Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Page 28
DV-mvnd Heida
28 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006
Helgarblað W
Rómaiitísk og pokkiið sooiartísko
Dagkrem frá Clarence
„Ég hef notað þetta litaða
dagkrem í tvö ár og er mjög
ánægð með það. Þetta er litað
rakakrem sem gerir húðina
frísklegri."
Púður frá MAC
„Ég hef notað þessa tegund
síðan í sumar og er
mjög ánægð með
nuðrið
f/ f// /£
Maskari
Lancome
„Þessi er alveg
æðislegur eins og
allir maskararnir
frá Lancome. Hann
lengir, þykkir og
greiðir ótrúlega vel úr
hárunum svo þau verða ekki í
klessu.“
Kinnalitur frá MAC
„Það er einnig hægt að nota
þetta á varirnar en ég nota hann
daglega á kinnarnar til að fá smá
roða.“
Vara-
salvi frá Sally
Hansen
„Ég nota varasalva á hverjum
degi og þessi er mjög góður.“
Gloss frá Loreal
„Ég er meira fyrri varasalva en
set stundum á mig þetta brúna
glimmergloss."
Selma Ósk Höskuldsdóttir er nýkjörin Ungfrú Norðurland og mun taka þátt í
stóru keppninni fyrir sunnan þann 24. maí næstkomandi. Selma Ósk er á loka-
ári á félagsfræðibraut í Verkmenntaskólanum á Akureyri. „Mig langar mest
eitthvað út eftir námið, annað hvort til að vinna eða i skóla," segir Selma sem
á kærasta sem er aðstoðarverslunarstjóri Dóminos á Akureyri.
Litaðar gallabuxur í sumar
En áfram með sumaitískuna.
Svava segir að gallabuxur verði áfram
vinsælar og að þær verði dekkri og
jafnvel svartar. „Gallabuxumar verða í
öllum síddum, hnébuxur, ökklabuxur
og þær þröngu niður auk þess sem að
litaðar gallabuxur bætast við með
hækkandi sól sem verður skemmtileg
tilbreyting því þær hafa ekki verið inni
í mörg ár. Litimir verða bjartir og fal-
legir en hvítur verður aðailimrinn,
bæði í toppum sem og buxum og pils-
um,“ segir hún og bætir við að kjólam-
ir verði vinsælir í sumar sem og skyrt-
ur með stómm stífum krögum sem
séu flottar innan undir vesti. „Gull
Chanel lúkkið í skartinu heldur áfram
en silfurskartið mjakast líka meira inn
aftur og í skónum detta ökklaskómir
inn þótt stígvélin verði áfram enda
ailtaf klæðileg."
Valdi verslunina fram yfir
skólann
Svava tók verslunarpróf f Verslun-
arskólanum. Þá hafði hún unnið í
Sautján í tvö ár meðfram skólanum og
verslunin farin að ganga það vel að
hún þurfti að velja hvort hún vildi
halda áfram námi eða vera áfram með
verslunina. „Ég fann strax hvar áhugi
minn lá og átti ekki erfitt með að taka
þessa ákvörðun enda gekk mjög vel,
svo vel að hleypa þurfti inn í hollum á
föstudögum og laugardögum," segir
hún og brosir.
Er aðeins að mýkjast
Aðspurð hvort íslenskar konur séu
metnaðargjamar segist hún hafa góð-
an sambanburð þar sem hún eigi sam-
skipti við konur hér heima og erlendis.
„Eg get fullyrt að íslenskar konur em
mjög metnaðarfullar og kraftmiklar
konur upp til hópa. Það er gaman
að tala við íslenskar konur því þær
em alltaf svo vel með á nótunum
og duglegar," segir hún og viður-
kennir að sjálf hafi hún alltaf ver-
ið memaðargjöm. „Já, ég er algjör
steingeit og vil sjá hlutina ganga
og að þeir séu gerðir rétt. Ég held
að ég hafi alltaf verið svonaenerþó
sennilega að mýkjast aðeins.
Kannski er vogin í mér að koma
fram," segir hún brosandi."
Virðing borin fyrir konum í
bissness
Svava segist ekki hafa fengið að
kenna á því að vera kona í íslensku við-
skiptalífi. „Þvert á móti finnst mér að
mikil virðing sé borin fyrir okkur og
„Við mæðginin pöss-
um okkur að eiga
okkar tíma og tökum
vanalega einn dag í
viku fyrir okkur."
mér finnst við standa frekar framar-
lega í jafnréttismálum. Þótt ég sé ekki
femínisti vil ég sjá eðlilegt jafnrétti og
held að íslenskir karlmenn standi sig
ágætlega í þessum málum, sér í lagi
þeir yngri. Við konur emm komnar í
margar stjómir og stjómunarstörf og
gott viðskiptanet kvenna hefur mynd-
ast á undanfömum ámm og hefur
FKA, Félag kvenna í atvinnurekstri, átt
dijúgan þátt í því."
Eyðirtíma með syninum
Svava á einn son, ílottan fótbolta-
strák sem heitir Ásgeir Frank og er m'u
ára. Hún segir að vel hafi tekist að
sameina móðurhlutverkið og vinnuna
þótt hún vinrú yfirleitt fram eftir öll
kvöld. „Við mæðginin pössum okkur
að eiga okkar tíma og tökum vanalega
einn dag í viku fyrir okkur. Þá sitjum
við kannski á kaffihúsi, spilum eða
spjöllum og skyggnumst inn í heim
hvors annars. Það er mikill áhugi hjá
honum að vita allt um verslanimar
þótt ungur sé og ég hef gaman af því
að leyfa honum að fylgjast með,“ segir
hún og bætir við að Ásgeir Frank komi
gjaman með henni í verslanir NTC.
„Þá spyr hann starfsfólkið gjaman
spjömnum út bæði varðandi verslun-
ina og einkahagi þess og mér finnst
það alltaf jafn fyndið," segir hún hlæj-
andi.
Ekki fara með vinkonum í
bissness
Aðspurð um ráð handa ungum
konum sem vilja skella sér út í at-
vinnulífið segir Svava nauðsynlegt að
setja sér markmið, hafa góða yfirsýn
og tileinka sér þolinmæði. „Einnig
verðum við að hafa trú á því sem við
emm að gera," segir hún ákveðin og
bætir við að gott ráð sé að fara ekki of
margar saman út í rekstur. „Best er að
gera þetta ein eða með makanum því
reynslan hefur sýnt að samstarf vin-
kvenna endar oft ekkert of vel,“ segir
hún og bætir við að konur sem karlar
verði að vera stefnuvissar og útsjóna-
samar ef þær ætli að skella sér í biss-
ness. „Þær verða að hafa góða yfirsýn
og vera alltaf á vaktinni."
indiana@dv.is
„Sumartískan verður margbreyti-
leg og bæði rómantísk og rokkuð,"
segir Svava Johansen athafnakona og
eigandi NTC sem rekur Galleri 17, GS
skó, Retro, Deres, Smash, Evu, Kultur,
Kultur Menn, Focus, Companys,
Centrum og Outlet 10. Svava hefur
verið lengi í tískubransanum og veit
því sínu viti þegar kemur að tísku.
íslenskar konur fylgjast með
„Ég hef alltaf haft brennandi áhuga
á tískum og fötum og sá oft um að
klæða systkini mín upp enda lék ég
mér með búðarkassa en ekki dúkkur,"
segir Svava hlæjandi og bætir aðspurð
við að það sé skemmtilegt starf að
klæða Islendinga. „Við Islendingar
erum opnir fyrir nýjungum og ég fann
það vel þegar við
opnuðum Kulmr
sem selur
heimsþekkt
merki fyrir
konur yfir
þrímgu því
versluninni
var tekið mjög
vel og því aug-
ljóst að konur
fýlgjast mjög vel
með ti'skunni."
Svava Johansen „Þóttég sé
ekki femínisti vil ég sjá eðlilegt
jafnrétti og held að íslenskir
karlmenn standi sig ágætlega í
þessum málum, sér I lagi þeir
yngri."
DV-myndTeitur
Athafnaltonan
Svava Johansen er sannkölluð tískudrottn-
ing íslands. Svava segist alltaf hafa verið metnaðargjörn enda
sé hún steingeit sem vilji sjá hlutina ganga og að þeir séu
gerðir rétt. Svava kemur hér með ráð handa ungum konum
sem vilja skella sér í bissness auk þess sem hún ræðir um
sumartískuna og sameiningu móðurhlutverksins og vinnunar.
MESTA URVAL
afl LANDSINS
Arnar Tmtiu AF GLÆSILEGUM HJOLHYSUM. HAFÐU SAMBAND VIÐ RÁÐGJAFA OKKAR NÚNAI V * £ * R * l(
AF GLÆSILEGUM HJÓLHÝSUM. HAFÐU SAMBAND VIÐ RÁÐGJAFA OKKAR NÚNAI
V * £ * R * K
www.vikurverk.is
TANGARHOFÐA 1 SIMI 55 7 7720