Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2006, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006
Sport DV
Ellefti odda-
leikurinn
Leikur Hauka og ÍS á
Ásvöllum í kvöld veður ell-
efti oddaleikurinn í sögu úr-
slitakeppni kvenna í körfu-
bolta en sjö af þessum tíu
oddaleikjum hafa verið í
undanúrslitunum. Haukar
hafa aldrei áður lent í odda-
leik í úrslitakeppni kvenna
en þetta verður fjórði odda-
leikur stúdína og allir þrír til
þessa hafa tapast.
Heimaliðið hefur
unnið 7 af þess-
um 10 oddaleikj-
um, þar af þá þrjá
síðustu og alla
ijóra oddaleiki í
undanúrslitum
frá aldamótum.
Óvissa með
Mariu Conlon
Maria Conlon, banda-
ríski leikstjórnandinn hjá ÍS,
meiddist iíla á ökkla í 2.
undanúrslitaleiknum gegn
Haukum og spilaði ekkert
með síðustu 16 mínúturnar
í leiknum. Conlon hafði þá
skoraði 16 stig í leiknum og
haldið Helenu Sverrisdóttur
á sama tíma í aðeins 6
stigum. „Hún er í meðferð
hjá sjúkraþjálfara og ég veit
í rauninni ekkert hvemig
ástandið er á henni því hún
æfir ekkert fyrir leikinn. Við
verðum bara að
sjá til hvernig
hún verður í
leiknum," segir
ívar Ásgrímsson,
þjálfari ÍS.
Alveg eins og
fyrir18árum
Það em liðin 18 ár síðan
að Haukar eignuðust ís-
landsmeistara í körfubolta í
fyrsta skiptið en kvennalið
félagsins spilar í kvöld odda-
leik við ÍS um sæti í úrslita-
einvíginu um íslandsmeist-
aratitilinn. „Við töpuðum
fyrsta leik í vetur á móti
Breiðabliki en mér var sagt
það að gömlum Hauka-
manni að ég þyrfti lítið að
örvænta því þegar karlaliðið
vann fyrir 18 ámm þá töp-
uðu þeir líka fyrsta leik en
urðu síðan íslands-
meistarar,“ sagði
Ágúst Björgvins-
son, þjálfari
kvennaliðs Hauka
en Haukar hafa
aldrei áður komist
í lokaúrslit kvenna.
Megan gerir
lítiðífyrri
hálfleik
Það hefur vakið athygli
að Megan Mahoney, sem
hefur skorað 22 stig og tekið
13,5 fráköst að meðaltali í
fyrstu tveimur leikjum
Hauka og ÍS í undanúrslit-
um Iceland Express-deildar
kvenna, gerir lítið í
fyrri hálfleik leikj-
anna. Mahoney
hefur þannig
skorað 31 af 44
stigum sínum, tek-
ið 14 af 27 fráköst-
um, fiskað 10 af 12
villum og gefið 6
af 7 stoðsending-
um sínum í seinni
hálfleik. Það er
líka mikill munur á skotnýt-
ingunni, hún hefur nýtt 30%
skota sinna (20/6) í fyrri
hálfleik en 56% skotanna
(16/9) eftirhlé.
Haukastúlkur og stúdínur spila í kvöld úrslitaleik um hvort liðið kemst í
úrslitaeinvígi Ieeland Express-deildar kvenna í körfubolta. Báðir þjálfarar
liðanna, Ágúst Björgvinsson hjá Haukum og ívar Ásgrímsson hjá ÍS, leggja
áherslu á að hugarfar leikmannanna skipti öllu máli.
Málin rædd IvarÁsgríms-
son, þjálfari ls, talar við cióm■
arnnn Kristin Óskaisson.
! Mikilvægar i kvöld í>oö mun
mikið mæða a þoim Aíariu Conlon
hjú !S og Helenu Sverrisaottui hja
Haukum ileiknum i kvöid
Deildarmeistarar Hauka og bikarmeistarar ÍS spila í kvöld
úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um íslandsmeistaratitil
kvenna í körfubolta en sigurvegari leiksins á Ásvöllum mætir í
lokaúrslitunum íslandsmeisturum þriggja síðustu ára, Keflavík.
Stúdínur hafa unnið 10 af 13 leikjum sínum síðan Maria Con-
lon kom til liðsins en til þess að komast í úrslitin þarf liðið að
binda enda á tíu leikja sigurgöngu Hauka áÁsvöllum.
„Við höfum verið að undirbúa
okkur í vetur fyrir að fá að spila leik
eins og þennan. Við lögðum upp
með að vinna deildina til að fá
þessa stóru leiki á heimavöll okkar
á Ásvöllum þar sem við höfðum
ekki tapað síðan í október," segir
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hauka
sem unnu fyrsta leikinn gejjn ÍS,
76-66, á heimavelli sínum á Asvöll-
um en ÍS vann síðan annan leikinn
með 12 stigum, 83-71 á heimavelli
sínum. Kollegi hans hjá ÍS er
einnig spenntur fyrir leiknum.
Undir okkur sjálfum komið
„Við spiluðum mjög vel í síð-
asta leik og munum bara byggja á
þeim leik. Við ætlum að halda
áfram að spila sömu vörn og svo
kemur sóknin bara með því. Þetta
er undir okkur sjálfum komið,"
segir ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS
sem er kominn með lið sitt á
Ásvelli þar sem ÍS hefur tapað öll-
um þremur leikjum sínum í vetur.
„Auðvitað skiptir heimavöllur-inn
máli en hann skiptir samt minna
máli en f fyrsta leiknum. Þetta er
orðinn eins og bikarleikur og við
erum vanar því að vera með 10
áhorfendur og alla hina á móti
okkur og það hvort sem er á
heimavelli eða útivelli," segir ívar.
Leggja áherslu á vörnina
Báðir þjálfarar leggja áherslu á
vömina í kvöld. „Vömin hefur verið
aðalsmerki Haukaliðsins í vetur,
allur sóknarleikur okkar byggist á því
að við spilum góða vöm og náum að
stjóma hraðanum. Við vorum ekki
að spila nægilega góða vöm í síðasta
leik," segir Ágúst en fvar var hins
vegar sáttur með vömina í þeim leik.
„Við spiluðum vömina okkar vel
allan leikinn en ekki hluta hans eins
og í fyrsta leiknum. Við leggjum upp
með okkar vamarleik og láta síðan
sóknina vinna áfram á óeigingjaman
hátt. Við eigum líka þær Stellu (Rún
Kristjánsdóttur) og Signýju (Her-
mannsdóttur) inni sóknarlega að
mínu mati og mér finnst því mitt lið
eiga töluvert inni," segir fvar Ás-
grímsson sem hefur áður komið ÍS-
liðinu í lokaúrslitin 2002 og 2004.
Maria spilar þennan leik
„Maria spilar þennan leik enda er
þetta jaxl en það er ljóst að hún
verður ekki 100%. Það var svolítið lán
í óláni að það skyldi vera hlé milli
leikja út af meiðslum Mariu," segir
ívar um meiðsli bandaríska leik-
manns ÍS, Mariu Conlon, en kollegi
hans er ekkert að velta fyrir sér stöð-
unni á henni. „Ég hef ekki hugmynd
með stöðuna á Mariu Conlon og ég
er ekkert að hugsa um það. Ég er
mest að hugsa um hvað okkar stelp-
ur geta gert til þess að spila betur. Við
þurfum bara að hugsa um okkur,
þurfum að koma einbeittar og
hungraðar til þess að komast alla leið
í úrslitaleikinn," segir Ágúst sem
ætlar lfka með sínar stelpur í lokaúr-
slitin í fyrsta skiptið. „Við höfum gert
alveg ótrúlega margt í vetur sem
hefur ekki komið fyrir áður, við spil-
uðum í Evrópukeppninni, unnum
Fyrirtækjabikarinn, yrðum deildar-
meistarar og nú ætlum við í úrslitin í
fyrsta skipti."
Ætlum í úrsiit og að vinna titil-
inn
„Við þurfum bara að gera það
sem við höfum verið að gera í vetur,
ekkert meira né minna en það. Þetta
er úrslitaleikur og það getur vissu-
lega allt gerst en við erum ekki að
mæta á okkar á eigin heimavöll til
þess að tapa. Við komum í leikinn
með fullt sjálfstraust, ætlum okkur í
úrslit og að vinna íslandsmeistaratit-
ilinn," segir Ágúst og ívar er sam-
mála honum að allt geti gerst í kvöld.
„Það er mikið í boði og það eru allir
famir að bíða eftir þessum leik. Það
getur allt gerst en við erum í góðu
standi og stelpumar sýndu það á
laugardaginn að þær em í hörku gír
en þetta er núna bara spuming um
hugarfar," segirívar. ooj@dv.is
HAUKAR-ÍS1-1
Stig: TS +2 (149-147)
3ja ytiga körfun Jafnt(12-12)
Fráköst Haukar+10 (92-82)
StÍgftábeÍdr ’fs^Ss (53-28)
Hrateupffrag^aular+IOOnBl)
Hæsta framlag:
Megan Mahoney Haukar 29,0
Marla Conlon___________1S23,0
SÍgnýHermannscióttÍr^^lS 19fl
HelgaÞorvaldsdóSr^^^M^5
Lovisa A Guðmundsdóttir IS 10.0
Flest stig:
Megan Mahoney Haukar 44
Maria Conlon IS 41
HelgaÞonraldsdóttir IS 27
Pálfna M Gunnlaugsdóttir Haukar 21
Flest fráköst:
Megan Mahoney Haukar 27
Helena Sverrisdóttir Haukar 21
Signý Hermannsdóttir h
Flestar stoðsendingar:
Helena Sverrisdóttir Haukar 11
MariaConlon iS 9
Flestar 3ja stiga körfur:
Helga Þorvaldsdóttir (S 7
Stella Rún Kristjánsdóttir IS 3
Pálína Gunnlaugsdóttir Haukar 3
Svono eigið þið að gero
þetta! Ágúst Björgvinsson,
þjálfari Hauka, stvrirsínu liði