Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2006, Side 22
22 FIMMTUDACUR 16. MARS 2006
Lífsstíll DV
Vatnsberinní2Q.;an.-;a.fefc)
Ástin á vel við stjðrnu þína. Um
þessar mundir er þörf þín að stjórna
mjög sterk. Þú sættir þig við þig og getur
skipst á hlutverkum annað veifið en
hvort sem þér líkar það betur eða verr þá
er allt sem nú er að gerast á þéssari
stundu afleiðing af vali þínu úrfortíðinni.
F\skm\r (19. febr.-20.mors)
Stærsta gjöf sem þú getur
veitt þeim sem þú elskar er að þú opnir
og bjóðir þig fullkomlega og getur þá á
móti hjálpað viðkomandi að opna þig
einnig.
MWm(21.rnrs-19.april)
Hrúturinn ætti að finna gífur-
legri sköpunarþörf sinni uppbyggilega
útrásarleið með því að verða meðvitaðri
um sitt innra sjálf svokallað. Leyfðu þér
að dreyma um það sem þú kýst að upp-
lifa eins og líkamlega snertingu og vel-
gengni. (myndunarafl þitt erfrjótt um
þessar mundir. Þú byggir þér upp miklar
sviðsmyndir sem örva þig á góðan máta.
Nautið (20. april-20. maí)
Allt mun veitast þér og hjarta
þínu ef þú ákveður að velja. Ekki láta
aðra ákveða viðbrögð þín þvi þér hefur
verið gefið valfrelsi.
Tvíburarnirp?. mal-21.júnl)
’’ Ástin litar tilveru þína í björt-
um og ekki síðurfögrum litum og þér
líkar það vel ef marka má stjörnu tví-
bura. (fyrsta skipti finnst þér að framtíð-
in sé trygg og þú upplifir gleði og fögn-
uð innra með þér.
Krabb'm (22. iúni-22.júiD
Taktu fyrir alla muni þinn tíma
og ekki hika við að starfa í þágu annarra.
Hógværð þín reynist þér vel þegar líða
tekur að helginni. Innra auga þitt sér og
skilur meira en þú gerir þér grein fyrir.
LjÓfiÍð (23.júli-22. ágúst)
Hér er komið inn á svokallað út-
flæði og innflæði (á við orkustöðvar þín-
ar). Nú er komið að þér að gefa í stað þess
að halda aftur af þér. Dulinn ótti þinn og
efi kann að hylja þitt sanna sjálf og þér er
ráðlagt að hindra hvorki aðgengi að
hjartastöðvum þínum né útflæði.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.)
Það er oftar en ekki minnst á
að þú ættir alls ekki að nota heiðarleika
þinn gegn þér. Mundu að það er á þinni
eigin ábyrgð að koma tilfinningum þín-
um skilmerkilega til skila. Þú ættir að
láta eðlislægt umburðarlyndi þitt ráða
för en ekki óttann.
áft; Vogin (21 scpl -21 okt.)
Eirðarleysi eða jafnvel leiði ein-
kennir vogina í dag en það breytist þegar
líða tekur að helginni. Hér gefur eðlislægt
eirðarleysi þér ómælda aðlögunarhæfni
en þörf þín fyrir að stjórna er mikil hérna
og á það við fólk jafnt sem hluti.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0yj
Þér tekst um þessar mundir að
takast á við tilfinningar þínar með rök-
vísi þinni. Þú verður fyllilega meðvit-
uð/meðvitaður um allar tilfinningar þín-
ar ef þú aðeins áttar þig á að árekstrar
eru oftar en ekki óumflýjanlegir þegar
djúpar tilfinningar eru annars vegar.
Gefðu eftir í meira mæli.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.des.)
Bogmaður setur sér háleit
markmið þegar sambönd eru annars
vegar. Hér kemur fram að þú leggur þig
fram við að fylgja líðan þinni og langan-
ir þínar verða uppfylltar.
Steingeitinp2.te.-?9.yanj
Gerðu eitthvað skemmtilegt
sem þú hefur hingað til aðeins ímyndað
þér en ekki leyft þér og leitaðu til fólks-
ins sem eflir þig og ýtir undir jákvæða
eiginleika þína.
Eðli mannsins að láta
óskir sínar rætast
Páll Óskar Hjálmtýsson er 36 ára í dag, 16. mars.
Þessi hæfileikaríki maður er líklegur til að leysa vanda-
mál sín en ætti að leyfa sér að hafa opið hjartað fyrir
tækifærum framtíðar. Blómin reyna ekki að vaxa heldur
opna sjálfkrafa blöð sín. Það er eðli hans að láta óskir sín-
ar rætast án þess að reyna á nokkurn vöðva líkamans. Nú
ætti hann að skilgreina þarfir sínar og takmörk.
íslenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir í Borgarleikhúsinu verkið Talaðu
við mig sem er eftir tvo fremstu danshöfunda álfunnar, þau Didy Veldman og Rui
Horta. Lífsstíll ræddi við tvo af dönsurunum, þær Aðalheiði og Hjördísi sem eru
sammála um að tilfinningar tengjast dansinum.
Danshöfundarnir á íslandi
„Það fer eftir því hvað danshöfundar eru að sækjast eftir hverju sinni,"
svarar hún þegar Lífsstíll forvitnast um samstarf dansara og höfunda fyr-
ir sýningar. „Rui Horta vann með okkur í prufu í nokkra daga. Þá sá hann
hverja hann vildi nota og hverjir voru áhugaverðir að hans mati. Við
þurftum að sýna okkur og sanna . Allir gerðu sitt besta og það var síðan í
hans höndum að velja. Það þýðir ekkert að taka því persónulega þótt
maður verði ekki valinn. Allir í flokknum eru hæfir en það er smekkur
danshöfundanna hvað þeir vilja nota. En höfundar eru eins ólíkir og þeir
eru margir. Horta er frábær danshöfundur. Það var mjög ánægjulegt og
áhugavert að vinna með honum. Jákvæður maður sem gaf okkur mikið.
Reyndur danshöfundur sem veit hvað hann vill. Didy Veldman var hins-
vegar allt öðruvísi danshöfundur. Hún samdi fyrra verkið. Allt annar
kraftur. Hún notaði eiginlega alla dansarana í sitt verk en mismikið. Þau
voru bæði hér í mánuð og sömdu verkin með okkur. Hann nýtti það sem
kemur frá dönsurunum og hún gaf okkur efnið sitt og við lögðum okkur
fram við að ná hennar stíl.“
„Algjörlega 100%," segir Aðalheiður aðspurð í upphafi samtalsins
hvort tilfinningar hennir tengist dansinum, og hún bætir við: „Maður
þarf að vera sannur og einlægur. Þannig verður það satt sem maður ger-
ir.“
Aðalheiður byrjaði níu ára gömul að dansa. „Ég var alltaf í ballet,
stundaði ballett í mörg ár. Fékk furðufugl sem kennara. Hann var frá Am-
eríku og hét Allan Howard. Hann kveikti eldinn í mér." Talið berst að því
hvað dansarar þurfa að uppfylla og hvernig er að dansa í sýningunni Tal-
aðu við mig sem sýnd er um þessar mundir í Borgarleikhúsinu. „Ég held
að allir í þessum flokki hafi langan og góðan bakgrunn í þjálfun. Allir búa
að einhverri danstækni," segir hún og byrjar að útlista hvernig henni líð-
ur í sýningunni: „Það er rosalega gaman að gera þessa sýningu. Þetta eru
tvö verk. Mjög ólík. Annað er í léttari kantinum og krefst annars af manni
en hitt. Verkið eftir Rui Horta er alvarlegra. Þar þarf maður að vera
óskaplega kraftmikill og fókuseraður en hitt er léttara og meira gaman."
BMSBHBMMi
- m
smmmmmsm
Karlar vita að vert er að hugsa um húðina
'HiB'
Eva Arna
Ragnarsdóttir
Sem betur fer eru kartmenn
farnirað viðurkenna fyrirsjálf-
um sér og öðrum að þeir eru
farnir að hugsa um húðina og
gefa jafnvel kvenfótki ekkert
eftir í þvi. Karlmenn þurfa ekk-
ert siður en við kvenfólkið að
JBP' hugsa vel um húðina. Þeir
þurfa lika að muna eftir að
fara i húðhreinsun eða andlitsbað
regluiega ásamt þvl að hreinsa
húðina dagiega og bera á sig gott krem.
Það erýmislegt sem karl-
menn geta notað til að
hreinsa húðina daglega, eins
og hreinsisápu sem má nota
til að hreinsa andlitið og
nota sem raksápu.
Húð karlmanna:
• Er grófari og þykkari en húðin á kvenfólki.
• Endurnýjar sig fyrr en hjá kvenfólki,
(meiri húðflögnun).
• Gott er að hita húðina upp fyrir
rakstur, t.d. fara í gufu.
• Það fer betur með húðina að
nota sköfu en rafmagnsrakvél.
• Munið að skipta um blöð á sköf-
unni og hreinsa vel, því annars er
auðvelt fyrir bakteríur að myndast.
• Karlmenn með feita húð mega nota
rakspíra eftir rakstur sem er líka sótthreins-
andi. Það þurrkar húðina örlítið.
® Karlmenn með venjulega húð ættu að nota
gott krem eftir rakstur.
• Karlmenn með viðkvæma húð ættu að
nota gel eftir rakstur.
Það erýmislegt sem karimenn geta notað til að hreinsa
húðina dagiega, eins og hreinsisápu sem mánota til að
hreinsa andlit og nota sem raksáþu. Hreinsigel má oft á tíð-
um lika nota sem raksápu. Einnig ber að nefna hreinsi-
froðu. Þetta er allt mjög fljótlegt í notkun og á þvi ekki að
taka mikinn tima á morgnana að hreinsa sig og ganga
með itmandi og hreina húð út í góðan dag.