Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.1955, Side 35

Freyr - 01.04.1955, Side 35
FREYR 123 landinu. Fyrir það er ég honum og hinum 7 félögum hans þakklátur. Síðar reyndist Hjálmar vel í starfi sínu. Hann á því sinn góða hlut í því trausti, sem framhalds- deildin hefur öðlazt. Hjálmar Jónsson var hæglátur maður og lét lítið yfir sér. Hann var bóngóður, lagði aldrei annað en gott til manna og málefna og taldi ekki tímana við vinnu sína. Sem ráðunautur búnaðarsambands Borgar- fjarðar ferðaðist hann mikið um meðal bænda, tók út jarðabætur, mældi fyrir skurðum, vann að stofnun fjárræktarfé- laga og hrossaræktarfélaga og leiðbeindi bændum á margan annan hátt. Alveg sér- staklega var borið gott traust til hans við áætlanir um uppþurrkun lands og mæingu fyrir framræsluskurðum. Hefur það haft mjög mikla þýðingu fyrir Borgfirðinga nú hin síðari ár að hafa öruggum manni á að skipa á því sviði. Innti Hjálmar þar af hendi mikið og gott starf. Frá vori 1953 var Hjálmar einnig fram- kvæmdastjóri ræktunarsambands Borgar- fjarðar. Er það mikið starf og undravert, að hann skyldi anna því með umfangsmiklu ráðunautsstarfi. Hjálmar var vinsæll meðal allra er kynntust honum, ekki sízt meðal heimilis- fólks á Hvanneyri og borgfirzkra bænda, enda var hann vaxandi maður í ábyrgðar- miklu starfi. Lík hans var flutt að Hvanneyri 13. marz. í Hvanneyrarkirkju fór fram minningarat- höfn um hann að viðstöddu heimilisfólki og nemendum á Hvanneyri og fjölmörgum bændum úr héraðinu, en skólapiltar buðu gestum til kaffidrykkju. Daginn eftir var hann fluttur til æskuheimilis síns, en út- för fór fram að Glaumbæ í Skagafirði laugardaginn 19. marz. Það er mikil eftirsjá að góðum dreng og ágætum starfsmanni úr fámennum hópi búfræðikandídata hér á landi. Hvanneyr- ingar og Borgfirðingar allir, sem kynntust honum, minnast hans með virðingu og þakklæti. Hvanneyri, 20. marz 1955. Hjálmar Jónsson réðst til starfs hjá Bún- aðarsambandi Borgarfjarðar þegar að loknu námi 1949, vann hjá því sem ráðunautur til dauðadags og gegndi einnig 'fram- kvæmdarstjórn fyrir Ræktunarsamband Borgarfjarðar tvö síðustu árin. Hann var ekki áhlaupamaður, ekki einn þeirra, sem koma, sjá og sigra án fyrirhafn- ar. En hann var svo samvizkusamur, trúr og vandaður, að hann óx með starfi sínu jafnt og þétt, hann stundaði það með prýði og afkastaði því með sæmd. En mér bæði ljúft og skylt að færa fram þakkir fyrir það frá Búnaðarsambandinu og bændun- um sem að því standa, og sjálfur þakka ég ánægjulegt samstarf og ljúfa persónulega viðkynningu. Ungur maður er hrifinn snögglega frá störfum mitt í glaðri önn dagsins. Vaxandi manni er kippt burt og klipptur sundur þroskaferill hans hér á iörðu. Þetta er svip- legt og sárt. En innilegasta hamingja og gleði þeirra, sem unna ungmenni, er þó sú, að sjá það vaxa og þroskast, sjá það efla sálarkrafta sína við að leggja sig fram til fullnustu, sjá það með því sigrast á örðug- leikum, en fyrst og fremst þó að sjá það verða að góðum og hugljúfum manni. Og tilgangur lífsins á jörðinni hlýtur þó að vera sá að þroskast sem mest, en ekki að lifa sem lengst. Auk þess höfum við leyfi til að vona að sá sem hrifinn er frá vettvangi starfsins hér, öðlist þá vængi er flytji hann yfir á annað svið, þar sem honum auðnist mera að starfa Guðs um geim. Með innilegustu hluttekningarkveðju til foreldra hans og annara vandamanna. Guðmundur Jónsson frá Hvílárbakka. Guðm. Jónsson.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.