Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 Helgarblað DV Móðir Dóru, sem við köllum Láru í þessu viðtali, tekur á móti mér á fallegu heimili sínu í úthverfi Reykjavíkur. Hún á dóttur sem varð ung eiturlyfjum að bráð og fór í gegnum ólýsanlegt sorgarferli þegar hún horfði á dóttur sína sökkva dýpra og dýpra. Dóttirin, sem nú er komin hátt á þrítugs- aldur, hefur náð sér á strik að nokkru leyti en mamma hennar er enn hrædd. Hún er þó langt í frá búin að missa vonina. Af tillitssemi við dóttur sína og aðstandendur biður hún um að nöfnum sé breytt. „Þetta er allt svo viökvæmt," segir hún og rifjar upp neyslusögu dóttur sinnar sem er löng og strembin og sér ekki fyrir endann á. „Dóra varð fyrir því eins og svo margir aðrir krakkar að vera lögð í einelti í skóla. Hún var mjög bráð- þroska og ellefu ára fór hún að sækja í sér eldri krakka. Þar sem hún var svona bráðþroska átti hún auðvelt með það og strax þarna fór hegðunarmynstrið að breytast. Stelpan mín, sem hafði verið svo saklaus og góð, fór að ljúga djöfulinn ráðalausan og ég var lengi að skilja hvað var í gangi. Móðir Dóru „Oft fannst mér ég húin að missa hana og hugsaði stundum að ég vildi heldur fylgja henni til grafar en að upplifa þennan sífellda sársauka." Ég var í afneitun eins og gerist gjarnan í svona aðstæðum. Hún fór að stela peningum, hlýddi engu og varð skyndilega ekkert heilagt. Hún óð í það sem henni sýndist og það skipti engu hvað ég bað hana um, hún lofaði öllu fögru en sveik það jafnharðan. Við höfum alltaf lagt mikið upp úr matartímum og ákveðinni reglu á heimilinu en þetta hvarf allt." Grunlausir foreldrar Lára telur að afneitunin geti verið sterkari þegar barnið kemur frá góðu heimili og hefur staðið sig vel í hvívetna fram eftir aldri. „Við bjuggum úti á landi þar sem var mikið skemmtanalíf. Hún fór ung að vinna í frystihúsinu og sá auðvitað að í verbúðinni var mikið sukk og stuð og sótti í það. Við höfðum þó ekki hugmynd um hvað var í gangi fyrr en góð vin- kona okkar hringdi og sagðist ekki geta horft upp á þetta lengur. Þá var Dóra komin í miklu harðari neyslu en áfengi og mig grunaði ekki neitt." Lára segir heimilislífið hafa farið í rúst. „Ég tók þetta óstjörn- lega nærri mér og vissi ekki mitt rjúkandi ráð. Samviskubitið var að drepa mig og kannski skipti máli að ég eignaðist hana áður en ég fór að búa með núverandi manninum mínum. Ég gat enda- laust velt mér upp úr því að hefði maðurinn minn verið pabbi hennar hefðu hlutirnir verið öðruvísi. Þetta var náttúrlega tómt bull en ég var alltaf að leita að réttlætingu. Hún segir sjálf að pabbi sé alltaf pabbi, manninn sem er blóðfaðir hennar kallar hún „föður sinn". Ég hefði ekki þurft að vera með þessa sektar- kennd, en ég var í stöðugri sjálfs- ásökun og fannst þetta vera allt mér að kenna." Gat ekki rætt sorgina Þegar Dóra var nítján ára varð hún ófrísk og eignaðist barn. Lára segir hana engan veginn hafa getað annast barnið, ekki heldur eftir að hún fór í meðferð stuttu seinna sem bar ekki tilætlaðan ár- angur. „Ég reyndi eins og ég gat að fá hana til að axla ábyrgðina en það gekk ekki. Þetta var mjög sorglegt því hún gaf svo barnið til ættleið- ingar. Þetta var eitt allsherjar sorgarferli, sem endaði þó vel. Mér fannst auðvitað að ég sem amman ætti að taka barnið en svo fór ég að hugleiða hversu oft ég væri tilbúin til að taka við. Hvað ef hún eignaðist fleiri börn? Yrði ég alltaf tilbúin til að hlaupa und- ir bagga? Ég fór með henni alla leið í þessu ættleiðing- arferli sem var miklu erflð- ara en ég gerði mér grein fyrir. Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna, þegar ég missti móður mína, að öll sorgin braust upp á yfirborðið. Sorg dregur með sér aðra sorg," segir Lára. Kom ekki til greina að barnið færi ífóstur? „Ég var nú í fyrsta lagi ekki kunnug þess- um málum eins og ég er í dag. Ég var hrædd um að barninu yrði þvælt á milli og það gat ég ekki hugsað mér. Mér fannst betri kostur að barnið fengið góða foreldra og gott at- læti. í dag get ég rætt þetta, en ég gat það ekki lengi vel. Góðir hlutir gerast þó," segir Lára og brosir blítt. „Barnið býr nú við mjög gott atlæti og ég fæ að umgangast það sem amma þess, sem er yndis- legt." Mikilvægast að leita hjálpar fyrir sjálfan sig Lára segist hafa verið búin á sál og líkama þegar hún fór í fjöl- skyldumeðferð á Teig. „Mér fannst ég auðvitað ógurlega spes þar. Maður er svo hrokafullur þegar maður er að byrja. Mér fannst ég sem aðstandandi allt öðruvísi en hinir sem voru að takast á við sína áfengisflkn. En guð minn góður hvað ég átti eftir að éta það ailt ofan í mig. Þarna öðlaðist ég líka skilning á því að alkóhólismi er sjúkdómur og að öll fjölskyldan sýkist. Ég fór að horfast í augu við að þetta væri eitthvað annað og meira en aum- ingjaskapur. Fram að því hafði mér þótt þetta svo ólýsanleg skömm." Lára, sem á tvær yngri dæt- ur, segir engin orð lýsa þeirri vanmáttar- kennd sem grípur foreldri í þess- um aðstæðum. „Hvað á maður að gera? Úthýsa barn- inu? Stundum er það eina leið- in. Það fyrsta sem maður verður þó að gera er að leita aðstoðar fyrir sjálf- an sig. Ef maður er sjálfur í rúst hjálpar maður engum og auðvitað bitnar „Mér fannst ég svo hræðilega mislukk- uð og einhvern veg- inn á skjön við allt í samfélaginu. Ég upplifði þetta fyrst og fremstsem of- boðslega skömm og ótrúlega sorg." það á öðrum fjölskyldumeðlim- um. Nú er svo margt í boði ef fólk vill leita sér hjálpar. Það er hægt að leita ráðgjafar víða því hér eru stórir hópar sem hafa góða þekk- ingu á svona málum. Ég hef sótt A1 Anon-fundi og er með vinkon- um mínum í mjög góðum les- hring. Þar lesum við A1 Anon- og AA-efni og höfum lesið góðar bækur sem ég mæli með og heita Samræður við Guð. Ein þessara vinkvenna minna býr við sömu reynslu og ég og það er gott að ræða þetta við aðra sem skilja vandamálin af eigin raun." Var að missa vit- glóruna Nú hefur Dóra verið edrú í nokkra daga en Lára segist ekki gera sér allt of miklar vonir í augna- blikinu. „Hún viður- kennir alveg að hún ræður ekki við þetta. Þegar hún féll síðast ákvað ég að láta hana algjörlega í friði eins og manni er kennt, því það er því miður eina leiðin. Ég er búin að sannreyna það. Það er ekkert sem ég get gert ef hún vill það ekki sjálf. Dóra eignaðist ann- að barn íjórum árum eftir að hún gaf það fyrra og óttinn við að missa það heldur henni þó oftast gangandi." Lára segist oft hugsa um það þegar hún fréttir af ungmennum sem deyja að hægt sé að missa börnin sín á svo margan hátt. „Mér fannst ég oft búin að missa hana og hugsaði stundum að ég vildi heldur fylgja henni til grafar en upplifa þennan sífellda sársauka. Svo bætist skömmin við. Mér fannst ég svo hræðilega mislukkuð og einhvern veginn á skjön við allt í samfélaginu. Ég upplifði þetta fyrst og fremst sem ofboðslega skömm og ótrúlega sorg. Ég grét út íéitt, gat ekki sofíð en sat frammi og grét í örvænt- ingu. Ég var að missa vitglóruna, alveg þangað til ég leitaði mér hjálpar og fór svo í A1 Anon. Mér fannst áður að ég væri betur komin dauð en lifandi. Það verður allt svo gegnumsýkt í svona ástandi. Þetta er svo mikill fjöl- skyldusjúkdómur, harmleikur." Tekið á málum af kærleika Nú á Lára hins vegar góða daga og þakkar það hjálpinni sem hún hefur fengið og sporavinnunni. „Já, lífið hefur breyst. Ég myndi ráðleggja öllum foreldrum í þessum aðstæðum að leita sér hjálpar strax. Hætta að beina sjónum að barninu, en einbeita sér að sjálfum sér í staðinn. Svo eru þessi góðu gömlu gildi algild; að taka á málunum af kærleika. Ég hef getað nýtt mér fræðin í öllum kringumstæðum og þegar dóttir mín féll fyrir nokkrum árum tal- aði ég ekki við hana í nokkra mánuði, en gætti barnsins fyrir föðurinn. Hún hringdi svo í mig mjög reið og æst en mér tókst að bregðast við af kærleika. Við mæðgur erum ekki í miklu sambandi í augnablikinu, hún hef- ur verið þannig stemmd, elsku kerling- in mín, að ég hef kosið að loka í bili. En ég elska hana út af lífinu og er alls ekki búin að missa vonina um að ég fái hana aftur eins og hún var. Ég trúi því staðfastlega að hún eigi eftir að ná sér og þá verð ég til staðar. Fram að því get ég bara ræktað sjálfa mig og fjöl- skylduna mína, einn dag í einu." edda@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.