Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Page 23
Helgarblað DV LAUGARDACUR 1. APRÍL 2006 23 | Guðjón Egill og Benedikta Vilja nú einbeita sérað fjölskyldulífinu ot þviað hjdlpa öðrum úr myrkrinu. „Þetta var alveg hræðilegt. Við áttuðum okkur í raun aldrei á því að barnið væri þarna fyrr en eftir á og hvaða afleiðingar það hefði og gæti haft á lífþess" AA samtakanna varð edrú. Þenn- an árangur telur hann ekki enn til staðar. Langt því frá. „Lauslega áætlað held ég að í dag séu það að- eins fimm af hverjum 100 sem ná að vera edrú. Ástæðan er sú að fólk er alltaf að hlífa nýliðum of mikið. Viðkvæðið hér á landi var þannig að fólk átti að bíða í tvö ár þangað til það fór að vinna í 12 sporunum. Það er bara ekkert gott því fyrstu sporin verða til þess að við losum um mesta myrkrið í höfðinu á okkur sem hjálpar okkur svo að halda áfram í næstu sporum. Ég þekki engan af okkar kalíberi sem hefur náð að vera edrú í tvö ár án þess að vinna sporin og það hefði ég sjálfur aldrei getað. Ég hefði dáið áður." Lokafallið Við héldum áfram út frá þessari 12 spora vinnu, gerðum mikið gagn, breiddum út boðskapinn, hittum bömin okkar og eignuð- umst fallegt heimili. Það var samt þannig að við unnum níunda skrefið ekki nógu vel. Við héldum að við væmm frjáls en það var ým- islegt óuppgert. Þannig að eftir að við vomm búin að vera edrú í eitt ár fómm við aftur að nota efni. Það var í júní 2002, við duttum í það en daginn eftir vorum við búin á því. Við höfðum verið ringl- uð áður en þetta gerðist en áttuð- um okkur ekki á því að það var vegna þess að við höfðum ekki gert okkar mál nógu vel upp. Benedikta gafst upp á öðmm degi og ég á þeim tíunda. Við fómm í meðferð og unnum sporin okkar almennilega í það skipti. Síðan þá höfum við verið edrú." Dauðinn á biðlistunum Áður en Guðjón og Benedikta fóm að nota efni í júni 2002 höfðu þau þegar lagt gmnninn að 12 spora húsinu. „Það var draumsýn sem hélt okkur algerlega gang- andi, en þegar það kom bið í verk- efninu féllum við aftur í neyslu. Það hvarflaði þó ekki að okkur að gefast upp og um leið og við urð- „Það dóu svo rosa- lega margir á þessum tíma að við ákváðum að drífa í þessu" um aftur edrú fómm við á fullt að koma 12 spora húsinu aftur af stað. Við fengum góðan hóp með okkur og eftir fjóra mánuði hafði húsið opnað," segi Guðjón Egill með stolti í málrómnum. Hann viðurkennir þó að þau hafi farið af stað með kappi fremur en forsjá enda hafi biðlistar á þeim tíma verið gífurlega langir. Mikið af kunningjum þeirra hafi látið lífið meðan þau biðu eftir að fá að komast inn til að virma í sínum málum og það hafi þau engan veg- inn getað sætt sig við. Úti í kuldanum „Það dóu svo rosalega margir á þessum tíma að við ákváðum að drífa í þessu einn tveir og bingó. Öryrkjabandalagið ákvað að leigja okkur hús og við ákváðum að hafa heimilið þannig að boðið væri upp á fulla meðferð allan daginn. Við höfðum það að stefnu að út- rýma biðlistum, við settum engin skilyrði fyrir að komast inn annað en viijann að verða edrú og við vildum að fólki væri frjálst að fara og koma eins og það vildi en ekki loka það af uppi í sveit," segir Guðjón ákveðið. Það þótti mikil nýlunda að bjóða upp á meðferð í hjarta borg- arinnar þar sem fólk gat ráðið ferðum sínum en Guðjón Egill segir að það kunni ekki góðri lukku að stýra að Ioka fólk inni frá öllu, að minnsta kosti hafi það ekki virkað fyrir hann. Lífið verði einfaldlega alltof stórt og yfir- þyrmandi þegar aftur er komið út og það geti valdið því að fólk falli aftur í neyslu. Það sem helst var lögð áhersla á í 12 spora húsinu var að fólk sem þangað leitaði yrði komið í vinnu eða skóla þremur mánuðum eftir fyrstu komu og segir Guðjón ástæðuna fyrir því vera þá að fólk verði að örva heilann til að fá áhuga á lífinu. Að æðsti draumur marga fíkla hafi eitt sinn verið að komast á ævilanga örorku. „Vissulega þurfa margir að vera á örorku vegna andlegra og líkam- legra sjúkdóma og slysa, sérstak- lega er stór hópur fíkla sem þjáist af illvígu þunglyndi eftir og vegna neyslu og getur hreinlega ekki plumað sig á vinnumarkaði og því berum við virðingu fyrir. Það er samt þannig að við getum alltaf gert eitthvað til að örva heilann. Það er fullkomlega rétt sem mál- tækið, vinnan göfgar manninn, segir, við verðum að búa okkur til líf og vinna markvisst að því." Úti í kuldanum Það er augljóst að Guðjón Egill og Benedikta eru stolt af því sem þau fengu áorkað í 12 spora hús- inu. „Þetta var bara draumur," segir Guðjón Egill ófeiminn og við minninguna lifnar yfir honum. Draumurinn varði þó ekki eins lengi og hann dreymdi um því í september á síðasta ári neyddist hann til að loka 12 spora húsinu vegna vangreiddra leiguskulda. Skuldirnar segir hann tilkomnar vegna þess hve leigan hækkaði ört vegna hækkandi íbúðaverðs og ekki hafi fengist fjárstuðningur til að halda áfram með verkið. „Ég leitaði til fyrrverandi félagsmála- ráðherra sem gaf vilyrði fyrir stuðningi. Hjálpin barst þó ekki fyrr en eftir hálft ár og á þeim tíma höfðu skuldirnar aukist verulega. Ég leitaði þá aftur til hans og fékk aftur jákvætt svar. Fulltrúi félags- málaráðherra lagði til að 12 spora húsinu yrði lokað strax og hætti við að taka þátt í þessum björgun- araðgerðum í umboði ráðherrans, sem nú hefur snúið sér að öðrum verkefnum." Því hefur Guðjón neyðst til að loka húsinu sem hann og svo margir félagar hans lögðu svo mikla vinnu í. Hann neitaði þó að gefast upp og leitaði til fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem einnig sagði já og vildi hjálpa en sú hjálp hefur ekki enn borist og sá ráð- herra einnig flutt sig um set. „En nú höfum við á nýjan leik rétt einu sinni óskað þess að nýr heilbrigðisráðherra, Siv Friðleifs- dóttir, taki af skarið og hjálpi okk- ur að ganga frá þessum ókláruðu málum við gamla leigusala okkar og aðra velgjörðarmenn sem hjálpuðu okkur en virðast æda að verða úti í kuldanum fyrir það eitt." Tími myrkursins liðinn Ástandið hjá hugsjónafólkinu Benediktu og Guðjóni Agli er því ekki bjart þessa stundina þótt þau segist langt því frá að vera svart- sýn. „Við erum auðvitað bara fyrst og fremst mjög hissa á því að ekki einn heldur tveir ráðherrar ríkis- stjórnar íslands skuli hafa sagts leggja okkur lið en ekki staðið við orð sín ennþá. Ég meina, við erum númer eitt á heilbrigðisáætlun til 2010," segir Guðjón. Tími myrkurs og neyslu í lífi þeirra er liðinn og nú vilja þau ekkert frekar en að hjálpa fólki, sem glímir við sama helvíti og þau þurftu að ganga í gegnum, út úr þeim kringumstæðum og inn í ljósið. karen@dv.is DV-mynd Hart

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.