Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 Fréttir DV Baugurog Matas í eina sæng? Eigendur heilsukeðj- unnar Matas í Danmörku munu á morgun, sunnudag, taka afstöðu til þess hvort þeir vilji selja fyrirtækið. Baugur Group hefur lagt fram tilboð um samvinnu við Matas. í Berlingske Ti- dende er haft eftir Skarp- héðni Berg Steinarssyni for- stjóra fjárfestinga Baugs á Norðurlöndum að þeir hafi sent stjórn Matas bréf þar sem þeir viðra hugmyndir sínar um samstarf og með hvaða hætti Baugur gæti komið inn í Matas-keðjuna. Hnallþórurog karlakór Sönghópurinn Sandló- ur og karlakórinn Lóuþræll halda tónleika í Félags- heimilinu á Hvammstanga í kvöld. Eru norðanmenn þekktir fyrir frábært söng- fólk og verður væntanlega skemmtileg og fjölbreytt dagskrá. Lóuþræll hefur haldið fjölda tónleika víða um landið við góðan orð- stír. Ekki verða gestir svikn- ir af að fara á tónleikana því að þeim loknum verður mikil hnallþóruveisla. I Fengu leyfi fyrir sinu- bruna Bændumir Jón Björns- son á Deildartungu og Haukur Engilbertsson á Vatnsenda fengu leyfi hjá Lögreglunni í Borgarnesi að brenna sinu. Segir lögregian að sinueldurinn sem þeir kveiktu hafi síðan farið úr böndunum og ekki hægt að hemja hann fyrr en slökkvi- lið undir stjórn Péturs Jóns- sonar slökkviliðsstjóra var kallað út. Þessir sinubrun- ar tengjast þó ekki sinu- brunanum mikla á Mýrum í Borgarfirði sem var mun meiri og hættulegri. Ingi Þór Kjartansson, tónlistarmaður og nemi í tónvinnsluskóla Þorvalds Bjarna Þor- valdssonar, var dæmdur í gær í sekt í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft 13 kannabisplöntur heima hjá sér. Ingi Þór sem er í hljómsveitinni Reykjavík Swing Or- chestra segir að hann hafi ætlað að selja gras til þess að borga skólagjöldin. „Ég hef örugglega lagt meira inn í samfélagsbankann en margir aðrir," segir Ingi Þór en hann hefur aldrei verið dæmdur áður fyr- ir ólöglegt athæfi. í gær var hann dæmdur í Héraðsdómi Reykja- víkur fyrir að hafa haft undir höndum 13 kannabisplöntur og 137 grömm af kannabislaufum. Ingi Þór Kjartansson var ákærður fyrir að hafa haft 13 kannabisplönt- ur heima hjá sér en hann segir að þær hafi fundist þegar lögreglan hafi komið heim til hans vegna partíláta. Lögreglan fann kannabisið og 137 grömm af kannabislaufum en þau innihalda að sögn Inga ekki vímu- efnið sem kannabis inniheldur. Dýrt nám „Ég ætlaði að selja efnin með- al annars til þess að framfleyta mér í skólanum," segir Ingi Þór en önnin í skólanum hjá Þorvaldi Bjarna kostar allt upp f 319 þúsund krónur og tek- ur námið fjóra mánuði. Hann stefnir einnig á nám erlendis og segir að það muni kosta þó nokkuð og kannabis- salan hefði getað orðið fín búbót. Tónlistarmaður og kannabisræktandi Ingi Þór hefur aldrei verið dæmd- ur áður og lítur á sig sem góðan og gildan samfélagsþegn. Hann tek- ur þó undir að það sé heldur óhefð- bundin leið að rækta kannabis til þess að borga skólagjöldin. „Við erum að fara hita upp fyr- ir Roni Size," segir Ingi en hann er í rafhljómsveitinni Reykjavík Swing Orhcestra og að hans sögn gengur þeim nokkuð vel. Telauf eða kannabislauf Ingi Þór var ósáttur við að vera ákærður fyrir kannabislaufln, „þú gætir notað þau í súpu án þess að finna áhrifin," svaraði Ingi í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær þegar dóm- arinn spurði hvort það sem fannst heima hjá honum hafl verið telauf eða kanna- Jp bislauf. Engin rannsókn B lá fyrir um að laufin K innihéldu virk fíkniefni. 1 Verjandi Inga, Sigríð- H ur Rut Júlíusdóttir benti því á að ótækt væri að sakfella hann fyrir þann hluta. Niðurstaðan varð sú að ’ Ingi þór var dæmdur í 150 þúsund króna sekt og er hon- um frjálst að taka hana útí sam- félagsþjónustu hvers konar en hann verður að finna A upp á nýrri leið til þess að fjármagna nám- j/k vatur@dv.is Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson skólastjóri Ein önn geturkostaö rúmlega 300 þúsund krónur. Ingi þór Kjartansson Ætlaði að borga nám með kannabissölu. Tapaði skaðabótamáli vegna gæsluvarðhalds Lögreglan sendist með hass frá Nepal Jón Óskar Júlíusson tapaði í gær ellefu milljóna króna skaðabótamáli sem hann höfðaði á hendur ríkinu vegna viku gæsluvarðhaldsúrskurð- ar sem hann sætti í febrúar 2004. Forsaga málsins er sú að í byrjun febrúar barst til landsins paldd frá Nepal. Sendandi pakkans var skráð- ur á nafninu Nara Bahadur Pun, Kal- ankhi Kulehwor Height, Katmandú í byrjun febrúar 2004 og í ljós kom að palddnn innihélt skrautmuni og inn- an í þeim var hass. Lögreglan fann út að pakldnn átti að fara heim til Jóns Óskars Júlíussonar en í ljós kom að hann var fluttur frá því heimilsfangi sem pakkinn átti að fara. Lögreglan hafði upp á Jóni Óskari með erfiðismunum og var lögreglu- maður látinn dulbúast sem DHL sendill og látinn færa Jóni pakkann. Jón tók við pakkanum og var í kjölfarið hnepptur í gæsluvarðhald meðal annars vegna þess að í pakk- anum var hlerunarbúnaður og taldi lögreglan að hann vissi af hassinu samkvæmt þeim upptökum. Jón Óskar var í viku í gæsluvarð- haldi en hann var aldrei ákærður vegna málsins út af ófullnægjandi sönnunargögn- um. Jón sagði að hann kann- ss Töluvert af hassi fannst í skrautmun- Ég er nýkominn frá Bandaríkjunum en þangað fór ég til að ná iprófgráður mínar í ferða- máiafræðum," segir Karl Hjaltested fyrrverandi vert á Grand Rokk. „Annars iiggur ekkert á hjá mér, ég er að slappa afþessa dagana enda atvinnulaus." aðist ekki við pakkann og hafl á I þeim tíma haldið að hann væri ■ frá systur sinni í Bandaríkjun- I um vegna þess að hann átti af- mæli skömmu síðar. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu að vinnubrögð lögreglunn- ar hafi ekki verið aðfinnsluverð né gæsluvarðhaldsúrskurðurinn vegna þess að Jón hafði áður komið við sögu vegna fíkniefnamisferlis. Einnig var rannsókn á þeim tíma á frumstigi og tryggja þurfti að Jón myndi ekki raska rannsókninni á nokkurn hátt. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af skaðabótakröfu Jóns Óskars upp á á 11 milljónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.