Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2006, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2006, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRlL 2006 Sport DV Fabregas og Eboue fara með Cesc Fabregas og Emm- anuel Eboue, sem meidd- ust báðir í 5-0 sigri Arsenal á Aston Villa um helgina, eru báðir í leikmannahópi Arsenal-liðsins fyrir seinni leikinn við Juventus í 8 liða úrslitum Meistaradeild- arinnar en liðin mætast í Torínó á morgun. Eboue meiddist á nára en Fabre- gas er meiddur á fætí. Ars- ene Wenger, stjóri liðsins, telur aðeins vera um 40% líkur á að þeir félagar verði með í leiknum. Fabregas lék aðeins í 15 mínútur á mótí Villa og Eboue fór útaf eftir 67 mínútur. Ekki allt búið hjá konunum Tímabilinu er ekki lok- ið í kvennahandboltanum þó að ÍBV hafi unnið ís- landsbikarinn því framund- an er keppni í fyrsta deildarbik- arnum. Fjögur efstu liðin, IBV, Haukar, Valur og Stjaman, tryggðu sér þátttökurétt. ÍBV mætír Stjörn- unni í undanúrslitunum og Valur tekur á mótí Hauk- um. Það lið sem vinnur fyrr tvo leiki tryggir sér sætí í úrslitaeinvíginu þar sem einnig þarf tvo sigra til þess að vinna fyrsta deildarbikar kvenna í handbolta. KA-liðið dæmt úr leik? Kvennalið KA í blaki verður vænt- anlega dæmt úr leik eftir að þjálfari liðs- ins, Konstan- tin Sheved, kallaði lið sitt af velli til þess að mótmæla dómgæslu í leik liðsins við Þrótt ffá Neskaupstað í úr- slitakeppni kvenna í blaki um helgina. Staðan var þá 16-10 fyrir Þrótt í þriðju hrinu en Þróttur hafði unnið fyrstu tvær hrinumar. Áður en Sheved tók lið sitt af velli hafði hann komið inn á völlinn og átt óskiljanlegan orðastað við Ólaf H Sigurðs- son, aðaldómara leiksins. Hlynurog Sigurður rólegir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson voru rólegir í 76-73 sigri Leeuwarden WoonlAris á hol- lensku meisturun- um í Demon Astro- nauts Amsterdam í hollensku úrvals- deildinni um helg- ina. Sigurður skor- aði 6 stig í leiknum og Hlynur var með 2 stíg, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Leeuwarden-liðið er enn í neðsta sæti með 4 sigra og 18 töp en meistarnir eru í 2. sætí með 15 sigra og 8 töp. 1-., 3GM3. d23> þn 'é!r 'ijv I W úl- % T'llli — I II 1 Nú þegar félagaskiptaglugginn í Svíþjóö og Noregi er lokaður fram á haust liggur nokkuö ljóst fyrir hvaöa íslendingar munu spila í Landsbankadeildinni hér í sumar. Margir knattspyrnumenn, sér í lagi þeir ungu og efnilegu, fóru utan til reynslu hjá liðum víða um Evrópu. Átta komust á samning en þrír snúa þó aftur fyrir sumarið. Átta íslenskir knattspyrnumenn urðú í vetur atvinnumenn í knattspyrnu. Sumir á langtímasamning en aðrir voru lánaðir til viðkomandi félaga til lengri tíma. Nú liggur ljóst fyrir að þrír þeirra munu snúa aftur, þar af þeir einu tveir sem voru hjá liðum utan Norðurlandanna. Það er eðli málsins samkvæmt að okkar bestu og efnilegustu knatt- spyrnumenn fari til útlanda til að spila í betri knattspyrnudeildum gegn betri knattspymumönnum. Því miður er það bláköld staðreynd fyr- ir áhugamenn um íslensku deilda- keppnirnar og hafa gallharðir stuðn- ingsmenn íslenskra félagsliða séð á eftir sínum bestu leikmönnum, með þvingað bros á vör og hamingjuósk- um um leið. Það er þó ekkert lið sem missir meira en einn leikmann nú í vetur. Valur og Keflavik voru með tvo leik- menn í víkingi en Hörður Sveinsson Frá Keflavík til Silkeborg Garðar Gunnlaugsson Frá Val til Dunfermline Holmar Orn Rúnarsson Frá Keflavík til Trelleborg Helgi Valur Daníelsson Frá Fylki til Öster Davið Þór Viðarsson Reynir Leósson í báðum tílvik- um hefur annar þeirra snúið aft- ur. Sjálfsagt rík- ari af reynslunni sem mun koma liðum þeirra hér á fróni tíl góða. Til að bæta upp fyrir þetta hafa íslensk lið gert mikið af því að sækja erlenda leikmenn hingað til lands. Margir hafa reynst lið- unum mjög vel og eru afar góð- ir knattspyrnu- menn. Flestír " - eru þeir þó miðl- ungsmenn sem marka ekki sérstaklega djúp spor í ís- lenska knattspyrnusögu. Borgvardt týndur í Noregi En af og til koma hingað gullmol- ar sem við íslendingar skiljum ekk- ert í hvað þeir vilja í íslenska bolt- ann. Nærtakasta dæmið er Allan Borgvardt sem eftir langa og mikla mæðu - og þrjú ár hjá FH þar sem ÍSLENSKIR ATVINNU- MENN ERLENDIS Bjarni Ólafur Eiríksson FráValtil Silkeborg hann vann tvo íslandsmeistaratítla og var valinn bestí leikmaður móts- ins í tvígang - komst hann loksins á samning hjá norsku 1. deildarliði. Þeir tóku við honum eftir að úrvals- deildarliðið Viking taldi sig ekki hafa not fyrir hann. En flestir þessara íslensku drengja slá í gegn í úrvalsdeildum Norður- landanna. Reynast þær vera stökk- pallur þeirra i stærri og betri atvinnu- mannadeildir. Hörður Sveinsson sló rækilega í gegn með fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum með Silkeborg í Danmörku og Bjami Ól- afur Ei- ríks- Allir yfir tvítugu Það sem þessir leikmenn eiga all- ir sameiginlegt er að þeir hafa allir náð tvítugsaldri. íslenskir ungling- ar fara reyndar oft í stórum hópum til reynslu hjá er- lendum atvinnu- mannaliðum en , því miður verð- ur bara að segja I eins og er að fæstir þeirra fá nokkru sinni að Frá FH til Lokeren Frá ÍA tilTrelleborg Gunnar Þór Gunnarsson Frá Fram til Hammarby son hefúr sömuleiðis hlotíð mikið lof fyrir sína frammi- stöðu. GunnarÞór efnilegur Forráða- menn Hamm- arby í Svíþjóð sömdu á föstu- daginn við Gunn- ar Þór Gunnars- son tíl þriggja ára og binda miklar vonir við hann. Ef hann heldur sínu striki má vera ljóst að hann á lang- an atvinnumannaferil fyrir höndum, enda ekki nema tvítugur að aldri. Einn fjölhæfasti leikmaður sem fsland hefur átt í langan ti'ma, Helgi Valur Damelsson, hélt sömuleiðis til Svíþjóðar þar sem hann leikur með öster. Helgi hefur þegar unnið sér inn landsliðssætí og var í raun ótrúlegt hversu lengi hann hélt til hér heima. % 4^. njota j sín til í fulln- 1 j ustu hjá \ viðkom- J andi fé- » lagi. Þeir J eru ör- k fáir ís- • (• lenskir ungling- ar sem hafa komið upp í gegn- um unglinga- flokka þessara atvinnumanna- liða og svo leik- ið með aðalliði félagsins. eirikursmdv.is Garöar Gunnlaugsson Reyndi fyrírsérhjá Dunfermlinel Skotlandi en fékk fá tækifæri. DV-mynd SNS Hordur Sveinsson Hefurslegiðí gegn í dönsku úrvalsdeildinni. DV-myndJakob Stigsen Andersen Keflavík í æfingabúðum á Canela á Spáni þessa dagana Tíu útlendingar æfa með Keflavík á Spáni Það er nóg um að vera hjá ís- lenskum knattspyrnuliðum þessar vikurnar. Flest halda þau erlendis í æfingabúðir í þessari viku og eru til að mynda lið Keflavíkur og Breiða- bliks á Canela á Spáni. Þar hefur reyndar herjað flensa á mannskap- inn og í gær lágu til að mynda fýr- ir Guðmundur Steinarsson, fyrirliði Keflavíkur, og Bjarni Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks. En það vekur mikla athygli hversu margir erlendir leikmenn æfa með Keflavík þessa dagana. Alls eru þetta tíu leikmenn sem eru flestir á reynslu hjá félaginu. Líber- íumaðurinn Buddy Farah kom til móts við liðið um helgina og þá eru samningsbundnir félaginu Banda- ríkjamaðurinn Geoff Miles, Ken- neth Samuelsson frá Svíþjóð og Færeyingurinn Simun Samuelsen. Þá eru strangt til tekið þeir Issa Abdulkadir frá Sómalíu og Bran- islav Milicevic frá Serbíu enn samn- ingsbundnir en forráðamenn Kefla- víkur ákváðu að rifta samningnum við þá í síðasta mánuði. Þeir báðu hins vegar um að fá tækifæri til að sanna sig á nýjan leik og æfa því enn með liðinu. Þá eru fjórir leikmenn sem komu til móts við Keflavík á Canela til að æfa með liðinu. Guðmundur Steinarsson staðfesti það í samtali við DV sport í gær. Um er að ræða rúmenskan varnarmann, leikmann frá Sierra Leone sem heitir Alfa og leikmann.frá Júgóslavíu sem kem- ur til Iiðs við liðið í dag. Að síðustu er ástralskur sóknarmaður, Daniel Severino að nafni, að æfa með lið- inu en hann hefur verið á máli hjá Piacenza á Ítalíu sem og Millwall á Englandi. Er hann með ítalskt vega- bréf. Ú tlend ingahersveit Svo gæti fariö að tiu útiendingar spili meö Keflavík I sumar. DV-mynd Valgarður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.