Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Side 27
DV Helgarblaðið LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 27 an við öftustu síðu eins og í góðri bók, enda er ég ekki viss um að þetta þurfi endilega að halda áfram og finnst nokkuð bfræfið að gera þá kröfu. Ég held að eilífðin búi í ein- staklingnum meðan hann lifir og að eilífðin sé hér og nú.“ Mennirnir alls staðar eins Lífsþorstinn er einmitt það sem einkennir listamanninn á Laugarnestanganum enda seg- ist hann alltaf hafa jafn mikinn áhuga á lífinu. „Mér finnst lífið alveg jafn spennandi og áður. Mér er stund- um boðið á kvikmyndahátíðir úti um heim og reyni að fara ef mér finnst staðurinn spennandi og ég get lært og upplifað eitthvað nýtt. Það sem mér finnst kannski merkilegast er að mennirnir eru alls staðar eins. Það eru alls stað- ar sömu vonir og þrár. Guðirnir eru hins vegar ólíkir enda eru það mennirnir sem búa til guðina en ekki öfugt." Kvikmyndahátíöir? Ertu þá svona frœgur í útlöndum? „Nei," segir hann hlæjandi. „En þetta eru forréttindin í starfi leikstjórans. Það eru alltaf til menn sem eru forvitnir um vík- ingamyndir og þessar myndir eru alltaf einhvers staðar á ferð- inni. Hrafninn flýgur var sýndur um daginn í Tólaö og í vikunni Steinvarðan góða Þarna gefur Hrafn krummmunum sínum og þeir launa honum með smáaurum sem þeir skilja eftir á steinunum. 3* r Hrafn lemur húðirnar í Laugarnesinu Þaðgerir hann tilað að hreinsa hugann og fá útrás. var kvikmyndahátíð í Argent- ínu að falast eftir að sýna vík- ingamyndirnar þrjár Hrafninn, Skugga hrafrisins og Hvíta vík- inginn sem sérstakt retróspektív á hátíðinni. Ég á frekar von á að ég þiggi boðið um að fara þangað og spjalla við publikum um þær - enda spænskan mín orðin vel brúkleg." Hrafn þekkir kannski manna best að menn eru ekki endilega spánienn í eigin föðurlandi þótt þeir njóti virðingar í útlöndum. „Já, öll mín viðurkenning hef- ur komið frá útlöndum," segir hann. „Ég held að sá listamaður sem rembist við að vera spámað- ur í eigin föðurlandi og koma sér upp einróma klappliði hafi lítið að segja. Listamaður sem er í faðm- lagi við sinn tíma verður óhjá- kvæmilega partur af þeim tíma eins og tískufýrirbrigðin. Það er í eðli listarinnar að róta upp í vatn- inu, rugga bátunum ef hægt er." Enn jafn ánægður með Opin- berun Hannesar Ertu þá ekkert spceldur þegar verkpínfá vonda dóma? „Eg er feginn ef einhver vill tjá sig um mín verk. Ég lít á það sem part af mínum örlögum að fá ólík og stundum hörð viðbrögð og hef aldrei kveinkað mér undan því. Ekki einu sinni útreiðina sem "Maður heyrir alltaf þaurökaðþað beri að vernda Viðey. Fyrir hverju? Fólki? Erþá fólk óþrifá yfirborði jarðar?" Opinberun Hannesar fékk? Nú hlær Hrafn. „Nei, ég er full- komlega sáttur við þá mynd og yrði ekki hissa þó að fólk muni í framtíðinni sjá Opinberun Hann- esar í allt öðru ljósi. Ég er að setja hana á DVD og trúi því að ný kyn- slóð muni kunna að meta hana." En hvað ersvo nœst? „Ég er mikið að skrifa og vinna í að koma myndunum mínum á DVD. Ég er að skrifa allan skoll- ann og hef verið að klippa Hvíta víkinginn í DVD-útgáfu. Sú mynd er hvergi til eins og ég vildi hafa hana því ég missti klippinguna út úr höndunum á mér á sínum tíma. Ég reyni að byrja daginn snemma. Svo spila ég á tromm- urnar eða skemmtarann til að fá útrás og leiðist aldrei." Erindi á borgaraþingi Nú er það langt liðið á sam- talið að blaðamanni finnst óhætt að spyrja um persónulega hagi Hrafns. Listamaðurinn lokast hins vegar alveg þegar talið berst að einkalífi hans og vill ekki ræða það. „Ég hef alltaf verið reiðu- búinn að ræða mín listaverk og finnst gott ef einhver vill fjalla um þau, og menn mega formæla þeim eins og þeim sýnist. En ég hef haft það fyrir reglu að fjalla ekki um mín fjölskyldumál." Þeir sem vilja kynna sér hug- myndir Hrafns um borgarskipu- lagið geta hlustað á hann á Borg- araþingi í Ráðhúsinu 1. apríl næstkomandi, þar sem hann verður með erindi. Svo er hægt að hlakka til nýrrar myndar eftir Hrafn því hann er að sjálfsögðu með hugmynd að kvikmynd sem verður væntanlega að veruleika innan tíðar. edda@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.