Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2006, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
Fréttir OV
Skáti kýldi
mann
Andri Már Reynisson,
dróttskáti og útivistarmað-
ur, hefur verið ákærður fyr-
ir líkamsárás í Hafnarfirði á
barnum Snooker sportbar í
lok apríl á síðasta ári. Mál
hans var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær.
Andra, sem hefur verið
töluvert virkur í skátunum,
er gefið að sök að hafa sleg-
ið annan mann með þeim
afleiðingum að framtennur
hans brotnuðu.
Hann neitar sök og mun
því aðalmeðferð í málinu
fara fram síðar í mánuðin-
Sprautuðu
tannkremi
Lögreglan
íVestmanna-
eyjum kom
að óvenjuleg-
um skemmd-
arverkum í
stigagangi að
Áshamri 57.
Það var á
sunnudaginn
sem
skemmdar-
verkin voru
tilkynnt en
einhver eða
einhverjir óprúttnir aðilar
höfðu sprautað tannkremi
víðs vegar um stigaganginn
og var ekkert sparað á
glugga, veggi og teppi húss-
ins. Þá var póstkassi í hús-
inu einnig skemmdur. Lög-
reglan hefur ekki upplýs-
ingar um hver olli eignar-
spjöllunum en rannsakar
málið.
Skólabörn
veiða ísbjörn
Nemendur í fimm
grunnskólum á Vestfjörð-
um taka þátt í verkefni sem
kallast ísbjarnaverkefnið,
samkvæmt bb.is. Munu
börnin fljúga til Kulusuk í
mánuðinum þar sem þau
munu fylgjast með í gegn-
um gervihnött er veiði-
menn veiða ísbjörn á Aust-
ur-Grænlandi. Ef nemend-
ur hafa áhuga á því að sjá
eitthvað betur mun það
verða mögulegt að leið-
beina veiðimönnunum og
biðja þá að fara nær en
kvikmyndatökumaður
verður í för með veiðihópn-
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, ungfrú heimur, heillaði Grikki upp úr skónum sem heið-
ursgestur á tískusýningu Nikos og Takis í síðustu viku og var boðið að vera kynnir á
Eurovision-keppninni í Aþenu í kjölfarið. Elín Gestsdóttir, framkvæmdastjóri Fegurðar-
samkeppni íslands, segir Unni Birnu vera stjörnu en hún hafi þó engin völd til að losa
Unni frá skyldum sínum sem ungfrú heimur í Asíu á sama tima.
Getnr ekki hjálpað
llnni á Eurovisinn
„Ég var sem sagt beðin um að vera kynnir á Eurovision-keppninni
í Aþenu í maí," skrifaði Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, ungfrú
heimur, á heimasíðu sína í síðustu viku. Eins og fram kom í DV í
gær kom Unnur, sá og sigraði á tískusýningu hjá fremstu tísku-
hönnuðum Grikkja og fékk tilboðið í kjölfarið. „Varð að afþakka
pent þar sem ég er bókuð í Miss World Winners túrinn í Asíu á ná-
kvæmlega sama tíma," skrifaði fegurðardrottningin ennfremur.
Eurovision-tilboðið sem Unnur
fékk kemur Elínu Gestsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Fegurðarsamkeppni
íslands, ekki á óvart. „Unnur er
löngu orðin stjarna. Hún varð það
um leið og hún var kjörin Ungrú
Reykjavík í fyrra,“ segir Elín.
Henni finnst aftur á móti ekki lík-
legt að hún geti kippt í nokkra spotta
til áð losa Unni undan Miss World-
skyldunum til að koma fram á
Eurovision. ,Ætli það? Þetta er ekki í
mínu valdi. Það þarf að fara í æðstu
stjóra Miss World-keppninnar,“ seg-
ir Elín hlæj-
andi.
Sú fegursta og fyndnasta
„Það myndi vera stórkostlegt. Að
vera með landsliðið, fegurstu konu
heims og fyndnustu konu heims á
sviðinu," segir Gísli Marteinn Bald-
ursson Eurovision-sérfræðingur.
„Þetta sýnir hvað Grikkir eru
montnir af því að vera með
Eurovision. Þeir hafa verið svo hrifn-
ir af henni að þeir buðu henni að
vera heiðurskynnir. Annars eru
kynnarnir yfirleitt ekki af öðrum
þjóðernum. En það væri frábært að
sjá Unni kynna Silvíu á svið,“ segir
Gísli.
„Það myndi verastór-
kostlegt. Að vera með
landsliðið, fegurstu
konu heims og fyndn-
ustu konu heims á
sviðinu."
Unnur mætir á Broadway
Elín segir að búið sé að bóka
Unni Birnu til þess að koma fram á
Ungfrú Reykjavík-keppninni þar
sem hún mun krýna arftaka sinn á
Broadway á fimmtudaginn eftir
viku, 30. mars.
Þess má geta að aðsókn í feg-
urðarsamkeppnirnar hefur tví-
mælalaust aukist eftir að Unnur
Birna kom sá og sigraði
keppnunum Ungfrú Reykjavík,
Ungfrú ísland og Ungffú heimur.
„Það gleyma svo margir að þetta
ævintýri hennar byrjaði með Ung-
i
Unnur Birna
Fullbókuð út árið.
í
Lunknar lesbíur og fálátir fótboltahommar
Frá því var greint í Fréttablað-
inu að erfiðara væri að vera hommi
en lesbía í íþróttum á íslandi. Fyrst
hugsaði Svarthöfði: What else is
new? Himininn er blár og allt það.
En eins og Kristófer Kólumbus
benti á fyrir margt löngu: Það er
ekkert mál að láta egg standa á
borði. Trixið er að fatta hvernig
það er gert. Stundum þarf að orða
hið augljósa.
Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri
KSÍ og fyrrverandi fótboltalessa,
hefur gert á þessu könnun og kom-
ist að því að lesbíum vegnar vel í
m
Svarthöfði
íþróttum meðan hommarnir
hverfa. Klara veltir því fyrir sér
hvort þessi sterka staða lesbía og
bága staða homma tengist karl-
mennskuímyndinni. Svarthöfði
getur svarað því án þess að fara
sem köttur í kringum heitan graut:
Að sjálfsögðu. íþróttir eru að
grunni til staðgengill hernaðar. Á
því sviði hafa karlar einfaldlega lát-
ið meira til sín taka.
Svarthöfði man þegar hann
Hvernig hefur þú það?
Ég hefþað mjög gott, ert þaö er mikið að gera/'segir Sigurrós Þorgrímsdóttir, alþingismaður og bæjar-
fulltrúi í Kópavogi.„Auk þess að sitja í bæjarstjórn Kópavogs tók ég sæti á þingi um áramót þegar
Gunnar Birgisson settist í bæjarstjórastólinn I Kópavogi. Mikið hefur verið að gera á Alþingi í vet-
ur en ég reyni eftir bestu getu að skipuleggja tímann vel og sinna báðum þessum störfum. Frí-
tími minn er ekki mikill um þessar mundir þannig að ég geri nú ekki mikið meira en þetta. “
marseraði hring eftir
hring um bjartan leik-
fimisalinn níu ára gam-
all. Jóhannes Eðvalds-
son, sjálfur Búbbi, var
leikfimikennarinn.
Og hann lét nú
þessa hálfberu og
horuðu sveina á
hvítum stuttbuxum
heyra það um leið
og hann smellti
blautu handklæði á
skjálfandi bossana.
Búbbi hvatti pilt-
ana úr sporunum
með hrópum á
borð við: Sá síð-
asti upp pallana
er hommi! Leik-
fimipiltarnir
hoppuðu sem
mest þeir máttu því
enginn vildi vera
homminn í hópnum
sem það þýddi.
hvað
Henrý íþróttafréttaritari
á Fréttablaðinu var ekki
með Svarthöfða í
leikfimi. En hefði
haft gott af því.
Henrý spyr Klöru
forviða: Hvar eru
eiginlega hommarnir
í íslensku íþróttalífi?
Svarthöfði hefði getað
svarað þeirri spurn-
ingu ef bara Henrý
hefði spurt rétta
manninn: Þeir fóru í
ballett og aðrir í hár-
greiðslu. En nokkrir i
leiklistarskólann og
léku í myndinni
„Strákarnir okkar".
Svaithöföi.