Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2006, Side 15
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 15
Ótrúlegt klúður SamuelEto'o
gerði sjaldséð mistök gegn Benfica
er hann klúðraði upplögðu mark-
tækifæri.
Nordic Photos/AFP
Hefði átt að skora Mark
van Bommel reynir hér að
skora fram hjá Moretti,
markverði Benfíca, en hitti
i ekki markið.
Nordic Photos/AFP
Skallaeinvígi Fé-
I Skallaeinvígi Fé-
ílagarnirog land-
arnir Patrick Vieira
logThierryHenry
fara upp i skalla-
einvfgi í leik
Arsenal og Juvent-
us i gær.
DV-mynd Reuters
Henry frábær Thierry
gerði engin mistök þegar
hann skoraði annað mark
Arsenal gegn Juventus íga
Nordic Photos/AFP
Cesc Fabregas Skoraði stórgott
mark í fyrri hálflleik fyrirArsenal
gegn Juventus. Hann lagði svo
uppannað mark Arsenal.
Fjórðungsúrslit Meistaradeildar Evrópu hófust í gær með tveim-
ur leikjum. Aðeins eitt af liðunum fjórum sem léku í gær tókst
að skora mark og voru leikmenn Arsenal þar að verki. En
hvorki Barcelona né Benfica tókst að skora í Lissabon þrátt fyrir
að hafa fengið ótal tækifæri til þess.
Arsenal á sigurbraut
Leikmenn Arsenal sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir tóku á
móti Patrick Vieira og félögum í Juventus á Highbury. Þeir gjörsam-
lega yfirspiluðu lið Juventus sem sá aldrei til sólar. Cesc Fabregas
og Thierry Henry voru í aðalhlutverkum í leiknum og lögðu upp
mörk hvor fyrir annan. Tveir leikmenn Juventus fengu að líta rauða
spjaldið undir lok leiksins. í Lissabon lauk leik Benfíca og
Barcelona án marka þrátt fyrir aragrúa tækifæra.
Fyrri hálfleikur leiks Arsenal og
Juventus var ekki mikið fyrir augað
þar til fyrsta markið leit dagsins ljós.
Leikmönnum beggja liða gekk afskap-
lega illa að skapa færi og bauð því leik-
urinn upp á lítið annað en miðjumoð.
Thierry Henry var aðalmaðurinn í
sóknarleik Arsenal og skapaðist oft
hætta þegar hann var með boltann.
Það var hann sem gaf eitraða send-
ingu á Fabregas sem náði að koma
Buffon markverði Juventus úr jafn-
vægi með skoti sínu. Heimamönnum
var mikið létt enda mikilvægt mark.
Aðeins mínútu síðar fékk Henry
gott færi þar sem boltinn hefði hæg-
lega getað endað í marld Juventus. ör-
skömmu síðar var svo Alexander Hleb
nálægt því að sleppa í gegnum vörn
Juventus. Greinilegt er að mark Fabre-
gas var búið að opna leikinn upp á
gátt.
Frábærir taktar
Síðari hálfleikur hófst á sams konar
nótum og sá síðari hafði endað á.
Arsenal-menn höfðu undirtökin í
leilcnum og átti til að mynda Thierry
Henry gott skot að marki sem Buffon
varði vel. En hafi fyrri hálfleikur verið
rólegur var allt annað uppi á teningn-
um í þeim síðari. Og annað mark
Arsenal var fyllilega verðskuldað. Hleb
átti þá frábæra stungusendingu á
Fabregas sem var afar óeigingjam og
renndi boltanum á Henry sem skoraði
í autt markið.
Tvö rauð spjöld
Til að bæta gráu ofan á svart fengu
miðjumennimir Camoranesi og Vieira
báðir gult spjald í leiknum sem þýðir
að þeir verða báðir í banni í seinni leik
liðanna á San Siro. Ljóst er að án
þeirra verður róður Juventus þungur,
jafnvel þótt þeir ítölsku verði á heima-
velli. Undir lok leiksins fékk svo
Cameronesi sitt annað gula spjald fyr-
ir að brjóta á Robin van Persie og'fékk
því að líta rauða spjaldið. Aðeins mín-
útu síðar fékk Jonathan Zebina einnig
að líta sitt annað gula spjald, fyrir brot
á Henry, og því luku þeir ítölsku leik-
num með níu menn á vellinum.
Misnotuð
tækifæri
Þrátt fyrir að
hafa fengið
næg tækifæri í
fyrri hálfleik
tókst leik-
mönnum
Barcelona ekki
að skora gegn
Benfica í Lissa-
bon. Þar var Mor-
etto, markvörður Ben-
fica, í
hjá markinu.
Börsungar héldu uppteknum hætti
í síðari hálfleik og var þá komið að Sví-
anum Henrik Larsson. Hann fékk
boltann inn fyrir vörn Benfica en
skaut í stöng. Skömmu síðar átti
Motta skalla í stöng eftir hornspyrnu
Ronaldinho.
Galopinn leikur
En leikmenn Benfica vom ekki
dauðir úr öllum æðum. Miccoli komst
einn inn fyrir vörn Börsunga en lét
Valdes verja frá sér. Boltinn barst þá á
Geovanni sem átti að gera betur er
hann skaut í varnarmann Barcelona.
Leikurinn var á þessum tímapunkti
orðinn galopinn en sem fyrr voru það
Börsungar sem sóttu hvað mest. Van
Bommel og Ronaldinho áttu báðir góð
skot að marki en sem fyrr tókst þeim
ekki að skila boltanum í netið.
En leikmenn Benfica hefðu átt að
fá vítaspyrnu þegar skotið var í hönd
varnarmanns Barcelona. En Stephen
Bennett, dómari leiksins, missti af at-
vikinu og var því ekkert dæmt.
Þrátt fyrir ótal færi tókst leik-
mönnum liðanna ekki að skora og
verður lið Barcelona að teljast ansi
sigurstranglegt þegar liðin hittast
aftur á Nou Camp.
eirikurst@dv.is
aðal-
hlut-
verki en ‘P
tvívegis ’
varði hann
frá Börsungum í nánast opnu
færi. Litlu mátti muna að Moretti
yrði að skúrki þegar hann gerði sig
sekan um stór mistök í lok fyrri hálf-
leiks. Ætlaði hann þá að senda á varn-
armann Benfica en van Bommel
komst inn í lélega sendinguna og fór
klaufalega að þegar hann skaut fram
Úrslitin í gær
BArsenal-Juventus 2-OÍ
I o i, vsc 1 (40 ), 0 Thien y i iemy (ó9 )
R.iiiú ••pjóld Juvónius: (89.) ( aineionesi (87,), /chiu.i
BBenfica-Barcelona o-oi
Leikir kvöldsins
BLyon-AC Milan 19.45®
MEISTARADEILDIN