Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Side 49
Framleítt af Múlalundí vinnustofu SÍBS
Menning DV
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 49
út". Hann segir að númerólógían
veiti mönnum betri innsýn í sjálfa
sig og aðra, og dragi jafnframt úr
fordómum gagnvart öðru fólki.
Guðdómlegt internet
Sahaja Yoga er líka eitt af
stærstu áhugamálum Benedikts.
„Þar eru gömul fræði sett fram
á læknisfræðilegan hátt. Kundal-
ini (lífsorkan) er virkjuð og fólki
kennt að heila sig sjálft. Mark-
miðið er að vera meðvitaður um
þessa lífsorku, vegna þess að
maður getur fundið að hún
sprettur úr ákveðnum orkupunkt-
unum. Orkupunkturinn í mið-
lófanum, hann tengist sjöundu
orkustöðinni, sem er í hvirflinum.
Orkan sprettur þar út og losar
okkur við spennuna. Við getum
stillt okkur einsog hljóðfæri, unn-
ið forvarnarstarf og líka heilað
okkur sjálf."
Og nú leggur Benedikt hendur
yfir spyrilinn og segir að orku-
punktarnir í fingrunum tengist
orkustöðvunum í líkamanum.
Orkan sé svalur blær, eins og raf-
magnsstuð. „Þetta er hið guð-
dómlega internet," segir Bene-
dikt. „Orkan veit hvað er að gerast:
orka sem er í sjálfu sér góð og er
nokkurs konar alheimsvitund.
Maður þarf að hreinsa út orkuna
og í þvf skyni hugleiði ég tvisvar á
dag. Svo reyni ég að fara í fótabað;
set vatn og salt í bala, en saltið
dregur til sín neikvæða orku."
Erfiðið að vera útgefandi
Benedikt hlýtur eiginlega að
vera andstæðan við hinn
erkitýpiska óhamingjusama lista-
mann, þar sem hann hugar svo vél
að andlegri heilsu sinni.
Hann jánkar þegar þetta er
borið undir hann og byrjar að
segja frá sjósundinu, sem hann
stundar af miklu kappi.
„Ég sá bara viðtal við sjósund-
kappa og langaði að prófa. Um
leið og ég lét það eftir mér leið
mér eins og ástföngnum manni.
Sjósundið styrkir líka ónæmis-
kerfið og er allra meina bót.“
Benedikt bætir við að það að
vera útgefandi sé svo mikið and-
legt erfiði að maður þurfi að vera í
mjög góðu jafnvægi til þess að
fara ekki yfir um. „Það er svo erfitt
að leggja svo mikið á sig, en bera
þó lítið úr býtum fjárhagslega.
Enda hafa margir útgefendur
orðið veikir, vegna þess að það er
auðvelt að fara út í maníu og detta
ofan í þunglyndi. í sjósundi líður
mér eins og þegar ég er að hug-
leiða. Hugurinn tæmist gersam-
lega. Ég mæli eindregið með sjó-
sundi sem heilsurækt."
Alheimsgeislinn, Gunnar og
Geirlaugur
Það var fyrir nokkrum árum að
Benedikt stofnaði Lafleur-útgáf-
una og ákvað að gefa út það sem
honum finndist brýn þörf á að
gefa út. Eigin verk og annarra. Nú
hafa komið út yfir þrjátíu bækur
hjá útgáfunni og Lafleur sjálfúr
segir að sér hafi verið vel tekið. En
hvernig valdi hann sér höfunda.
„Gunnar Dal kom til mín í
draumi. Þá hugsaði ég með mér
að ég yrði nú að gefa hann út þó
að það hafi verið löngu áður en ég
frétti að hann vantaði útgefanda.
Þetta var áreiðanlega alheims-
geislanum að þakka," segir Bene-
dikt og flissar.
„Stuttu síðar heyrði ég sömu
fréttir af Geirlaugi heitnum Magn-
ússyni, en hann hafði lengi verið
eitt af mínum uppáhaldsskáldum.
Ég gaf út tvær af síðustu ljóðabók-
unum hans; N er aðeins bókstafur
og Dýra líf. Við Geirlaugur áttum
gott samstarf og það var gaman að
kynnast honum, en við spjölluð-
um mikið saman síðasta árið sem
hann lifði. Hann hafði tekið dauð-
ann í sátt og var í miklu stuði vorið
2005, nokkrum mánuðum áður en
hann dó. Þetta var ótrúlegt. Hann
skrifaði á fullu og var eins og ung-
lamb þó að hann væri í raun
dauðveikur. Það er alls ekki svo að
hann hafi verið búinn að vera eða
útbrunninn, það er fráleitt, enda
sanna það síðustu bækurnar
hans. Núna þegar hann er farinn,
þá er maður enn stoltari af því að
hafa átt þátt í að þær kæmu út.
Þriðja bókin eftir Geirlaug kom
síðan út eftir andlát hans, en hún
heitir Andljóð og önnur."
Játningar sjósyndara
Nú nýlega kom út bók sem
Benedikt er mjög stoltur af, en
hún inniheldur allar smásögur
Tolstoys í þýðingu Gunnars Dal.
„Tolstoy sagði eitt sinn sjálfur að
tvær af sögunum í þessari bók
væru það besta sem hann hefði
skrifað."
Þó segir útgefandinn að bóka-
útgáfan sé að færast yfir í það að
„Ég ætla að safna
pistlunum saman í
eina bók, en hún á
að heita Játningar
Benediktusar jóga-
munks og erkisjó-
syndara í Fjár-
glæfralandi."
af því að styrkja það með uppá-
komum og fleiru. Eg vil veg menn-
ingarinnar sem mestan og auð-
vitað vil ég fleiri og hærri ríkis-
styrki."
Benedikt hefur aldeilis staðið
sig í því að bæta hag ljóðsins, þar
sem hann hefur staðið fyrir nær
sextíu Skáldaspírukvöldum í Iðu.
„Ég er ekkert að monta mig, en
þessi kvöld hafa verið furðuvel
sótt," segir Benedikt. Það er þó
mjög misjafnt, en ekki eru það
endilega þeir sem eru frægastir
sem trekkja mest að. Nú hafa
Skáldaspírukvöldin breyst í um-
ræðukvöld, nokkurs konar kósí-
kvöld með skáldinu og það mynd-
ast oft einstök nærvera. Það er svo
mikill galdur fólginn í upplestr-
um, að þeir opna manni alveg
nýja sýn á Ijóðið."
Að því búnu þarf Benedikt að
drífa sig að klára fréttatilkynningu
sem hann ætlar að senda út fyrir
næsta Skáldaspírukvöld, en þá
verður Andri Snær Magnason í
aðalhlutverki. Páskaeggin, sjó-
sundið og hugleiðslan hafa gert
sitt gagn - Lafleur er aftur kominn
á fullt.
vera mjög andlegs eðlis. Honum
finnst mikil þörf fyrir að hann gefi
út bækur um andleg málefni.
Næst langar hann svo að gefa
út greinasafn eftir sig sjálfan.
„Nú hef ég ekki mikinn tíma til
þess að skrifa og sinna listinni á
þann veg sem ég vildi. Ég hef
skrifað stutta pistla í léttum dúr,
þar sem ég hef íjallað um menn og
málefni á líðandi stund. Ég ætla
að safna pistlunum saman í eina
bók, en hún á að heita látningar
Benediktusar jógamunks og erki-
sjósyndara í Fjárglæfralandi,"
segir Benedikt og hlær rosalega.
Galdurinn í upplestrinum
„Ég held að ljóðformið sé það
bókmenntaform sem hentar nú-
tímanum hvað best," segir Bene-
dikt þegar tekið er upp létt hjal og
framtíðin skeggrædd. „Mér finnst
að minnsta kosti fráleitt þegar fólk
talar um að ljóðið sé dautt eða í
kreppu. Það ætti þó að gera meira
FERMINGARDAGURINN MINN
ndir • Ske
N crmuKLvrN\«turmn mmti
MÚLALUNDUR
FÆST í ÖLLUM HELSTU BLÓMA-
OG BÓKAVERSLUNUM LANDSINS VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c• Pösthólf 5137 • 125 Reykjávík