Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2006, Síða 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 11
Brotist inn í
Pylsuvagninn
Tvö innbrotsmál komu
til kasta lögreglunnar í
Reykjavík aðfaranótt
þriðjudags. Brotist
var inn í
Pylsuvagninn
við Laugardals-
laugina og
Samkaup í
Suðurveri. í
báðum tilvikum
komust þjófarnir inn með
því að brjóta rúðu og höfðu
á brott með sér skiptimynt
og annað smávægUegt.
Bæði málin eru í rannsókn.
Erlendur á
hraðferð
Lögreglan í V-Skafta-
fellssýslu kærði fjóra öku-
menn fyrir hraðakstur í
umdæmi sínu í síðustu
viku. Sá sem hraðast ók var
erlendur ferðamaður sem
mældist á 124 kílómetra
hraða þar sem leyfður há-
markshraði er 90 kílómetr-
ar. Ferðamaðurinn var
sektaður á staðnum og
þurfti að reiða af hendi
fimmtán þúsund krónur
áður en hann fékk að halda
för sinni áfram. Annars var
eitt umferðaróhapp til-
kynnt til lögreglunnar en
vörubifreið varð fyrir
minniháttar tjóni.
íkveikja á
Hverfisgötu
íbúar við Hverfisgötu 59
í Reykjavík vöknuðu við
reyk í húseigninni aðfara-
nótt þriðjudags. Einhver
hafði kveikt í svefnpoka,
sæng og flfk í stigagangi
húseignarinnar. Ibúarnir
náðu sjálfir að slökkva eld-
inn. Ekki er vitað hver var
að verki en málið er í rann-
sókn.
Áratuga deila Jóns Ársæls Þórðarsonar, landeiganda í Heiðarfjalli og félaga hans
við bandarísk stjórnvöld, gæti tekið nýja stefnu fari svo að varnarsamningi íslands
og Bandaríkjanna verði sagt upp. Kröfum landeigendanna um að herinn hreinsi af
landi þeirra úrgang skaðlegan umhverfinu hefur ávallt verið hafnað. Ómögulegt
hefur reynst að lögsækja bandarísk stjórnvöld hér á landi vegna ákvæða í varnar-
samningnum.
Verði varnarsamningnum sagt upp ætla landeigendur í Heiðar-
flalli að stefna bandaríska ríkinu. Landeigendurnir Jón Arsæll
Þórðarson, Björn Erlendsson og fjölskyldur þeirra hafa í meira
en áratug barist fyrir því að bandarísk yfirvöld hreinsi úrgang
sem herinn skildi eftir.
Úrgangurinn ógnar lífríki á svæð-
inu. Bandaríkjamenn hafa ávallt neit-
að að verða við kröfum landeigenda
um að fjarlægja hann og skýlt sér á
bak við ákvæði í vamarsamningnum
og samkomulag þess efnis að þeir
væru í engu skulbundnir til að skilja
við herstöð sína þannig að ekki
hljótist skaði af fyrir umhverfið.
Liggur í augum uppi
„Máli okkar var vísað frá á
sínum tíma á þeim forsendum
að ekkert í vamarsamningi ís
lands og Bandaríkjanna
heimilaði það að hægt
væri að lögsækja
bandarísk yfir-
völd,“ segir Björn
Erlendsson,
einn landeig-
enda. Hann
segir það því
liggja í augum
uppi að lög-
sækja á ný
verði vamar-
samningn-
um sagt upp
eins og mikið
„Bændur á svæðinu
eru hættir að drekka
vatnið þarna því það
er ofmikið blý í því."
er rætt um þessa dagana.
Margir em meira að segja á
þeirri skoðun að vamar-
samningnum hafi þegar verið
sagt upp - það hafi verið gert
með einhliða ákvörðun
Bandaríkjamanna um að
kalia herlið sitt heim í
september.
Feimni íslenskra
stjórnvalda
Á meðal þess sem
Bjöm og félagar hans
hafa gagnrýnt er
áhugaleysi íslenskra
stjómvalda á málinu.
Það útskýrir
hann meðal
annars með
feimni þeirratil
að standa í hár-
Jón Ársæll Þórðarson Hef-
ur ásamt félögum sínum og
bræðrum baristgegn Banda-
ríkjaherl fjölda ára.
Heiðarfjall Hér hafði bandariski herinn aðstöðu á árum áður með skelfilegum afleiðingum
fyrir umhverfið.
inu á Bandarfkjamönnum mitt í við-
kvæmum viðræðum um framtíð her-
liðsins á Miðnesheiði. Bjöm segir að
nú sé ekkert því til fýrirstöðu að ís-
lensk stjómvöld beiti sér í málinu og
þrýsti á Bandaríkjamenn að koma í
veg fýrir að sá skaði sem herinn hefúr
unnið á umhverfinu verði ekki meiri
en hann er nú þegar orðinn.
Ætla til Haag
Mál landeigendanna hefur vakið
athygli víða. Umhverfisverndarsam-
tök á Norðurlöndum hafa mótmælt
sinnuleysi bandaríska hersins í mál-
inu harðlega. En herinn stendur fast
við sitt.
Hvaða áhrifheíur þetta haft a' um-
hverfíð? „Bændur á svæðinu em
hættir að drekka vatnið þarna því það
er of mikið blý í því," segir Björn Er-
lendsson. Landeigendurnir hafa þeg-
ar stefht George Bush, Donald Rums-
feld og Condoleezu Rice fyrir alþjóða-
glæpadómstólinn en deilur um hvort
dómstóllinn hafi yfir höfuð lögsögu
yfir bandarískum þegnum hafa tor-
veldað þá stefriu. Landeigendumir
hafa ekki látið deigann síga og íhuga
nú að fara með málið til Mannrétt-
indadómstólsins í Haag.
andri@dv.is
Yfir hundrað manns á aldrinum 60 til 69 ára hjá varnarliðinu
Flestir starfsmenn á sextugsaldri
Flestir íslendingar sem starfa hjá
hernum á Keflavíkurflugvelli em á
aldursbilinu 50 til 59 ára, eða um 173.
Þetta kemur fram í upplýsingum
sem DV hefur borist frá Bandaríkja-
her og sýnir bæði lífaldursdreifingu
Dyggur starfsmaður Einn Islendingurhef-
urstarfað hjá varnarliðinu i meira en 50 ár
en hann fær uppsagnarbréfá næstunni.
íslenskra starfsmanna hjá
varnarliðinu og starfsald-
ursdreifingu.
Nú berjast stéttarfélög
fyrir því að íslenskir starfs-
menn hjá varnarliðinu sem
náð hafa 60 ára aldri fái
starfslokasamning. Ef litið **
er á aldur starfsmanna þá
kemur í Ijós að 111 hafa náð
60 ára aldri og er það þriðji
stærsti aldurshópurinn sem
þar starfar. *
47 íslendingar, sem starfa
hjá varnarliðinu, em á aldrinum 17 til
29 ára, 95 á aldrinum 30 til 39 ára og
167 á aldrinum 40 til 49 ára.
Samtals em starfsmenn 593. Þar
af em 429 af Suðurnesjunum. Flestir
koma úr Keflavík, um 250, og 127 úr
Njarðvík.
Flestir íslensku starfsmannanna,
Verklausir Mikill fjöldi
trésmiða og pípuiagn-
ingamanna starfa hjá
varnarliðinu en um 46
slikir eiga heima á Suður-
nesjunum.
eða 146, hafa starfað á
vellinum í 10 til 19 ár. 145 starfsmenn
hafa unnið á vellinum í 20 til 29 ár.
Einn dyggur íslenskur starfsmað-
ur, sem fær uppsagnarbréf á næst-
unni, hefur starfað hjá varnarliðinu í
meira en 50 ár að því er fram kemur í
upplýsingum bandaríska hersins.
með HjrfLBRIGÐUM
LIFSSTÍL