Freyr - 01.04.1955, Blaðsíða 47
ingar og Gilsi'jarðar-Bitrugirðingar skai
merkja féð með krómgulum lit á bæði horn.
w f * 4
14. gr.
í hólfinu frá Gilsfjarðar-Bitrugirðingar
að Beruf j arðar-Steingrímsf j arðargirðingu
skal merkja féð með bláum lit á bæði horn.
Allt fé á Vestfjörðum þar norðan við skal
vera ómerkt. Einnig skal vera ómerkt allt
fé á svæðinu frá Hrútafjarðargirðingu að
Miðfj arðargirðingu.
15. gr.
Á svæðinu frá Miðfjarðargirðingu að
Blöndu skal merkja féð með hvítum lit á
bæði horn. Milli Blöndu og Héraðsvatna
skal féð vera ómerkt.
16. gr.
í Akrahreppi skal merkja féð með króm-
gulum lit á bæði horn. í Viðvíkursveit,
Hólahreppi, Hofshreppi og Hofsóshreppi
skal merkja féð með rauðum lit á bæði
horn. Á svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga
og Hörgár, inn að Bægisá, skal merkja féð
með hvítum lit á bæði horn. í Saurbæjar-
hreppi og aðliggjandi bæjum sunnan og
vestan Eyjafjarðargirðinga, skal merkja
féð með bláum lit á bæði horn. Annað fé
á svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga og
Héraðsvatna skal vera ómerkt.
17. gr.
Á svæðinu milli Eyjafjarðargirðinga og
Skjálfandafljóts skal merkja féð með
rauðum lit á bæði horn.
18. gr.
Á svæðinu milli Skjálfandafljóts og Jök-
ulsár á Fjöllum, sunnan Gæsafjailagirð-
ingar skal merkja féð með hvitum lit á
hægra horn. Annað fé á þessu svæði skal
vera ómerkt.
19. gr.
Á Hólsfjöllum, Axarfirði og Núpasveit
skal merkja féð með grænum lit á hægra
horn, nema á bæjum þar sem garnaveiki
hefur orðið vart, þar skal merkja féð
með grænum lit á bæði horn.
20. gr.
í Presthólahreppi og Svalbarðshreppi
norðan Sléttugirðingar skal merkja féð
með krómgulum lit á bæði horn. Á Rauf-
arhöfn skal merkja féð með rauðum lit á
bæði horn.
21. gr.
í Svalbarðshreppi sunnan Sléttugirðing-
ar, Sauðaneshreppi, Múlasýslum báðum og
Bæjahreppi í Austur-Skaftafellssýslu skal
merkja féð á bæjum þar sem garnaveiki
hefur orðið vart, með bláum lit á bæði horn.
22. gr.
Öllum fjáreigendum er stranglega bann-
að að litarmerkja fé á hornum eða haus
öðruvísi en að framan greinir, nema að
fengnu leyfi framkvæmdastjóra sauð-
fjársjúkdómanefndar. Gamlar litarmerk-
ingar, sem brjóta í bága við framanskráð
fyrirmæli, skal afmá.
23. gr.
Hreppstjórum er skylt að sjá um, að fyr-
irmælum þessum verði framfylgt. Undan-
brögð eða brot gegn þeim varða sektum
samkvæmt lögum nr. 44, 9. maí 1947.
Reykjavík, 20. marz 1955.
Sauðfjársjúkdómanefnd