Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2006, Blaðsíða 31
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 31
Spurning dagsins
Uppáhaldssjónvarpsmaður?
Ofurhugi
„Það hlýtur að vera Ofurhugi því hannersvo ofur.‘
Elfar Þór Guðbjartsson söngvari.
„Ætliþað
sé ekki Sveppi."
Stefán
Magnússon
matreiðslu-
maður.
Hemmi
Gunn en hann
erbúinn að vera
lengi í
bransanum."
Svavar Helgi
Jakobsson
bílstjóri. .
„Hemmi
Gunn. öll lögin
hans og þáttur
eru svo
skemmtileg."
EinarM.
Sigurðsson
verslunar-
maður.
Ir
f „tg myndi
segja Þórhallurí
Kastljósi."
Bjarki
Borgþórsson
Ömmiogölið
Árni Guðmunds-
son, æskulýðs- og
tómstundafull-
trúi og formaður
Starfsmannafélags
Hafnarfj arðar, hefur enn eina
ferðina skrifað ríkissaksókn-
ara bréf til að vekja athygli á
áfengisauglýsingum en þær
eru sem kunnugt er bannað-
ar lögum samkvæmt. Nýlega
komst Héraðsdómur Reykja-
víkur að því að auglýsing-
ar af þessu tagi stæðust lög.
Bjórsalar skjóta sér yfirleitt
framhjá banninu með þvi að
hafa einhvers staðar agnar-
smátt letur þar sem segir
að bjórinn sem auglýstur er
sé ekki til sölu. Á þetta ein-
blína dómstólar.
Skyldur við eigin
pyngju
Að undanförnu hef-
ur það hins veg-
ar þráfaldlega
gerst að auglýs-
ingar eru ekki
auðkenndar með
þessum hætti og
verður það að flokk-
ast undir óendanlegan
vesaldóm dómsmálayfirvalda að
láta þetta framferði óátalið. Þá
verður það að segjast að virð-
ing fólks fyrir dómstólunum
vex ekki af sýknudómum á
þessu sviði. Enginn virð-
ist hafa manndóm í sér til
að axla ábyrgð. Fjölmiðl-
arnir, þar með talið Rík-
isútvarpið, auglýsa þvert
á lögin, að ekki sé minnst
á anda laganna. Þessir fjöl-
miðlar telja sig greinilega
hafa meiri skyldur
við eigin pyngju en
gagnvart áhorfend-
um og les-
endum, að
ógleymd-
um
lands-
lögun-
um.
Ég virði
sjón-
armið þeirra sem
vilja breyta lögun-
um og heimila aug-
lýsingar. Ég er ein-
faldlega ósammála
þeim. Hina virði ég ekki sem
hafa lögin að engu.
Meðfylgjandi er bréf
Árna Guðmundssonar.
Ágæti ríkissaksóknari
Tel það borgaralega skyldu
mina að vekja athygli yðar
á meðfylgjandi heilsíðu
áfengisauglýsingu frá Öl-
gerð Egils Skallagrims-
sonar sem birtist í tima-
ritinu Birtu 25. mars á
síðu 57. Vek einnig athygli
embættisins á að í Frétta-
blaðinu ( m.a. á forsíðu og
baksíðu blaðsins 25.mars)
auglýsir fyrirtækið HÓB
Faxe bjór eins og skilmerki-
lega kemur fram á mynd
í auglýsingunni Fáxe -
Danish lager beer Sam-
kvæmt íslenskum lögum
og út frá velferðarsjónar-
miðum um vernd barna
og ungmenna eiga þau
rétt til þess að vera laus við
áreiti af þessum toga. í þeim
tilfellum sem hér eru tíunduð er
um einlægan brotavilja
og ásetning að ræða.
Semforeldri og al-
mennur borgari í
þessu landi geri
ég kröfu um að
sú vernd sem
lög um bann við
áfengisauglýs-
ingum á að veita
börnum og ungl-
ingum sé virt. Svo er
ekki og
því er nauðsyn-
legt fyrir yður
að grípa til
þeirra úrræða
sem emhættið
hefur gagnvart
lögbrotum.
Virðingarfyllst,
Árni Guð-
mundsson
Ögmundur Jónasson alþingismaður skrifar á ogmundur.is
Didda segir það engu skipta hvernig vedur er á Islandi
Letingjar tala um veður
Allt líf þrífst vel í yl, allt, og það þarf skuggalega bjart-
sýni fyrir líf að þrífast við óblíðar aðstæður, og stundum
held ég bara að veðurnöldrararnir fari ekki nægilega mik-
ið út, eða réttara sagt, til kaldari svæða til þess að komast
að því að þessi eyja er ekki sú alversta veðurfarslega séð.
Mig grunar að það sé aðallega frekar latt fólk sem þyk-
ist eiga eitthvað inni hjá veðrinu, það er ekki nóg með að
það nennir ekki út af því að aðstæðurnar eru ekki eins
og það vill hafa þær, heldur dettur því líka í hug að þusa
um vonbrigði sín, og svo misskilur það algerlega sólina
og heimtar að hún sé alltaf heit ef hún sést.
En málið er að mörg
okkar eru orðin svo
veðuraum af því að
sitja inni í upphituð-
um, bólstruðum öku-
tækjum og kunnum
ekki lágmarksaðferðir
við að komast af í veð-
urflórunni. Við verðum
bara úti um leið og það
drepst á bílnum.
Færö á vegum C1777
Veðurstöövar C1779
Kja
Eitt er það sem fólk
heldur að það hafl eitt-
hvað að segja um, en
það er veðrið, þó svo að
veðrinu gæti ekki ver-
ið meira sama um hvað
þessu mannkyni gæti
hugsanlega fundist um
þess art og uppátæki.
Veðurfréttirnar eru
nefnilega alveg jafn vin-
sælt efni í fjölmiölum í
sólríkum löndum. Þeg-
ar ég var á Kúbu var veð-
urfræðingurinn kyntákn
og konurnar stundu
þegar hann birtist og
tilkynnti um einn sól-
ardaginn enn og stöku
síðdegisskúr. En þegar
fellibyljatímabilið gekk
yfir urðu veðurfréttirnar
svo spennandi að meira
að segja lét Castro sjá sig við kortið og taldi kjark í þá sem
hræddir voru við ylmjúkan storminn. Á Jamaika, sem
er töluvert minni eyja en ísland (er raunar aðeins klett-
ur í hafinu og gengur líka undir því nafni meðal heima-
manna) er líka töluverð spenna fylgjandi veðurfréttum,
þó svo að maður eigi bágt með að skilja afhverju, því það
rignir annað hvort öðrum megin á eyjunni eða hinum
megin.
Og þannig er það og var og
verður áfram, alveg eins og hér,
annað hvort er þetta skárra en
verra eða verra en skást. Þess
vegna er það hrein snilld að
fylgjast með fólki rífast um það
hvort það er kalt, ekki kalt, eða
gott eða vont veður, hvort það
hafi verið sól eða hvort það
hafi ekki gefið glennu. Is-
lendingar eru nefnilega
flestir klæddir eins og sól-
arlandabúar, svo að það
virðist ekki skipta einu ein-
asta máli hvort veðrið er
einhvernveginn öðruvísi
en það er fyrir utan höf-
uð þessa fólks.
f