Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Side 11
DV Fréttir LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 11 Útsala á Carlsberg í tilefni af þv í að 150 ár eru liðin frá fæðingu Gustavs Carlsberg, stofn- anda brugghússins fræga, verður ÁTVR með útsölu á Carlsberg-bjór á öllum sölustöðum sínum í dag. Kippa með sex bjórum verður seld á 600 krónur eða hundrað krónur dós- in. Bent er á að útsölustað- ur ÁTVR í Smáralind verður opin til klukkan 20 í kvöld vegna þessa. Suðrænt skólastarf Undafarnar vikur hafa allir nemendur Grunn- skólans í Hveragerði feng- ið ávexti og grænmeti einu sinni á dag. Hafa krakkamir tekið þessu vel enda alvön slíku fæði úr gróðurhúsum bæjarsins. Markmiðið er að sjálfsögðu að ala upp betri og hraust- ari æsku en umsjón- armenn ávaxta- átaksins eru þær Guðbjörg Bjöms- dóttir og Sigþrúður Sæmunds- dóttir. Draugasetur vill afslátt Forráðamenn Drauga- setursins á Stokkseyri hafa farið fram á að fá fasteigna- gjöld niðurfelld. Bæjar- stjórn Árborgar fjaliaði um málið á síðasta fundi sín- um og ákvað að fela Einari Njáls- syni bæjar- Nú eru orðin að veruleika samtök sem munu starfa fyrir fórnarlömb kynferðisofbeldis á Vestfjörðum. Bryndís Friðgeirsdóttir svæðisfulltrúi Rauða kross íslands á VestQörð- um segir að undirbúningur fyrir stofnun samtakanna hafi staðið yfir í eitt ár. Bryndís segir að brýn þörf sé á úrræðum fyrir fólk á Vestfjörðum sem lent hefur í kynferðislegu ofbeldi því hingað til hefur fólk þurft að fara til Stígamóta í Reykjavík. varðar kynferðisofbeldisglæpi Einstaklingum sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi á Vest- fjörðum hefur verið vísað til Stígamóta í Reykjavík vilji þeir vinna í sínum málum og fá stuðning til þess. Bryndís Friðgeirsdóttír svæðisstjóri Rauða krossins á Vestfjörðum segir að Rauði kross- inn á ísafirði hafi fengið margar fyrirspurnir frá þolendum kyn- ferðisglæpa sem vita ekki hvert þeir eigi að snúa sér til að fá að- stoð í sínum málum. Segir Bryndís að í kringum páska hefji fyrstí sjálfshjálparhópurinn störf á ísafirði. „Vestfirðir skera sig ekki frá öðr- um landshlutum hvað varðar kyn- ferðisofbeldisglæpi og hingað til hafa læknar á fsafirði bent fólki á að fara til Reykjavíkur til að fá stuðn- ing og aðstoð í sínum málum," seg- ir Bryndís. „Við hjá Rauða krossinum höftún fengið fjölda fyrirspurna frá fórnarlömbum kynferðisofbeldis um hvað þau geti gert í sínum málum og tekin var sú ákvörðun fyrir ári síðan að leita til Stígamóta til að fá aðstoð við að koma upp sjálfshjálparhópum hér á ísafirði," segir Bryndís. Húsiö sem Rauði Kross fslands á (safirði hefur aðstöðu í. Rauði Krossinn býður samtökunum, sem hjálpa fóiki sem lent hefur í kynferðisofbeldi, upp á ókeypis húsnæði. Neyðarsími fyrir fórnarlömb „Þrjár manneskjur frá fsafirði eru búnar að vera í þjálfun hjá Stígamót- um og núna eru þær komnar til baka til að takast á við það verkefni að veita fórnarlömbum kynferðisglæpa stuðning og aðstoð til að ná sér eft- ir það áfalll sem því fylgir að verða fyrir svona hrottalegu ofbeldi," seg- ir Bryndís. Hún segir að fómarlömb geti hringt í neyðarsímanúmerið 864 8 864 sem er opið allan sólarhring- inn tif að fá ráðgjöf og í kjölfar þess er fólk boðað í viðtal hjá fagfólki sem kann að sinna svona viðkvæmum málum. „Það er fagfólk á vegum Skóla -og fjölskylduskrifstofu Isafjarðarbæjar sem mun sinna fólkinu og svo getum við ekkert gert án þeirra sem hafa persónulega reynslu af kynferðisof- beldi og munu nokkrir einstaklingar með þessa vondu reynslu starfa með okkur enda munu þeir vera sérfræð- ingarnir í hópnum," segir Bryndís. Vont að svona mál séu til „Það er vont að fólk þurfi á svona aðstoð að halda en því miður koma svona mál upp jafnt hér sem ann- ars staðar," segir Halldór Halldórs- son bæjarstjóri ísafjarðar. „Ef fólk- ið okkar hér þarf á þessari þjónustu að halda þá viljum við gera allt sem við getum til að svo geti orðið," seg- ir Halldór. Hann segir að á bæjar- stjórnarfundi um dagirm hafi þetta mál verið tekið fyrir og verið sé að skoða hvernig bæjarfélagið kemur inn í þetta samstarf. Bryndís Friðgeirsdóttir svæðisfulltrúi Rauða kross- ins á Vestfjörðum segir að Rauði krossinn sé nú þeg- ar búinn að útvega sam- tökunum húsnæði fyrir sitt starf ókeypis og hún segir að hún treysti á gott fólk til að veita samtökun- um fjárhagslegan stuðn- ing. „Ég hef ekki áhyggj- ur af því að það takist ekki, þetta er mál sem varðar alla og við munum örugglega fá þann stuðning sem við þurf- um," segir Bryndís. Fólk þarf að vinna í sínum málum „Fólk er að átta sig meira á því að það er hægt að vinna í málum sem eru gömul og sér því leið út úr van- h'ðan sinni," segir Bryndís. Hún seg- ir að öll fjölmiðlaumræða um þessi mál skipti miklu máli og hafi í mörg- um tilfellum hvatt fólk til að gera eitt- hvað í sínum málum. „Ef margir leita til okkar vegna kynferðisofbeldis þá viljum við skipta fólki í hópa þannig að sérhópur sé fyrir þá sem lentu í kynferðisofbeldi sem börn, sérhópur fyr- ir þá sem hafa lent í því að vera nauðgað og sérhóp- ur fyrir karl- menn," segir Bryndís að lokum og er bjartsýn á að þessi samtök muni hjálpa mörgum í ná- inni framtíð. Halldór Halldórsson bæjarstjóri á fsafirði „Það er vontað fólk þurfi á svona aðstoð að halda en þvi miður koma svona mál upp“ Islenskum prestum ekki vel við særingar Tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Múrinn fellur Hafið er niðurrif á múr- vegg sem umlukið hef- ur ættarsetur Nordalana á Baldursgötu um áratuga- skeið. Jón Ólafsson athafna- maður festi kaup á húsinu og lætur nú rífa múrvegg- inn þannig að koma megi fyrir bílskúr í garðinum. Er sjónarsviptir af múrveggn- um sem lengi hefur verið ein helsta prýði gatnamót- anna þar sem Baldursgata og Freyjugata skerast í 101. Fyrirlestur um særingar „Mig minnir að ég hafi lesið um að særing hefði verið flutt í gegn- um síma," segir Einar G. Pétmsson, doktor í íslenskum fræðum. Ein- ar heldur fyrirlestur um særingar í Sögufélaginu í Fischersundi næst- komandi þriðjudagskvöld á vegum Þjóðmenningarfélags íslands. „Ég mun fjalla um særingar til varnar sjúkdómum, alls konar meinvætt- um og ásóknum illra anda. Særingar voru aðallega fluttar af almenningi á íslandi til að mynda til að vernda móður og barn við fæðingu og þeg- ar fólk skar sig." Pétur segir að prest- um hafi ekki verið sérstaklega vel við særingar af þessu tagi, eins og ætla má af bandarískum bíómynd- um. Pétur skrifaði fyrst um særing- ar í ritröðinni íslensk þjóðmenning árið 1989, „en síðan þá hef ég kom- ist að raun um margt fleira." Særing úr íslensku handriti frá 16. öld segir, „Stöðvist blóð þeim er blæðir, blóð féll af guðsróðu, almátigur beið ótta, önd þeir sárliga píndu, stattu fyrir dyr þar er dreyrir, dreyri guðs sona heyri, undalögur þar er ægir fyrir oss varstu píndur á krossi." „Eg veit ekki hvort særingar séu enn fluttar á ís- landi," segir Pétur að lokum. Handrukkaði vin sinn og dæmdur í fangelsi Karl Elíasson var dæmdur í gær í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás sem átti sér stað í nóvember 2004. Honum er einnig gert að greiða fórnar- lambinu, Kristjáni Þóri Ól- afssyni 300 þúsund krónur í skaðabætur. „Hann kom inn, hrinti mér niður og byrjaði að lesa yfir mér," segir Kristján en Karl og „skósveinn hans eins og Kristján orðaði það ruddust inn í íbúð hans, lömdu hann með hafnabolta- kylfu og tóku þó nokkra muni sem Kristján átti. Kristján segir að ástæða árásarinnar hafi verið sú að harm skuldaði Karli pening vegna fíkniefna. Hann segir hins vegar að það hafi verið einhvers kon- ar misskilningur vegna þess að þeir hafi oft gefið hvor öðrum fíkniefni án þess að rukka fyrir það. Karl var sýknaður af þeim hluta ákærunnar að hann hafi stolið munum frá Kristjáni en var sak- felldur fyrir stór- fellda líkamsárás og þarf að sitja í fangelsi í tvo mánuði fyrir vikið. vaiur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.