Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2006, Side 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 200611
Fimmtíu kon-
um sagt upp
Um fimmtíu konum,
sem störfuðu við þrif á
Keflavíkurflugvelli hjá Atafl,
hefur verið sagt upp. Fyrir-
tækið, sem áður hét Kefla-
víkurverktakar, tilkynnfi
þetta á starfsmannafundi í
gær. Konurnar eru að mestu
leyti búsettar á Suðurnesj-
um sem þrifin voru eina
starfsemi Atafls á varn-
arstöðinni að því er fram
kemur á vf.is. Þær munu fá
aðstoð við atvinnuleit.
Sveitarfélagið Ölfus hef-
ur auglýst til úthlutunar
lausar lóðir í Þorlákshöfn.
í boði eru lóðir undir ein-
býlishús sem seldar verða
fyrir 1,8 til 2 milljónir króna.
Einnig raðhúsalóð fýrir fjór-
ar íbúðir á 3,4 milljónir og
lóð fyrir parhús á 2,4 millj-
ónir. Þannig að lóðaverðið í
Ölfusinu er margfalt lægra
en á höfuðborgarsvæðinu.
Nýju lóðirnar í Þorlákshöfn
eru í svokölluðu Búða-
hverfi.
Hátíð heyrn-
arlausra
Norræn menningarhá-
tíð heyrnarlausra fer fram á
Akureyri þann 10. til 16. júlí
en von er á mörg hundruð
gestum til bæjarins því á
sama tíma verður einnig
haldin alþjóðleg leiklistar-
hátíð heyrnarlausra á Ak-
ureyri. Það er félag heyrn-
arlausra sem stendur fýrir
hátíðinni en Norðurlöndin
skiptast á að sjá um hátíð-
ina sem er á fjögurra ára
fresti. Þetta er í tuttugasta
sinn sem hátíðin er haldin.
Ingi Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, vill aö bæjarsjóður þar
borgi sér 26 milljónir króna í starfslokasamning en Ingi hætti sem bæjarstjóri árið 2003
er þáverandi meirihluti sprakk. Bæjarstjórn er einhuga um að hafna alfarið þessari
kröfu. Ingi er síðan orðinn útibússtjóri Glitnis í Eyjum en bæjarsjóður er einn stærsti
viðskiptavinur útibúsins.
Ingi Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, vill
að bæjarsjóður þar borgi sér 26 milljónir króna í starfslokasamn-
ing. Bæjarráð hafnaði þessari kröfu alfarið og var þverpólitísk
samstaða um þá ákvörðun.
Ingi hætti sem bæjarstjóri 2003,
er þáverandi meirihluti sprakk, og
fór síðar að vinna sem útibússtjóri
Glitnis í bænum. Bæjarsjóður er
einn stærsti viðskiptavinur Glitn-
is og samkvæmt heimildum DV eru
framámenn í bænum farnir að ræða
það sín á milli að mál þetta geti haft
áhrif á þau viðskipti. í fýrrakvöld
kom bæjarráð saman til að ræða
kröfu Inga. Var niðurstaðan sú að
hafna henni alfarið. Var eineinhug-
ur um málið, einnig hjá Sjálfstæð-
ismönnum sem stóðu að ráðningu
Inga á sinum tíma. Pét-
/ . - ur Þ. Ósk-
■ arsson,
i*. , ' f»r-
% stöðu-
, maður
kynn-
ingar-
# sviðs
' Glitn-
is, seg-
ir að
bank-
inn sé
ekki að-
ili að
málinu og hafi því ekkert um það að
segja.
í vinnslu í 3 ár
Ingi Sigurðsson segir í samtali
við DV að málið hafi verið í vinnslu
hjá honum s.l. 3 ár. Fyrst var Ragn-
ar Hall lögmaður með málið en nú
hefur Ingi ráðið Sigurð G. Tómas-
son sem lögmann sinn. „Við höfum
ekki tekið ákvörðun um næstu skref
í málinu. Lögmaður minn þarf fyrst
að kynna sér niðurstöðu bæjarráðs,"
segir Ingi.
Sáraeinfalt
Bergur Elías Ágústsson, bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum, segir að
viðbrögð sín séu sáraeinföld og
í samræmi við afgreiðslu bæj-
arráðs á málinu. „Við höfn-
um þessari kröfu Inga alfar-
ið og um það er þverpólitísk
samstaða," segir Bergur og vill
að öðru leyti ekki tjá sig um
málið. Jafnframt því að hafna
kröfu ,Inga fól bæjarráð Ást-
ráði Haraldssyni hæstaréttar-
lögmanni að gæta hagsmuna
bæjarins ef til málareksturs
kæmi.
Ofboðsleg græðgi
Einn af meðlim-
um bæjarstjórnarinn-
ar í Eyjum, sem ekki vill
láta nafn síns getið, seg-
ir að þessi krafa sé ekkert
annað en ofboðsleg græðgi
hjá bæjarstjóranum fyrrver-
andi. Aðspurður um hvort
málið gæti haft áhrif á sam-
skipti bæjaryfirvalda við úti-
bú Glitnis segir bæjarfulltrú-
inn að fólk spyrji sig nú þeirrar
spurningar í bæjarkerfinu.
Menn vilji hins vegar bíða og sjá
framvinduna næstu daga.
Bergur Elías Þverpólitísk
samstaða um að hafna
þessari kröfu alfarið.
m
Ingi Sigurðsson Má/ið
hefur verið í vinnslu
undanfarin 3 ár.
nýbýlavegi 18 I s. 517 2100
mubla
Hönnuðir PEFA sameina á ein-
stakan hátt framúrstefnulega
fegurð, stílhreina hönnun,
einfaldleika, úthugsuð
smáatriði og meistarasmíð.
Hinir vel þekktu hönnuðir PEFA
vita hvaða þarfir borð þarf að
uppfylla og hve miklu máli það
skiptir fyrir heildarmyndina. Um
leið og þeir fcera þér borð sem
er gleðivaki og miðpunktur
heimilislífsins tekst þeim að
brjóta viðteknar venjur með
óvenjulegrí hönnun og
skemmjilegum-útfcerslum.
PEFA er valkostur fyrir
hugsandi fólk.