Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2006, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
Sport DV
Strembið verkefni
Það mun reyna mikiðá
Valsliðið næstu vikurnar
bæði heima og erlendis.
Vængbreytinga
krafist
Litlu munaði að upp úr syði
á Formúlu 1-kappakstrinum í
Malasíu um helgina er átta Iið
hugðust kæra lið Ferrari fyrir
ólöglega útfærslu á vængjum
bflsins. Netsíðan
autosport.com greindi frá því í
gær að munnlegt samkomulag
var gert á staðnum milli FIA og
Ferrari þess eðlis að þeir síðar-
nefndu breyttu vængjum sín-
um fyrir næstu keppni sem fer
& am í Ástralíu eftir tvær vikur.
Reglunum verður ekki breytt
að svo stöddu en
sambandið bað
einnig McLaren og
BMW um að breyta
sínum vængjum
þannig að þær sam-
ræmdust núverandi
reglum.
Japanir heims-
meistararí
hafnarbolta
Lið Japans varð á mánu-
daginn heimsmeistari í hafn-
arbolta eftir að hafa borið sig-
urorð af Ólympíumeisturum
Kúbu í úrslitaleiknum. Japan
komst snemrha yfir í leiknum,
4-0, og stóð af sér síðbúna
sókn Kúbverja. Japan vann að
lokum sigur, 10-6. „Þetta er
lfldega stærsta stimdin á mín-
um hafnarboltaferli,“ sagði
Ichiro Suzuki sem
var maður leiks-
ins. Hann leikur
með Seattle Mar-
iners í bandarisku
úrvalsdeildinni.
Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson samdi í gær við þýska úrvalsdeild-
arliðið Hannover 96 til næstu þriggja ára. Hann segir að þar með hafi æsku-
draumur ræst en hann fylgist mikið með þýska boltanum. „Þýski leikstíllinn mun
koma til með að henta mér vel,“ segir hann.
MNi tnnrs
á annað hundrað milljor
Gunnar Heiðar Þorvaldsson gekk í gær frá þriggja ára samningi
við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96. Hann nær því
nokkrum leikjum með sænska félaginu Halmstad í sænsku
úrvalsdeildinni áður en hann flytur til Þýskalands í sumar. „Ég er
ótrúlega ánægður með þetta og frábært að geta klárað þetta
strax.“ Samkvæmt heimildum DV sports borgaði Hannover á
annað hundrað milljóna króna íýrir Gunnar Heiðar.
.
... *
> ■
Gunnar Heiðar var greinilega
feginn að þessi mál voru loksins
komin á hreint. Undanfarna mánuði
hefur hann verið orðaður við ótal
félög í mörgum Evrópulöndum en
hann vakti mikla athygli síðasta
tímabil þegar hann skoraði 22 mörk
fyrir Halmstad í öllum keppnum.
Þar af skoraði hann 16 mörk í
sænsku úrvalsdeildinni og var
markakóngur hennar.
Kaupverðið er ekki uppgefið en
stjórnarformaður Halmstad sagði í
gær að félagið væri mjög sátt við sitt.
Og samkvæmt heimildum blaðsins
mun Hannover hafa reitt fram á
.kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
..flangslegur
..búkkalegur
LANDVÉLAft
avogur- WM/.landvelar.it
Slmi 580 5800
Brautir- Glerveggir-
Glerhuröir - Hert Gler
Söluaðili Akureyri Slmi 461 2288
fi-STRAUMRAS
__Æ Furuvelllr 3 - 600 Akureyri
Hawa
m
Vlllll
Járn og gler ehl - Skútuvogur 1h
Barkarvogsmedin - S: 58 58 900
www.Jarngier.is
„Gunnar Heiðar mun
líka sjálfur hafa
samið um afar góð
persónuleg kjör við
Hannover 96."
annað hundrað milljónir króna fyrir
Gunnar Heiðar, sem er afar há ljár-
hæð í ljósi þess að hann á ekki nema
sex mánuði eftir af samningi sínum
við Halmstad.
Fær vel borgað
Gunnar Heiðar mun líka sjálfur
hafa samið um afar góð persónuleg
kjör við Hannover 96. Ekkert minna
hefur dugað þar sem fleiri lið í þýsku
úrvalsdeildinni voru á höttunum
eftir starfskröftum hans.
„Nú get ég bara einbeitt mér að
þeim leikjum sem eru framundan
með Halmstad og svo get ég flutt í
rólegheitunum til Þýskalands í
sumar," sagði Gunnar Heiðar en
hann nær fyrstu umferðunum í Sví-
þjóð áður en deildin þar fer í frí
vegna heimsmeistarakeppninnar í
Þýskalandi í sumar. Samningur hans
við Hannover 96 tekur gildi þann 1.
júlí næstkomandi og fær hann því
rúman tíma til að koma sér fyrir á
nýjum stað.
Alveg passlegt
„Þetta er frábært félag og gamal-
gróið. Það er jafnframt stórhuga en
það er nýflutt á leikvang sem tekur
50 þúsund manns í sæti. Ég tel að
þetta er gott skref fyrir minn feril -
félagið er hvorki of stórt né of lítið.
Alveg passlegt bara," sagði Gunnar
Heiðar glaður í bragði.
Hann sagði í viðtali við sænska
staðarblaðið Hallandsposten í gær
að hann hefði engan áhuga
að fara til félags sem stæði í
botnbaráttu í sinni deild né
heldur vera endalaust á
bekknum hjá einu stórfé-
laganna. „Ég hef of litla þol-
inmæði fyrir eitthvað slíkt,"
sagði hann.
Með þeim betri í liðinu
Gunnar Heiðar meiddist í
leik með Halmstad í Evrópu-
keppni félagsliða í haust og hefur
síðan þá jafnað sig. Hann hef-
Ur hins vegar fengið
hnjask af og til og
þurfti til að
mynda að
fara
HALMSTAO
tryckeri
\CA
snemma
af velli í
æfingaleik
með Halmstad
um helgina. En lækn-
arnir hjá Halmstad voru
ánægðir með hann eftir að
hann gekkst undir læknis-
skoðun þar í gærmorgun.
„Þeir voru mjög sáttir og
sögðu að ég væri strax með
þeim betri í liðinu,“ sagði
Gunnar Heiðar.
eirikurst@dv.is
Kominn i þyska boltann
Gunnctr Heidar Þorvaldsson
samdi i ga?r vió Hannover 96 en
hann varð markakóngur
sænsku Orvalsdeildarinnar med
Halmstad a slðasta tímabili.
Valur þarf til Rúmeníu í undanúrslitum áskorendakeppni Evrópu
Skárri kosturinn af tveimur illum
„Þetta var skárri kosturinn af
tveimur illum," sagði Ágúst Þór
Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í
handbolta. Liðið er komið í undanúr-
slit áskorendakeppni Evrópu og dróst
í gær gegn rúmenska liðinu Con-
stanta. Annað rúmenskt lið var í pott-
inum, Brasov, en það dróst gegn
Merignac frá Frakklandi sem var
óskamótherji Valsmanna.
Constanta er sem stendur í sjötta
sæti rúmensku deildarinnar en
Bresov er með myndarlega forystu á
toppnum. „En þetta er engu að síður
afar sterkt lið sem vann Split ffá Króa-
tíu í fjóröungsúrslitum," sagði Ágúst.
„En ég er ánægður með að við byrjum
á útivelli og vonandi náum við að
koma þeim eitthvað á óvart enda
snýst þetta allt um að ná góðum úr-
slitum í útileiknum."
Ágúst segir að það hafi verið við-
búið að Valur fengi nú sterkan and-
stæðing enda komið langt í keppn-
inni. „Þetta verður mjög erfitt en ef
allt gengur upp eigum við hugsanlega
möguleika á sæti í úrslitaleiknum."
Framundan er lokaspretturinn í
DHL-deild kvenna og mun Valur
mæta Haukum í toppslag deildar-
innar um næstu helgi. eirikurst@dv.is
DV-mynd Guðmundur Svansson