Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Blaðsíða 11
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 23. JÚNl2006 11
K
Ellefu íslenskir tónlistarmenn munu skrifa undir samning við
Baug Group um stofnun Hugverkasjóðs íslands. Fyrirtækið greið-
ir listamönnunum samtals um 160 milljónir króna gegn því að fá
allar tekjur af hugverkum listamannanna. Bubbi Morthens er
langdýrastur listamannanna en Baugur þurfti að borga Sjóvá
tæpar 40 milljónir til að fá Bubba yfir til sín.
Stuðmaðurinn Jakob Frímann
Magnússon hefur haft veg og vanda
af stofnun sjóðsins en hann var hug-
myndafræðingurinn á bak við fræg-
an hugverkasamning Bubba Mort-
hens og Sjóvár fyrir um einu og hálfu
ári síðan. Jakob Frímann sagði í sam-
tali við DV í gær að það væri sam-
dóma álit allra í tónlistarstéttinni að
þessi þróun væri mjög gott mál.
Tímabær valkostur
„Þetta var löngu tímabær val-
kostur og kominn tími til að gildi
höfundarverksins sem liornsteins
menningar- og afþreyingargeirans
sé viðurkennt," sagði Jakob Frímann
og Jirósaði Baugi fyrir framsýnina.
„Þeir eru að svara kalli nútím-
ans með því að sýna samfélagslega
ábyrgð. Þetta snýst elcki bara um við-
skiptaþáttinn en ég held að bæði
höfundar og fjárfestar muni græða
að lokum."
Bubbi er kóngurinn
DV hefur skoðað listamennina
ellefu sem munu semja við Baug og
reynt að rýna í hversu verðmæt hug-
verk þeirra eru. Það kemur varla
mörgum á óvart en Bubbi Morthens
ber höfuð og herðar yfir aðra lista-
menn þegar kemur að verðmæti hug-
verka. Heimildir DV herma að Baug-
ur Group borgi Sjóvá um 40 milljónir
fyrir Bubba, sem sé noklcrum millj-
ónum minna en Sjóvá greiddi Bubba
á sínum tíma. Bubbi er enn gífurlega
vinsæll og virðist ekki lát ætla að
verða á því.
Jakob Frímann sagði aðkomu
viðskiptalífsins af tónlist sjást best á
Bubba. „Ég tek sem dæmi tónleika
hans á dögunum. Tvö stórfyrirtæld
keyptu miðana og úr varð frábær
skemmtun. Þessir tveir kimar geta
auðveldlega spilað saman."
Garden Party gefur vel
E/þór Gunnarsson, einn með-
Heimildir DV herma að
Baugur Group borgi
Sjóvá um 40 milljón-
ir fyrir Bubba, sem sé
nokkrum milljónum
minna en Sjóvá greiddi
Bubba á sínum tíma.
lima Stuðmanna og Mezzoforte, er
einn af tónlistarmönnunum ellefu.
Hann sagði í samtali við DV í gær að
helsta tekjulind hans væri Mezzofor-
te-lagið vinsæla Garden Party. „Það
er gífurlega vinsælt í útlöndum og
hefur séð til þess að ég er iðulega á
meðal þeirra hæstu þegar kemur að
STEF-gjöldum," sagði Eyþór.
Skrifað undir í næstu viku
Eins og áður hefur komið fram
munu listamennirnir ellefu skrifa
undir samninginn við Baug í næstu
viku. Rétt er að hafa í huga að tölurn-
ar sem birtast hér að neðan eru ekki
tölurnar úr samningi hvers og eins
heldur ágiskun sérfræðinga sem DV
leitaði til við vinnslu greinarinnar.
oskar@dv.is
Tímamót Bubbi sést hérskrifa undir samninginn við Sjóvá Ifebrúar á siðasta ári. Þetta var
fyrsti hugverkasamningur tónlistarmanns en númunu tiu aðrir fytgja íkjölfarið.
DV-mynd Pjetur
Vinsæl lög eftir Egil
Brúðkaupsvisur
Skýin
Ofboðslega frægur
Gerðu þaö hringdu ími
Fönn, fönn, fönn
Skál
Ástardúttinn
Islenskir karlmenn
Sigurjón digri
Það brennur
Ekkertmái
Bíólagið
Staldraðu við
. milljónir
Egill Ólafsson
Frábær söngvari en
einniglunkinnlaga-
og textasmiður.
Jakob Frlmann
Magnússon
Hugmyndasmiður
Hugverkasjóðsins hefur
verið ötuli lagasmiður, þó
sérstaklega með
Stuömönnum.
Vinsæl lög með
Valgeiri
Ástardúttinn
Islenskirkarlmenn
Sigurjón digri
Sirkus Geira smart
Slá I gegn
Twistlagið
Biólagið
Popplag í G-dúr
l'm an lcelandic Cowboy
Ástin
Valgeir Guðjónsson
Með tvö eurovison-tög
á bakinu og fjöldann
allan áffrægum
slögurum.
Vinsæl lög eftir Jakob
Frímann
Út á stoppustöð
Txtum og tryllum
Röndótta mær
Hveitibjörn
Frímann flugkappi
Halló, halló
Með allt á hreinu
Fönn, fönn, fönn
Að vera i sambandi
milljónir
Ragnhildur Gísladóttir
Frábær söngkona sem var
aðalsprautan í Grýlunum og
lagöisittafmörkum tilmargra
frægra laga Stuðmanna.
Vinsæl lög eftir Ragnhildi
Hvað ersvona merkilegt viðþað
Manst ekki eftir mér
Slsi
Ekkertmál
Þú manst aldrei neitt
Helgi Björnsson
Aðalsprautan i
Slðan skein sól,
seinnaSSsói.
núljjónir
Eyþór Gunnarsson
Lögin meö
Mezzofortegefa vel
af sér á erlendri
grundu.
Vinsæl lög eftir
Eyþór
Garden Party
MidnightSun
EG Blues
Halló, hal/ó
Með alltáhreinu
Fönn, fönn, fönn
v mijljjónir
Vinsæl lög eftir Helga
Þúsund sinnum segðu já
Húsið og ég (Mér finnst
rigningin góð)
16
Ég verð að fá að skjóta þiq
Lofméraðlifa
Geta pabbar ekki grátið
Vertu þú sjálfur
Égstendáskýi
Dísa
Halló, ég elskaþig
Vinsæl lög eftir Jón
Sunnudagsmorgun
Llf
Þrisvariviku
Alelda
Horfðu til himins
Boywho giggledso
sweet
niilljónir
Jón Ólafsson
Snjall hljóðfæraleik-
ari og lipur
lagasmiður.
Jakob Frímann 10 mijljónir
Eyþór Gunnarsson lOmilliónir
Jón Olafsson 5 milljónir
Helqi Björnsson 5 milljónir