Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2006, Blaðsíða 23
DV Sviösljós
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 23
ÞRJOTURINN
'Viák 4?
Ghost Recon á
Xbox360
Settu d pásu með start-takkanum á með-
an á leikstendur. Haltu tökkunum aftan á
fjarstýringunni (left trigger, right trigger)
inni og sláðu svo inn svindlið.
Y, RB, Y, RB, X
(á Mission Select Screen) fyrir öll borðin
Y,Y,KRB,X,LB
gerir Scott Mitchell ósýnilegan
KKY,RB,Y,LB
gerir liðið ósýnilegt
RB,RB,LB,X,LB,Y
fyrir endataus skotfæri
LB,LB,RB,KRB,Y
til að endurheimta 100% heilsu
uir lMavSíation 3
í seinustu viku var staðfest á ráðstefnu
Sony í Japan að PlayStation 3 kem-
ur út á heimsvísu í nóvem-
ber. Þar kom einnig fram að
2,5-tommu, 60GB harður
diskur með Linux-stjórn-
kerfi yrði nauðsynlegur
partur ÍPS3.
Hins vegar var ekki kom-
ið á hreint þá hvort harði
diskurinn myndi fylgja tölv-
unni, eða vera seldur sér.
Sony gaf það líka út að
leikjaframleiðendur skyldu
gera ráð fyrir disknum við
gerð allra PS3-léikja. Tölvu-
leikjaframleiðendur og
áhugamenn óttuðust að
þessi nauðsynlegi búnaður yrði seldur sér
og það myndi skapa vesen og
aukinn kostnað.
Núna hefur það hins vegar
verið staðfest að búnaðurinn
mun fylgja tölvunni. Þetta kom
einnig af stað þeim vangaveltum
að PS3 yrði því seld í mismun-
andi verðflokkum, eftir aukabún-
aði likt og Xbox 360. Talsmaður
Evrópudeildar Sony hefur lokað á
þær sögusagnir og staðfest
búnaðinn sem heild og
hefur einnig gefið það út
að hægt verði að kaupa
aukabúnað á harða
diskinn til þess að gera
hann betri.
r Sony bjaryai andlitinu
Yfirmadur tölvudeildai fyi
irtækisins itrekaði ágæti
PS3 á fundi i sidustu viku.
□□
CTj
Sjöundi Tomb Raider leikurinn kemur út 7.
Hotlasfi
Tomb Raider til þessa
apríl í Evrópu og 11. apríl í Bandaríkjunum
Nýi Zelda á
Revolution
Nýjasti Zelda-leikurinn, sem ber
nafnið Zeida: Twilight Princess, átti
að vera löngu kominn út á Game
Cube. Margir höfðu beðið lengi eftir
leiknum, en nú er það endanlega
komið á hreint að hann verður á
Revolution.
Það hefur
einnig verið
staðfest að
nýja Revo-
lution-fjar-
stýringin
mun nýtast í
leiknum.Til
dæmis með
þvf að beina henni að skotmörkum
á skjánum til að skjóta úr boga og
kasta búmmerangi. En fjarstýringin
er eins og margir vita eins og sjón-
varpsfjarstýring i laginu og er hægt
að nota með annari hendi.
Godfather í búð-
ir á morgun
Godfather kemur f allar helstu
leikjaverslanir á morgun. Tölvuleik-
urinn er framleiddur af Electronic
Arts og fáanlegur á Playstation 2,
Xbox, PC og PSP. f leiknum bregður
maður sér f hlutverk ungs glæpa-
manns sem gerir sitt besta til þess
að vinna sig upp metorðastigann í
heimi mafíunnar f New York-borg,
en henni er stjórnað af hfnni al-
ræmdu Corleone-fjölskyldu. f leikn-
um er að finna persónur úr mynd-
unum og tala Marlon Brando, James
Caan, Robert Duvall og fleiri frægir
leikarar inn á leikinn.
Beðið hefur verið með gríðarlegri
eftirvænringu eftir Tomb Raider:
Legend. Þegar hafa verið gefriar út
prufur á leiknum sem hefur upp á
ótrúlega grafík að bjóða. Sjónræna
hliðin á leiknum þykir einhver sú
flottasta sem hefur sést. Eftir að pruf-
umar komust í hendur tölvuleikja-
spilara var það almennt talið að sam-
keppnisaðiiar, sem em fjölmargir,
hefðu verið skiidir eftir með rykið í
augunum.
10 ár frá fyrsta leiknum
Tomb Raider: Legend er sjöundi
leikurinn um hina kynþokkafúllu og
knáu Löm og hafa leikimir hingað ril
selst í yfir 28 milljónum eintaka. Líkt
og í fyrri leikjum gengur Legend út á
að leysa þraurir, slást við óvætti og líta
vel út með Löm Croft.
Fyrsti Tomb Raider-leikurinn kom
út árið 1996 og hafa leikimir eins og
áður sagði verið mjög vinsælir. Eidos
Interacrive, sem er framleiðandi
leiksins, hefur staðfest að hann komi
út 7. apríl í Evrópu á PC, Playstation 2
og Xbox 360. Hann mun svo koma út
11. apríl í Bandaríkjunum.
Konurnar á bakvið Croft
Þekktasta andlirið til þess að halda
uppi heiðri tölvuleikjadrottningar-
innar er að sjálfsögðu Angelina Jolie í
lcvikmyndunum tveimur, sem vom
nú reyndar langt frá því að vera í
sama klassa og leikimir. En Eidos
ræður iðulega fönguleg fljóð til þess
að vera andlit leiksins og kynna hann.
í þetta sinn hefúr ung stelpa frá Lund-
únum af nafrii Karima Adebibe orðið
fyrir valinu og þykir einkar glæsileg.
Lengi vel var leikkonan Rachel
Weisz bendluð við að tala fyrir Löm í
nýja leiknum, en það var hins vegar
leikkonan Keeley Hawes sem varð
fyrir valinu. Hún hefur ril dæmis leik-
ið í þáttunum Spooks sem hafa verið
sýndir á RÚV.
www.vikurverk,is
TANGARHOFÐA 1 SIMI 5 5 7 7 7 20
:4k