Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Page 16
16 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 Sport 0V Munarmikið um Sverri Þór Sverrir Þór Sverr- isson, sneri til baka í Keflavíkurliðið, eftir veikindi sem héldu honum frá öðrum leiknum í undanúr- slitaeinvfginu gegn Skallagrími sem Borgnesingar unnu með 18 stigum. Framlag Sverris Þórs sést sérstaklega í vöminni og hann átti góðan leik þótt hann kæmist ekki á blað og Skallagrímsliðið skoraði sem dæmi aðeins 16 stig á þeim rúmu 17 mínút- um sem hann spilaði. Kefla- vík vann þannig leikinn 45- 16 með Sverri Þór fremstan í pressunni gerandi bakvörð- um Borgnesinga llfið leitt. Níu sigrar í röð í lokaúrslitum Deildarmeistarar Hauka og íslandsmeistarar Kefla- víkur hefja í dag baráttuna um íslandsmeistaratitilinn í lokaúrslitum Iceland Ex- press-deildar kvenna í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 13.30 og fer fram á heimavelli Hauka á Ásvöll- um. Á meðan þetta er fyrsti leikur kvennaliðs Hauka í lokaúrslitum um íslands- meistaratitilinn þá er þetta sá fertugasti hjá Keflavíkur- liðinu sem hefur unnið alla níu leiki sína í úrslitum ís- landsmótsins síðustu þrjú tímabil. Megan óstöðv- andigegn Keflavík Haukaliðið hefur haft góð tök á Kefla- vík í vetur og hefur unnið síðustu fimm leiki liðanna, þar af þann síðasta með 43 stigum, 115-72, í Keflavík fyrir aðeins rúmum þremur vikum. Megan Ma- honey, bandaríski leikmaður Hauka, hefur verið gjörsam- lega óstöðvandi í þeim tveimur leikjum sem hún hefur spilað gegn íslands- meisturunum en í þeim hef- ur Megan skorað 38 stig, tek- ið 17 fráköst og gefið 7,5 stoðsendingar að meðaltali auk þess að hitta úr 58% skota sinna. Sagðirekki vilja kaupa Guðjón Samkvæmt frétt sem birt- ist á heimasíðu norska 1. deildarfélagsins Bodö/Glimt mun félagið hafa ákveðið að kaupa ekki Guð- jón Baldvinsson frá Stjömunni. Tilboð barst frá félaginu en Eysteinn Haraldsson, formað- ur meistaraflokksráðs fé- lagsins, sagði það ekki upp á marga fiska. Hann vildi þó ekki útiloka neitt og sagði að þetta væri „ekki búið fyrr en það væri búið“. Norski fé- lagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti í gær, eftir að DV fór í prentun. Keflavík setti stigamet í undanúrslitum úrslitakeppni karla í körfubolta með 50 stiga sigri, 129-79, á Skallagrími í þriðja leik liðanna á fimmtudagskvöldið. íslands- meistara Keflavíkur vantar nú aðeins einn sigur til þess að komast í lokaúrslitin fimmta árið í röð. Allir góðir Keflvlkingar áttu allirsem einn frábær- an leik iþriðja leiknum við Skallagrím. DV-mynd Heiða Keflvíkingar fóru illa með Skallagrím í þriðja undanúrslitaleik liðanna í Iceland Express-deild karla og unnu þar næststærsta sigur í sögu undanúrslitanna. íþróttahúsið á Sunnubrautinni hefur verið nefnt Sláturhúsið og ekki að ástæðulausu enda hafa fimm stærstu sigrar undanúrslita úrslitakeppni karla unnist í húsinu. Keflvíkingar léku frábærlega í vörn sem sókn í fyrrakvöld og skoruðu 30 stig eða meira í öllum fjórum leikhlutunum. Keflvíkingar kunna liða best að þriggjastigakörfuríleiknumen59% gjörsigra andstæðinga sína og það var ljóst á öllu í þriðja leiknum að leikmenn Keflavíkurhraðlestarinnar þurftu að sanna ýmislegt fyrir sér og Borgnesingum sem mættu kok- hraustir til leiksins eftir 18 stiga sig- ur í Borgamesi í leiknum á undan. Skallagrímsliðið hélt í við Keflavík- urliðið í fyrsta leikhluta en eftir 17 stig Keflavíkur í röð um miðjan ann- an leikhluta var leikurinn búinn. Keflavík skoraði meðal annars 19 Staersti sigur í undanúrslitum úrslitakeppni karla: +54 Keflavík á KR (1997, 113-59) +50 Keflavík á Skallagrím (2006,129-79) +48 Keflavík á Grindavík (2004,124-76) +44 Keflavík á Njarðvík (2003,108-64) +38 Keflavíká Njarðvík(1998,119-81) þriggja stiga skotanna og 92% vít- anna fóru rétta leið. Tók Axel algjörlega úr um- ferð Það virtist engu máli skipta hver var inni á, yfirburðir Keflvíkinga vom algjörir og einbeitingin 100% meðal allra tólf leikmanna liðsins. Sjö leikmenn skomðu meira en 10 stig og átta settu niður þriggja stiga skot. Það vakti að Sigurður Ingi- mundarson setti Elentínus Margeirsson inn í byrjunarlið- ið í fyrsta sinn í vetur og hann tók hetju Skallagríms frá því í öðrum leiknum, Axel Kárason, algjörlega úr umferð. Axel náði aðeins einu skoti gegn Elent- ínusi og skoraði ekki sín fyrstu stig fyrr lest stig i einum leik í undanúrslitum úrslitakeppni karla: 29 Keflavík gegn Skallagrími (129-79, 3. leik 2006) 24 Keflavík gegn Grindavik (124-76,4. leik 2004) _ 22 Keflavík gegn Grindavík (122-119, 3. leik 1999, 3 framlengingar) 21 Grindavík gegn Njarðvík (121-88, 3. leik 1997) _____________ en í fjórða leikhluta þegar Elentínus var löngu sestur á bekkinn ásamt öðmm byrjunarliðsmönnum Kefla- vfkurliðsins. Moye enginn meðalmaður Það væri hægt að eyða ófáum dálksenti- metrunum í hrós um A. J. Moye enda því- líkur sigurvegari á ferðinni. Það er ekki nóg með að hann skili frábæmm tölum í öllum leikjum heldur spilar hann frábæra vörn á alla mótherja hvort sem um ræðir 160 sm bakvörð eða 204 sm miðherja. Moye gerir líka það sem Nick Bradford gerði svo vel síðustu tvö tíma- bil, hann kveikir í Keflavíkur- liðinu með tilþrifum sem fær meira að segja elstu menn til þess að standa upp úr sætum sínum. Moye endaði leikinn með 37 stig og 13 fráköst á að- eins 29 mínútum þar sem að hann nýtti 68% skota sinna (19/13) og öll átta vítin. Guðjón með fjóra þrista á 9 mínútum Aðstoðarþjálfarinn, Guðjón Skúlason, átti skemmtilega inn- komu í leikinn. Guðjón kom fyrst inn á í lok annars leikhluta og eftir 23 sekúndur var hann búinn að setja niður þrist í hraðaupphlaupi. Guð- jón skoraði síðan þrjá þrista á aðeins tveimur mínútum eftir að hann snéri aftur inn í leikinn í fjórða leikhlutanum og endaði með 14 stig á aðeins 8 mínútum og 53 sekúndum. Þurfa að brjóta blað Næsti leikur fer fram í Borgarnesi á mánu- dagskvöldið og þar getur Skalla- grímsliðið brotið blað í sögu úrslita- keppninnar því ekkert lið hefur unnið næsta leik eftir að hafa tap- að með meira en 40 stigum í leiknum á und- an. Tap í næsta leik þýðir hins vegar sumarfrí hjá Borgnes- ingum. ooj@dv.is I Frábær í vörn og I sókn A. J. Moye skoraði 137 stig á 29 mínútum og hélt George Byrd í I aðeins 13 stigum. £ Varnarmaðurinn Gunnar Þór Gunnarsson samdi við Hammarby til þriggja ára GUNNARTIL HAMMARBY FYRIR13 MILLJÓNIR Varnarmaðurinn sterki úr röð- um Fram, Gunnar Þór Gunnarsson, hefur samið við sænska úrvals- deildarfélagið Hammarby til næstu þriggja ára. Gunnar hefur dvalið hjá liðinu undanfarna daga og fór með því í æfingaferð til Möltu en eins og DV sport greindi frá í vikunni var Fram þegar búið að samþykkja til- boð í Gunnar frá sænska félaginu. Var tilboðið gert með þeim fyrirvara að Hammarby vildi semja við Gunnar Þór en það var gert með þessum hætti þar sem sænski fé- lagaskiptaglugginn lokaði á mið- nætti í gærkvöldi. í gær ákváðu svo forráðamenn Hammarby að bjóða Gunnari Þór samning. Samkvæmt heimildum DV sports getur kaupverð Gunnars Þórs mest orðið 13 milljónir króna, en það fer eftir frammistöðu hans hjá ' liðinu. Þar að auki staðfesti Brynjar Jóhannsson, fram- kvæmdarstjóri rekstrarfélags | Fram, að félagið fái hluta af söluverði hans verði hann seldur frá Hammarby samningstím- anum. „Það er auðvitað leið- inlegt að sjá eftir svo góðum manni en að sama skapi gleðj- umst við yfir því að við eigum leikmann í þessari sterku deild og hann fái þetta tækifæri. Lið- in komust að ásættanlegu samkomulagi og eru menn sáttir." Fyrir hjá félaginu er Pét- ur Marteinsson, sem sjálfur lék í yngri flokkum Fram og meist- ara- flokki, Gunnar Þór Gunnars- son Ferfrá 1. deildarliði Fram til sænska úrvals- deildarliðsins Hammarby. DV-mynd Pjetur I llll I l—^M____________ rétt eins og Gunnar Þór. Ólafur Garðarsson hrl. og umboðsmaður Gunnars Þórs gladdist einnig yfir þessum fregnum og sagði þetta gott tækifæri fyrir hann að bæta sig enn frekar sem knattspyrnumann. Þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri hefur Gunnar Þór leikið síð- astliðin þrjú tímabil með Fram í efstu deild hér á landi og á hann að baki 45 leiki í deildinni. Brynjar seg- ir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um hvort ástæða þyki að fylla skarð Gunnars með nýjum leikmanni en liðið sé engu að síður vel mannað fyrir átök sumarsins. eirikurst@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.