Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.1955, Side 47

Freyr - 01.04.1955, Side 47
ingar og Gilsi'jarðar-Bitrugirðingar skai merkja féð með krómgulum lit á bæði horn. w f * 4 14. gr. í hólfinu frá Gilsfjarðar-Bitrugirðingar að Beruf j arðar-Steingrímsf j arðargirðingu skal merkja féð með bláum lit á bæði horn. Allt fé á Vestfjörðum þar norðan við skal vera ómerkt. Einnig skal vera ómerkt allt fé á svæðinu frá Hrútafjarðargirðingu að Miðfj arðargirðingu. 15. gr. Á svæðinu frá Miðfjarðargirðingu að Blöndu skal merkja féð með hvítum lit á bæði horn. Milli Blöndu og Héraðsvatna skal féð vera ómerkt. 16. gr. í Akrahreppi skal merkja féð með króm- gulum lit á bæði horn. í Viðvíkursveit, Hólahreppi, Hofshreppi og Hofsóshreppi skal merkja féð með rauðum lit á bæði horn. Á svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga og Hörgár, inn að Bægisá, skal merkja féð með hvítum lit á bæði horn. í Saurbæjar- hreppi og aðliggjandi bæjum sunnan og vestan Eyjafjarðargirðinga, skal merkja féð með bláum lit á bæði horn. Annað fé á svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga og Héraðsvatna skal vera ómerkt. 17. gr. Á svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga og Skjálfandafljóts skal merkja féð með rauðum lit á bæði horn. 18. gr. Á svæðinu milli Skjálfandafljóts og Jök- ulsár á Fjöllum, sunnan Gæsafjailagirð- ingar skal merkja féð með hvitum lit á hægra horn. Annað fé á þessu svæði skal vera ómerkt. 19. gr. Á Hólsfjöllum, Axarfirði og Núpasveit skal merkja féð með grænum lit á hægra horn, nema á bæjum þar sem garnaveiki hefur orðið vart, þar skal merkja féð með grænum lit á bæði horn. 20. gr. í Presthólahreppi og Svalbarðshreppi norðan Sléttugirðingar skal merkja féð með krómgulum lit á bæði horn. Á Rauf- arhöfn skal merkja féð með rauðum lit á bæði horn. 21. gr. í Svalbarðshreppi sunnan Sléttugirðing- ar, Sauðaneshreppi, Múlasýslum báðum og Bæjahreppi í Austur-Skaftafellssýslu skal merkja féð á bæjum þar sem garnaveiki hefur orðið vart, með bláum lit á bæði horn. 22. gr. Öllum fjáreigendum er stranglega bann- að að litarmerkja fé á hornum eða haus öðruvísi en að framan greinir, nema að fengnu leyfi framkvæmdastjóra sauð- fjársjúkdómanefndar. Gamlar litarmerk- ingar, sem brjóta í bága við framanskráð fyrirmæli, skal afmá. 23. gr. Hreppstjórum er skylt að sjá um, að fyr- irmælum þessum verði framfylgt. Undan- brögð eða brot gegn þeim varða sektum samkvæmt lögum nr. 44, 9. maí 1947. Reykjavík, 20. marz 1955. Sauðfjársjúkdómanefnd

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.