Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006
Fréttir DV
Leiðrétting
Þessi mynd var valin af
handahófi úr ljósmynda-
safni DV og tengist á engan
hátt efni fréttar sem birtist í
blaðinu í gær. DV biðst vel-
virðingar ef þessi mynd-
birting var einhverjum til
óþæginda.
Moldarstrók-
uríEyjum
Lögreglan í Vestmanna-
eyjum segir að yfir bænum
hafi legið moldarstrókur og
seltumistur í gær. Nokkuð
slæmt veður var um land
allt þar sem vindhraðinn var
víða ansi mikill og í sumum
tilfellum fauk byggingarefni
frá nýbyggingum. Lögreglan
í Eyjum segir að eyjarskeggj-
ar séu vanir ýmsu og hafi
allt njörvað niður svo ekki
hljótist tjón eða skaði á fólki
þegar vindhraðinn er mikill.
Vmd hafði lægt víða á land-
inu seinnipartinn í gær.
Vilja svör
Brunavamir Suður-
nesja hafa boðað til fundar
um framtíðarhúsnæði BS
en starfsmenn binda von-
ir við að á fundinum verði
tekin ákvörðun um mál-
ið. Þetta kemur fram á vef
Vfkurfrétta. Starfsmenn ít-
rekuðu áhyggjur sínar af
seinagangi sem einkenndi
umræðuna og afhentu eign-
araðilum bréf þess efnis á
síðasta fundi Sambands
„Þoð er náttúrlega úrslitakeppnin I
körfubolta," segir Valur
Ingimundar-
son, þjálfari
Skallagríms en
lið hans sigraði Keflvikinga i
fyrradag í undanúrslitakeppni
lceland Express-deildarinnar.
Staðan I rimmunni er þvljöfn.
„Slðan er ég að ferma dóttur mína
þann niunda april. Síðan liggur
mér á að flytja fyrir fyrsta april. Það
er nóg að gera.“
Bubbi Morthens hafði sigur í héraðsdómi í málarekstri sínum á hendur Garðari Úlfars-
syni, fyrrverandi ritstjóra Hér og nú og 365. Garðar var dæmdur til að greiða Bubba 700
þúsund í miskabætur fyrir fyrirsögnina „Bubbi fallinn“ og 500 þúsund í málskostnað til
handa Sigríði Rut Júlrusdóttur. Viðbrögð við dómnum eru misjöfn.
Bjarni Brynjólfsson
Ritstjóri Séð og heyrt átti
von á þessum dómi.
Sektin sem Jón Finnbjörnsson
héraðsdómari dæmdi Garðar
Úlfarsson til að greiða er með
því allra hæsta sem þekkist í
meiðyrðamáli hérlendis: 700
þúsund króna sekt auk 500
þúsund króna málsvarnalauna.
Dóminn byggir Jón einkum á
því að umfjöllunin hafi verið
tilefnislaus, Bubbi hafi verið
friðhelgur í bíl sínum og fýrir-
sögnina væri ekki hægt að
skilja öðruvísi en svo að fullyrt
sé að Bubbi sé byrjaður að
neyta vímuefna.
„Ég er afskaplega glaður," sagði
Bubbi Morthens en þegar DV náði
tali af honum sat hann við snæðing
úti í Prag. Hann segist ekkert endilega
hafa búist við þessari niðurstöðu en
Sigríður Rut lögmaður hans hringdi
í hann út og færði honum tíðind-
in. Bubbi segist munu í framtíðinni, í
ljósi þessa máls, umgangast fjölmiðla
á annan hátt en hingað til.
Dómnum verður áfrýjað
„Það er bara þannig. Þetta er ofsa-
lega einfalt. Ég upplifði þetta sem
ofbeldi. Og þegar maður verður fyrir
ofbeldi meiðir maður sig. Einhverra
hluta vegna hafði þetta þau áhrif að
ég meiddi mig."
Bubbi segist sem óvitlaus maður
telja miklar líkur á því að þessu máli
verði áfrýjað aðspurður um hvað hann
ætli að gera við peninginn. „Þetta er
bara tala á einhverjum pappír."
365-prentmiðlar eru sýknaðir
samkvæmt prentlögum sem vísað er
í dómi er Garðar einn ábyrgur fyrir
fréttínni.
„Þessi dómur er eiginlega jafn und-
arlegur og hann er rangur," segir Garð-
ar Öm Úlfarsson í samtali við DV.
„Það virðist því blasa við að
honum verði áfrýjað. Til dæmis er fr á-
leitt að byggja dóminn á því að aðeins
megi skilja fýrirsögnina á þá einu leið
sem dómarinn gefur sér. Annars veg-
ar segir hann fyrirsögnina tvíræða og
svo að aðeins megi skilja hana á einn
veg."
Tilefnislaus umfjöllun
I rökstuðningi sínum segir Jón
Finnbjömsson meðal annars:
„Telja verður að myndataka af
manni sem situr í bifreið sé óheimil
á sama hátt og myndataka á heim-
ili hans, þótt við sérstakar aðstæður
„Þessi dómur er eigin-
lega jafn undarlegur og
hann errangur"
kunni hún að vera heimil. Myndir
voru hér teknar af stefnda þar sem
hann sat í bifreið sinni á götuhomi í
Reykjavík. Ökuferðin eða dvöl stefn-
anda í Reykjavík þá stundina var ekki
sérstaklega fréttnæm og hafði ekki
þýðingu í almennri þjóðfélagsum-
ræðu á þeim tíma. Sama verður að
segja um þær staðreyndir að hann var
að tala í farsíma og var með sígarettu
í munninum. Myndatakan og birting
myndanna var því tílefrúslaus."
Um tilefni má endalaust deila
Ekki verður betur séð, fái þessi
dómur að standa óbreyttur, að hann
hljótí að hafa veruleg áhrif á frétta-
flutning á íslandi. Sigurjón Egilsson
fféttaritstjóri Fréttablaðsins vildi ekki
tjá sig um málið né heldur Karl Blön-
dal aðstoðarritsfjóri Morgunblaðs-
ins þegar eftír því var leitað. Forsenda
sem þeir nefndu er sú að þeir hafi ekki
náð að kynna sér efni hans.
Ásgeir Sverrisson ritstjóri Blaðsins
segist ekki geta fallist á röksemd dóm-
arans að unnt sé að skilja fýrirsögnina
á annan veg en þann að fullyrt sé að
Bubbi sé tekinn að neyta vímuefna.
„Hann hafði rætt tóbaksnotkun
sína opinberlega eins og raunar flest
sem tilheyrir einkalífi hans. Lista-
menn þurfa eðlilega á umfjöllun
fjölmiðla að halda en afar misjafnt
er hversu tamt þeim er að ræða um
einkalíf sitt. Bubbi Morthens hefur
gengið langt í því efni, vafalaust í góð-
um tilgangi en þar ræðir um val hans
„Um tilefni fréttarinn-
ar og myndbirtingu má
endalaust deila."
og frelsi. Um tilefni fréttarinnar og
myndbirtingu má endalaust deila.
Um það hvort fýrirsögnin var smekk-
leg má einnig deila en strangt til tekið
var hún tæpast röng."
Ritstjóri Séð og heyrt sáttur
„Þetta er náttúrlega athyglisverður
dómur. Mér finnst hann ekíd óvæntur.
Ég áttí von á því að þetta mál færi
svona," segir Bjarni Brynjólfsson rit-
stjóri Séð og heyrt, tímarits sem er á
svipuðu róli og Hér og nú - þar sem
fjallað er um fólk án þess að oft megi
fjölyröa um hvort tílefni sé ærið.
Bjarni segir ffamsetningu Hér
og nú glannalega. Og auk þess
setur hann spurningamerki við
papparassamyndir af Bubba teknar í
gegnum rúðu.
„Þar sem hann er á sínu einka-
svæði. Þetta er bíllinn hans.
Svipaðar myndir sér
maður reyndar oft í út-
löndum. Opinberar
persónur í bíl á götu
sem opinbert svæði.
Engu síður virðist það
hafa haft áhrif á dóminn.
Myndimar em teknar
án hans vitundar
og það kann
að hafa for-
dæmis-
Garðar Örn Úlfarsson Annars vegarsegir
Jón fyrirsögnina tvíræða og svo að aðeins
megi skilja hana á einn veg.
gildi. Teknar á hans prívat-svæði og
það er metíð honum í hag af dómar-
anum."
Bjami býst þó ekki við því að þetta
breytí einu né neinu hjá Séð og heyrt.
Segir þetta vissulega vandrataðan
veg þegar fjallað er um fólk og meta
þurfi hvert tilvik um sig.
„Vissulega geta orðið slys. Mestu
mistökin sem blaðið gerði var að
viðurkenna ekki þessi mistök held-
ur standa bara á sínu máli eins og
hundur á roði, í stað þess að
biðjast bara afsökunnar.”
jakob@dv.is
Hin únjdeilda mynd
FyrirsögniqJiubbi
faltinn“ogpasóimynd
kirðu Hér og nrnnð falli
':Á-
Asgeir Sverrisson
Fellst ekki á röksemd
dómara um að aðeins
megi skilja fyrirsögnina
áþennaneina veg.
Dómarinn Jón Finnbjörnsson
Myndatakan og fréttin tilefnislaus.
Þvlfórsem fór.