Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2006, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006
Fréttir DV
Hótaði ekki
vistívíti
Séra Flóki Kristinsson á
Hvanneyri segir það fleipur
að hann hafi hótað skóla-
börnum í Borgarfirði vist
í logum vítis ef þau ekki
höguðu sér skikkanlega.
„Vilji einhver standa
við slíkar staðhæf-
ingar verður sá hinn
sami að stíga fram
undir nafni og gera
það við mig, eins-
lega eða opinber-
lega,“ segir meðal
annars í yfirlýsingu
sem Flóki sendi DV
í gærkvöld og birt
er í heild á blað-
síðu 23 í blaðinu í
dag. Skólastjórinn
heldur fund á morgun um
kennsluaðferðir séra Flóka.
M
Fangelsi gerir
athugasemd
Fangelsismálastofnun
ríkisins hefur gert athuga-
semd við hækkun á álagn-
ingu fasteignagjalda á
húsnæði fangelsisins að
Kópavogsbraut 17. Þetta
kemur fram í fundargerð
bæjarráðs Kópavogs sem
sent hefur bæjarlögmanni
erindi Fangelsismálastofn-
unar til umsagnar. Bæjar-
lögmaður er einnig að
skoða ósk Smáralindar um
25 milljóna króna afslátt
af 192 milljóna króna fast-
eignaskatti þessa árs.
Bensín eykur
verðbólguna
Hækkanir á bensínverði
eru sagðar helsta orsök þess
að KB banki hefur hækkað
verðbólguspá sína fyrir
apríl. "Ef spáin gengur eft-
ir fer 12 mánaða verðbólga
úr 4,5% upp í 5,1% í næsta
mánuði. Ástæða hækkunar-
innar liggur fyrst og fremst
í meiri hækkun eldsneytis-
verðs en eldsneyti hefur
hækkað um 9 krónur, eða
8%, frá því í byrjun mars en
í fyrri spá var gert ráð fyrir
5% hækkun," segir Grein-
ingardeild KB banka sem
einnig spáir hækkun á mat-
arverði.
Herjólfsbær Fimm
hleöslumenn hafa nú lokið
við að reisa vegg bæjarins.
Árni Johnsen
Prímusmótor I
verkefninu.
Hleðslu veggja Herjólfsbæjar er nú lokið. Gunnlaugur Grettisson er gjaldkeri félagsins
um bvggingu Herjúlfábæjar og segist skynja mikla viðhorfsbreytingu í Eyjum í garð
Misins. Árni Jobnsen enprímusmótorinn og hefur létt undir ifieðal annars með
ýsa Meðslumennina og fóðra þá. Byggingin kostar minna en eíla því ýmsir'eru
„Ótrúlega skemmtilegt hvað þetta mál hefur snúist. Ýmsir höfðu
aðrar skoðanir á þessu þegar við byrjuðum. Fundu þessu allt til
foráttu. En nú eru menn ánægðir með handbragðið. Við erum
gríðarlega stoltir af þessu," segir Gunnlaugur Grettisson féhirðir
félags um byggingu Herjólfsbæjar.
Mikið hefur verið spjallað, slúðr-
að og skeggrætt um fyrirtækið úti
í Eyjum og víðar. Og fengu ýmsir
desjavú þegar mátti á lóð Árna John-
sen við þjóðveginn sjá talsvert af
hleðslugrjóti. En það er ekki svo að
byggingarefhi sem ætlað er í Herj-
ólfsbæ verði notað í bjálkahús Árna
sem er prímusmótor í byggingu Her-
ljólfsbæjar í Herjólfsdal. Hann hýsir
hleðslumenn í útihúsi eða gestahúsi
sem hann byggði að Höfðabóli og
gefur þeim að borða.
„Við fengum toppmenn. Þeir voru
fimm en nú er hleðslan risin. Svo
kemur heil timburgrind og torf ofan
á," segir Gunnlaugur og upplýsir að
til standi að bærinn verði tilbúinn
áður en 20 þúsund gestir streyma á
Þjóðhátíð síðla sumars. Hann seg-
ir kostnaðaráætlun ekki alveg fýrir-
liggjandi.
Ekki vitað hvað bærinn mun
kosta
Upphaflega fékk Árni tíu milljón-
ir frá fjárlaganefnd en það reittist af
þeim í hliðarmál sem Gunnlaugur
segist ekki þekkja. „Við fengum 6,2
milljónir frá fjárlaganefnd afhentar
og svo þrjár á fjárlögum núna. Þannig
að við höfum fengið 9,2 milljónir."
Gunnlaugur segir ónefndan
stuðning frá einstaklingum og fyrir-
Herjólfsbær Svona mun bærmn
llta út að framkvæmdum loknum.
segir Gunn-
laugur hress
og kátur. Segir
þetta verkefni
„ofboðslega
skemmtilegt".
jakob@dv.is
Gunnlaugur Grettisson Segir verkefnið hefðu
orðið dýrara efallt hefði þurft að greiðst i topp.
tækjum. Hann segir að kostn-
aðurinn væri talsvert meiri
ef allt þyrfti að borgast í topp.
Hann þorir hins vegar ekki að
nefna tölu á þessu stigi en segir
alla reikninga verða lagða fram
þegar þar að kemur.
Kostnaður minni því menn
leggja sitthvað til
„Já, Árni er algjör prfmusmótor
í þessu. Kostnaður við verkefnið
hefði til dæmis verið meiri
ef við hefðum þurft
að hýsa þá á hót-
eli og borga upp
í topp. Við för-
um fetið en vilj-
um þó sjá fyrir
endann á þessu,"
Islensk pýrómanía
Svarthöfða þótti fréttahelgin síð-
asta ekki spennandi. Sinubrunar
voru skyndilega orðnir málið. Hver
fréttamaðurinn á fætur öðrum flutti
fréttir og tók viðtöl við héraðsslökkvi-
liðsmenn, bændur á Mýrum, veður-
fréttamenn og vistfræðinga.
í æsingnum fengu að fylgja með
fréttir af enn fleiri sinubrunum,
meðal annars á Kjalarnesi og íkveikj-
um ýmiskonar hér og þar á lands-
byggðinni. Það var eins og íslend-
ingar hefðu allir sem einn fengið
snert af pýrómamu, en það er orð
sem Svarthöfði lærði einu sinni eft-
ir að hafa séð bíómynd með Randy
Hvernig hefur þú það
1
'íh
Svarthöföi
Quaid í aðalhlutverki.
Vel má vera að sinueldurinn á
Mýrum hafi verið sá stærsti í íslands-
sögunni. En Svarthöfði veit sem er,
að sinueldur er bara sinueldur - og
biður menn vinsamlegast um að
slaka á.
Áhugaleysi Svarthöfði á sinu-
brunum byggist aðallega á því að
hann hefur meira vit á sinueldum en
margir. í æsku þótti hann lunkinn við
að magna upp mikið bál með elspýt-
unum einum vopna.
Ég hefþaö bara meö allra besta móti," segir össur Skarphéðinsson alþingismaður. „Ég
fór á Þingvöll með Michael Meacher þingmanni breska verkamannaflokksins og
fyrrverandi umhverfisráðherra á laugardaginn til aö sýna honum staðinn. Svo er
framundan spennandi átakavika í þinginu þar sem menn takast á um háeffun Rlkisút-
varpsins. Væntanlega verða líka spennandi umræðurum öryggismál eftir heimsókn
Bandarikjamanna. Ég ersem sagt í mínu allra besta formi."
Og þótt sérlega vel tækist til
þótti ekki mikil ástæða til að kalla á
fréttastofu útvarps - hvað þá Ómar
Ragnarsson á sjálfri Frúnni.
Svarthöfði var svo góður að
stundum kom hann sjálfum sér í
bobba. Eitt skiptið var hann hætt
kominn og var þá öskusvartur af sót-
inu og reyknum.
í raun má segja að Svarthöfði hafi
borið nafn með rentu í það skiptið.
Sem betur fer eru sinubrunar
árstíðarbundið fyrirbæri. Það er því
ólíklegt að þjóðin þurfi að upplifa
jafn mikinn æsing yfir jafii ómerki-
legum Jilut í bráð. En Svarthöfði ef-
ast ekki um að um næstu helgi verð-
ur búið að finna upp á einhverju
nýju sem fær hjarta almúgans til að
slá rétt, aðeins, örlítið örar.
En það þarf bara meira til að
hreyfa við hinum sótsvarta Svart-
höfða.
Svarthöfði