Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Side 22
22 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 Helgarblað DV Næsti skammtur var það eina sem rak þau Guðjón Egil Guðjónsson og Benediktu Ketilsdóttir áfram um langt skeið. Lengi vel komu þau hvergi auga á útgönguleið út úr þvi helvíti sem þau höfðu ratað í. Þau dreymdi um að eignast fjölskyldu en jafnvel sá draumur dó vegna fíknarinnar. Gangan fram í ljósið var bæði löng og ströng. Nú vilja þau ekkert frekar en fá að vísa öðrum réttu leiðina. Þau Guðjón Egill Guðjónsson og Benedikta Ketilsdóttir eru ósköp venjuleg í útliti. Þegar þau tala heyrir maður strax að þar er á ferð viðræðugott og greint fólk. I raun eru þau gjör- ólík því sem maður býst við af fólki sem hefur eytt stórum hluta af lífi sínu í fíkniefhanotkun. Sannleikurinn er samt sá að í mörg ár gekk líf þeirra út á fátt annað en að verða sér úti um næsta skammt. Svo mikil var fíknin að þau urðu að láta eyða fóstri eftir að Benedikta féll í far eiturlyfja á meðgöngu. Seinna urðu þau að láta nýfæddan son sinn frá sér, þótt þau langaði í raun ekkert annað en að fá að reynast honum góð- ir foreldrar. Þau voru sprautufíklar. Alltof lengi hefur litla þjóðin í norðri lok- að augunum fyrir því að hér á landi hefur stór hluti fólks Ieiðst út í jafn harða neyslu og raun ber vitni. Neyslu sem dregur fólk oft til dauða, neyslu sem gerir líf fólks að helvíti, jafnvel fólks sem talið er koma af „góðum" venjulegum heimilum eins og þau Guðjón og Benedikta. Þau vilja að fólk opni augun fyrir því sem er að gerast í íslenskum veruleika og telja að ekkert muni ávinnast ef fólk heldur áfram að loka augunum fyrir hroll- vekjandi tilveru sprautufikla. Á meðan það er viðhorfið telja þau að vandinn geri ekkert annað en að aukast. Úr jarðaför Þau eru svartklædd þegar ég hitti Jiau enda nýkomin úr jarða- för. A síðustu dögum hafa þrír ná- komnir vinir þeirra og ættingjar látist, þar af tveir vegna ofneyslu fíkniefna. Sá fjöldi er samt bara brot af þeim fjölda vina og kunn- ingja sem þau hafa misst í gegnum tíðina. Á þessum erfiðu tímum leggja þau samt á sig að mæta í við- tal til að greina frá reynslu sinni því þeim er umhugað um að koma öðrum til hjálpar. Fremingarbörn og dag- drykkjufólk Bæði byrjuðu þau að drekka mjög ung en hvorugt þeirra vill meina að sú neysla hafi hafist vegna einhverra utanaðkomandi þátta. Guðjón var aðeins 14 ára þegar hann bað sjálfur um að fara í meðferð. „Ég var farinn að drekka á hverjum degi á þeim tíma. Mig langaði til hætta en fann að ég gat það ekki. Ég kynntist svo stelpu sem hafði verið á Tindum og mælti með því sem hún hafði kynnst þar, reyndar er hún núna dáin eftir óverdós, en það er önnur saga. Þetta vildi ég reyna og var í fimm mánuði í meðferð," segir Guðjón og brosir beisklega út í annað því eftir þessa meðferð hefur hann varla tölu á því hve oft hann hefur farið. Ekki tók betra við Það var samt ekki fyrr en hann var 17 ára að hann hætti að drekka. Ástæðan var þó ekki komin af góðu og ekki tók betra við. „Ég drakk alltaf mjög illa og oft fylgdi því of- beldi. I eitt skipti barði ég strák niðri í bæ mjög Úla og í kjölfar þess hlaut ég fyrsta dóminn minn. Ég var látinn hitta drenginn sem ég barði eftir árásina og þegar ég sá hvernig hann leit út eftir mig ákvað ég að hætta að nota áfengi og sama dag kynntist ég kannabisefnunum. Kannski var það betra fyrir þjóðfé- lagið, ég hætti að minnsta kosti al- veg að fara út og gerði lítið annað en að sitja skakkur fyrir framan sjónvarpið og borða kókópuffs. Það gerði ég í næstum eitt ár," seg- ir Guðjón og brosir við minning- una. Sjúkur friðurinn sem kannabis- efnin veittu honum vörðu þó skamman tíma enda voru ný efni þá tekin að streyma inn á íslenskan eiturlyfjamarkað. „Þegar ég var bú- inn liggja í kannabis í ár var ég orð- inn nógu paranojaður til að vilja annað ástand. Ég eyddi svo um það bil fimm mánuðum í ofskynj- unarefni en þegar ég var orðinn uppgefinn af ofskynjunum og rugli ákvað ég að prófa amfetamín með kunningjum mínum. í fyrsta skipti sem ég prófaði það var ég spraut- aður, þá var ég 18 ára," segir Guð- jón. Skömmu eftir þessa reynslu fór hann þó í enn eina meðferðina og þar kynntist hann Benediktu sem seinna átti eftir að verða eigin- kona hans. Fá loforð eftir til að gefa Eins og svo margir aðrir, segir Guðjón að sem barn hafi hann ver- ið ákveðinn í að byrjá aldrei á að drekka brennivín. Þegar hánn braut það loforð gaf hann sér ann- að, og það var að aldrei nokkur tímann myndi hann reykja hass. Þegar það loforð var mölbrotið lof- aði hann sér að aldrei myndi hann nota ofskynjunarefni og því næst að aldrei myndi hann sprauta sig. Þegar hann var 19 ára voru fá lof- orð eftir til að gefa. Töldu sig hafa dottið í lukkupottinn „Ég og Benedikta byijuðum að vera saman 1996, eða fljótlega eftir að við komum úr meðferð og gerð- um í raun lítið annað en að nota eit- urlyf saman þótt við væmm ekki farin að kunna að sprauta okkur sjálf á þeim tíma," segir Guðjón hreinskilnislega. Dag einn í sept- ember sama ár ákváðu þau að kíkja í heimsókn til vinafólks síns og sú heimsókn varð mjög afdrifarík. „Þegar við komum til þeirra spurðum við hvort þau væm edrú. Þau sögðu nei og við svömðum að bragði að það væmm við ekki held- ur," segir Guðjón og tekur sér smá hlé á frásögninni. Þau Guðjón og Benedikta töldu sig hafa dottið í lukkupottinn þegar þau komust að því að gestgjafamir vom í einkar góðu sambandi við innflytjanda á mjög sterkum efn- um. f sumum heimsóknum er boð- ið upp á kaffi. Þeim Guðjóni og Benediktu var boðið upp á sterk eit- urlyf en tilkynnt að ekld væm önnur tæki til á heimilinu en sprautur og þetta boð þáðu þau með þökkum. Máttu þakka fyrir að hafa lifað nóttina af „Þau sprautuðu okkur með alltof sterkum efnum og við óver- dósuðum bæði. Þau drógu okkur inn í herbergi og ég ætlaði að hlúa að konunni minni. Það gekk þó ekki betur en svo én að ég datt aft- ur fyrir mig á spegil og skarst mjög illa," segir Guðjón og greinilegt að á hann slær óhug við upprifjunina. Hann segir að í raun hafi þau mátt þakka fyrir að hafa lifað nóttina af. „Þetta vom vanir sprautufíklar sem við vorum hjá og maðurinn ákváð bara að ef við myndum deyja yrð- um við dregin út í garðinn við hlið- ina á húsinu. Þegar við rönkuðum við okkur sögðu þau að þetta væri eðlilegt. Síðan þá hefur liðið langur tími og við vitum að það er ekki rétt, heldur megum við þakka fyrir að hafa lifað nóttina af. Á þessari sömu stundu ákváð- um við samt að þetta fólk yrðu nýju bestu vinir okkar," segir Guð- jón og brosir hálfundrandi yfir sjálfum sér. „í geðveikri neyslu" Hjá þessu nýja vinafólki sínu dvöldu þau svo í „geðveikri neyslu", eins og hann orðar það sjálfur í sjö mánuði. Á þeim tíma grenntust þau mjög auk þess sem skilningur þeirra á umhverfi sínu fór enn þverrandi. „Ég fór niður úr 115 kílóum niður í 65 á þessum tíma og að lokum var ég fluttur á sjúkrahús og svo lagður inn á geð- deild vegna þess hve ég var kom- inn með svakalega paranoju. Ég var alveg við að brenna yfir og átta mig ekki á því hvernig við lifðum þetta tímabil af. Við sátum bara þarna inni á daginn og rændum og rupluðum á næturnar," segir Guð- jón. Þetta líferni þeirra fékk þó snöggan endi og segist Guðjón þakka Guði og lögreglunni fyrir það. Lítið barn inni á fársjúku heimili „Það voru þrjár dyr sem þurfti að fara í gegnum inn í íbúðina. Einn daginn ruddist sérsveit lög- reglunnar inn og braut allar hurðirnar niður. Þegar þeir spörk- uðu upp síðustu hurðinni lenti hún á konunni sem við bjuggum hjá. Hún hafði staðið beint fyrir innan hurðina, og við höggið af hurðinni datt hún fram fyrir sig," segir Guðjón. Lögreglan lagði svo leið sína með barnayfirvöldum á leikskóla í næstu götu og sótti lítið barn sem bjó á heimilinu. Guðjón heldur áfram frásögn- inni en þegar blaðamaður fréttir að lítið bam hafi verið inni á þessu fársjúka heimili er hann krafinn um frekari svör við því. „Þetta var alveg hræðilegt. Við áttuðum okkur í raun aldrei á því að barnið væri þarna fyrr en eftir á og hvaða afleiðingar það hefði og gæti haft á líf bamsins. Móðirin var af veikum mætti að reyna sinna litlu stúlkunni og við urðum ein- hvern veginn aldrei vör við hana. Henni var samt komið fyrir hjá fósturfjölskyldu, líklega sem betur fer á þessum tíma því þetta var al- ger geðveiki, og þar er hún enn. En móðir stúlkunnar hefur verið alls- gáð alveg síðan þetta örlagaríka kvöld. Og stofnaði heilbrigða fjöl- skyldu með góðum manni. Þetta var hræðilegasta tímabil sem við höfum upplifað fyrr og síð- ar. Þegar við rifjuðum það upp síð- ar barst bamið í tal og við sldljum ekki enn hvernig það fór fram hjá okkur. Við vomm bara svo rugluð, vissum hreinlega hvorki í þennan heim né annan og það var í raun ekki fyrr en við heyrðum ópin í móðurinni eftir að barnið var tekið frá henni að við rönkuðum eitt- hvað smá við okkur," segir Guðjón með skelfingarsvip. „Ég skil ekki hvernig barnið lifði þetta af.“ Datt í það sama dag og sonurinn fæddist Þessi reynsla varð til þess að þau Guðjón og Benedikta ákváðu að reyna koma undir sig fótunum í lífinu. Þau gengu í trúfélag, Guðjón fékk sér vinnu og fljótlega komust þau að því að þau áttu von á barni. Sumum hefði getað virst að lífið hefði loksins farið að brosa við þeim. „Barnið okkar fæddist 13. mars og sama dag datt ég í það," segir Guðjón en útskýrir hálf afsak- andi að á þeim tíma hafi hann ekki enn verið búinn að kynnast 12 spora- prógramminu sem síðar átti eftir að verða þeim til bjargar. „Hvomgt okkar kunni að lifa eðlilegu lífi, hvað það þýddi að taka ábyrgð og vera edrú," bætir hann við til útskýringar. „Barnið okkar fædd- ist 13. mars og sama dag datt ég í það" Báðu um að láta taka barnið „Benedikta kom svo heim af spítalanum með barnið. Ég datt í það af og til en hún hélt sér edrú. Þegar strákurinn var sex mánaða fundum við bæði hvað var að fara að gerast. Ég hringdi þá í pabba og sagði honum hvernig málin stæðu, við gætum ekki hugsað okkur að vera með drenginn á meðan. Auð- vitað vildum við vera með barnið okkar en fíknin hafði yfirtekið líf okkar aftur þó svo að við væmm ekki enn farin að nota. Pabbi kom til okkar sama dag og sótti dreng- inn, síðan þá hefur hann alist upp hjá honum og stjúpmóður minni, þau björguðu þar með lífi okkar allra held ég bara," segir hann og reynir að útskýra fyrir reynslulaus- um blaðamanninum að ábyrgðin hafi einfaldlega vaxið þeim of mik- ið í augum á þessum tíma þrátt fyr- ir að þau hafi bæði dreymt um það eitt að koma undir sig fótunum og stofna fjölskyldu. Ný kynni Lífið hélt svo áfram sinn vana- gang hjá þeim Guðjóni og Bene- diktu ef svo má segja. Þau kynntust nýjum kunningjum, fíkniefnasöl- um og nýju fíkniefni. „Dflerinn sagði að þetta efni héti Contalgin og væri voða sniðugt, við vomm á því nær stanslaust í tvö ár eða þar til árið 2000," segir Guðjón en því má bæta við að þetta efni gengur jafnan undan heitinu dauðadópið vegna þess hve hratt það eyðilegg- ur fólk. Guðjón hefur þrisvar sinnum setið inni. Þegar hann átti að fara inn í þriðja skipti hafði hann verið eftirlýstur um tíma og því tókst honum að semja við Fangelsis- málastofnun að fá að fara í með- ferð áður en hann gæfi sig fram með því skilyrði að hann gæfi sig fram. „í ágúst árið 2000 varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka dóminn út á Staðarfelli hjá SÁÁ. Eftir það var ég edrú fram í júní á næsta ár á eftir en þá féllum við aftur í viku. Sem betur fer kynnt- umst við 12 spomnum á þeim tíma. Það var ekki fyrr en þá að við kynntumst einhverri yndislegri frelsistilfinningu. Loksins fannst okkur að við gætum vaknað og tek- ist á við heiminn edrú án þess að þurfa að neyta vímuefna." „Þau björguðu lífi okkar" Guðjón segir að á þessum tíma hafi hópur fólks verið að kynna 12 spora kerfið hér á landi eftir að hafa kynnst því sjálf í Bandaríkjun- um. Það hafi verið búið að eignast nýtt líf. „Fólkið sem kynnti okkur fyrir þessari 12 spora leið tók okkur Benediktu í raun inn á sig. Gáfu okkur föt og mat og gjörsamlega björguðu lífi okkar," segir Guðjón og minnist með þakklæti þessara hjóna sem hjálpuði þeim svo mik- ið á þessum tíma. Leiðin í Ijósið Eftir að hafa verið að rembast í hverri meðferðinni á fætur annarri í tíu ár segist Guðjón loks hafa fengið eða skilið útskýringu á því hvað alkóhólismi er í raun og veru. Skilgreiningin hafi hjálpað honum að takast á við vandamálið enda erfitt að fást við vágest sem maður þekkir ekki. „Ég lærði að alkóhól- ismi samanstendur af þremur þáttum en þeir eru: andlegt mein, huglæg þráhyggja og líkamlegt of- næmi. Fyrsta atriðið eru alkó- hólistar fæddir með og veldur því að þeir geyma vonda hluti án þess að vinna í þeim. Huglæga þrá- hyggjan knýr þetta ástand áfram svo við förum að drekka og þá tek- ur líkamlegt ofnæmi við sem veld- ur því að við þurfum alltaf meira og meira. Eitt glas er of mikið en þúsund ekki nóg," segir hann og útskýrir að alkóhólistum megi líkja við fólk með mikilmennskubrjál- æði en minnimáttarkennd. „Við heyrðum skilaboðin um hvemig alkóhólistar em í raun og vem. Allir alkar em eins í gmnn- inn, allir halda þeir að þeir séu svo sérstakir, allir alkar halda að þeir hafi reynt það svakalegasta í öllum heiminum og allir halda þeir að þeir hafi brotið mest af sér af öll- um. Því sitja þeir uppi með stærstu skömm sem hægt er að hafa á bak- inu og það kemur í veg fyrir að við gemm eitthvað í málunum. Það er einfaldlega of erfitt að takast á við það." Hefði dáið áður Til þess að geta orðið edrú, sem allir eiga að geta, þarf maður að fara í gegnum þetta 12 spora kerfi og það má ekki bíða," segir Guðjón en hann segir að þegar fyrst hafi verið farið að byrja á þessu kerfi hafi árangurinn verið á þá leið að um það bil 75% fólks sem leitaði til

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.