölin sem hann tekur og einnig per- sónuleg bréf Quains, sem hann skrifaði síðustu stundirnar sem hann lifði, gera fátt eitt nema rugla rithöfundinn í ríminu. I hvert sinn sem hann þykist eygja einhverja glætu kemur eitthvað nýtt upp á, nýjar mótsagnir og þversagnir sem færa hann enn fjær takmarki sínu. Og bréf Buells eru afar furðuleg því þau eru uppfull af mótsögnum og jafnvel lygum en afhjúpa mann á barmi örvæntingar og þess vegna klárrar geðveiki. Djúp sálarkreppa Inn í sögu Carvalhos fléttast frá- sögn roskins heimamanns, Manoels Perna, en hann eyddi níu nóttum í félagsskap Buells. Frá- sögn Manoels er nokkurs konar hliðarsaga í sögunni, prentuð með skáletri og er orðunum beint að nafnlausum manni sem Buell hafði skilið eftir bréf til. Það bréf ákveður Manoel að halda eftir því hann er hræddur um að það inni- haldi atriði sem kunna að skaða mannorð Buells. Því bíður hann eftir að maðurinn komi svo hann geti afhent honum bréfið. En mað- urinn kemur aldrei og því ákveður Manoel að eyða bréfinu. Frásögn Manoels skýrir tæpast lokaákvörð- un Buells en hún sýnir mann í djúpri sálarkreppu sem ekkert fær sefað nema kannski dauðinn. Tærleiki og skerpa A laugardaginn kl. 15 verður opnuð í Gerðarsafni sýning sem ber heitið Tærleikar. Þar verða sýnd verk listamannanna Elina Brother- us, Rúrí og Þórs Vigfússonar. Verk þessara listamanna hafa marga snertifleti enda þótt þau séu unnin í mismunandi efni og með ólíkum aðferðum. Tærleiki og skerpa í framsetningu einkennir verkin. Þau spegla margvíslega þætti samtím- ans og kallast á við umhverfið, áhorfandann og sjálf listamanns- ins. Finnska listakonan Elina Brotherus er meðal virtustu lista- manna Finna af yngri kynslóð. Hún hefur haldið fjölmargar sýningar víða um lönd og hlotið margvísleg- ar viðurkenningar. Elina Brotherus Fegurð í leitinni Fleiri hliðarsögur eru í Níu nóttum, til dæmis upprifjun rit- höfundarins á eigin bernsku en faðir hans var ævintýramaður sem ferðaðist með drenginn inn í brasilíska skóga þar sem hann starfaði á meðal indíána. Þær minningar eru martraðarkenndar en skýra jafnframt þrá höf- undarins til að komast til botns í máli Buells því hann skilur og þekkir af eigin skinni þann ótta sem skín út úr bréfum mannfræð- ingsins. Um síðir áttar höfundur sig á hvar hann hefur heyrt nafn Quains áður en átakanleg örlög föður hans leiða til þess að ákveðin púsl falla á réttan stað. Níu nætur er sérkennileg saga sem rambar á brún skáldskapar og lygi, minninga og sann- leika, geðveiki og heil- brigði. Sagan er fanta- vel skrifuð og þótt hún sé djúp, myrk og skelfi- leg og fjalli um ótta og botnlausa einsemd er ákveðin fegurð fólgin í leit rithöfundarins sem leggur á sig ótrú- legustu píslir til að kom- ast til botns í örlögum löngu gengins manns. Það hefur tæpast verið létt verk að þýða Níu nætur en það verk hefur Sigrún Ástríðúr Eiríks- dóttir unnið af mikilli kúnst og prýði. SigríðurAlbertsdóttir er þekkt fyrir ljósmyndaverk sem oft hafa sjálfsævisögulega skírskot- un. Þór Vigfússon hefur starfað að myndlist í þrjá áratugi og haldið fjölda sýninga. Viss naumhyggja ein- kennir verk Þórs á ytra borði en í þeim leynist líka mikil og margslung- in dýpt. Verk hans á sýningunni eru unnin í gler. Rúrí hefur haldið fjöl- margar sýningar heima og erlendis. Verk hennar Archive - endangered waters vakti alþjóðlega athygli á Fen- eyjatvíæringnum árið 2003 þegar hún var fúlltrúi fslands. Verkin á þessari sýningu em unnin í beinu framhaldi af Feneyjarverkinu, en em í fyrsta sinn sýnd hér á Islandi. Sýningarnar standa til sunnu- dagsins 23. apríl. Baðherbergi með m/mósu Eftirfinnsku lista- konuna Elinu Brotherus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.