Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Blaðsíða 54
66 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006
Helgin DV
Töframaðurinn Pétur Pókus segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við fikniefnalögregluna á
Keflavíkurflugvelli. Þegar hann kom frá Lundúnum á dögunum var hann tekinn afsíðis og haldið í þrjá og hálf-
an tíma. Pétur hafði ekkert ólöglegt í fórum sínum en hann er yfirmaður á meðferðarheimilinu Stuðlum.
„Þetta var alger valdníðsla,"
segir Pétur Finnbjörnsson
töframaður, betur þekktur sem
Pétur Pókus. Pétur var á ferð í
gegnum Leifsstöð á dögunum
þegar hann var stoppaður, tek-
inn til yfirheyrslu í þrjá tíma.
Leitað var á Pétri sem hafði
ekkert ólöglegt í fórum sínum.
Pétur fór út til Lundúna fyrir um
þremur vikum til þess að skemmta.
„Ég fór út á flmmtudegi og þá byrj-
uðu þeir [tollverðirnir, innskot
blaðamanns] á því að taka af mér
leðurmanninn minn. Svo þegar ég
kom til baka þá sögðu þeir að það
væri búið að eyða honum. Þetta er
fimmtán þúsund króna græja sem ég
nota mikið þegar ég er að skemmta,"
segir Pétur. Þegar tollverðirnir tóku
leðurmanninn af Pétri spurðu þeir
hann hvenær hann kæmi aftur en
Pétur segist ekki hafa getað svarað
því þar sem hann átti einungis pant-
að far aðra leiðina. „Þá var ég með
stæla að þeirra mati," segir Pétur.
Tóku allt galdradótið
Þegar Pétur kom heim frá Lund-
únum var hann stoppaður í tollin-
um. „Þá hélt fíkniefnalögreglan mér
í þrjá og hálfan tíma, en taktu eft-
ir því - ég er yfirmaður á meðferð-
arheimili," segir Pétur sem starfar á
meðferðarheimilinu Stuðlum. „Fyr-
ir utan að ég er skemmtikraftur. Það
er nóg af öðru fólki að taka dóp inn
í landið þannig að ég þurfi ekki að
vera að skemma mitt nafn líka. Svo
voru þeir með schaffer-hund og ég
sagði þeim að ég myndi drepa hann
ef hann myndi snerta mig því ég var
bitinn af svona hundi þegar ég var
krakki." Pétur segir að farið hafi ver-
ið í gegnum allt galdradótið hans og
honum hleypt í gegn með einungis
handtöskuna sína. „Ég þurfti svo að
borga toll til að fá þetta inn í-landið.
Dótið fór á vöruhótel á Reykjavík og
fyrir utan að þurfa að borga tæpar
þrjátíuþúsund krónur í toll, þá þurfti
ég að borga þeim tæpan fimmþús-
und kall fyrir geymslu á vöruhótel-
inu. Ég bað ekki einu sinni um að
þetta yrði geymt þarna. Ég fékk ekki
einu sinni tækifæri til þess að velja
vöruhótel til að láta geyma þetta á.
Ennþá hress Litlu munaði að góða skap galdramannsins hyrfiþegar hann lenti I tollinum.
Ég hefði fengið TVG Zimsen til að
geyma þetta og þeir hefðu ekki rukk-
að mig neitt fyrir það," segir Pétur.
Þurfti lögreglubréf
Á 17. júm' var Pétur boðaður aftur
út til Lundúna, þá til þess að skemmta
íslendingafélaginu þar í borg. Áður
en hann hélt þangað þurfti hann að
setja sig í samband við Ríkislögreglu-
stjóra.
„Þeir eru mjög almennilegir þar.
Þar var var útbúið fyrir mig lögreglu-
bréf svo ég gæti komist óáreittur út
með galdradótið," segir Pétur. „Mér
líkar ekki svona íramkoma af hálfu
yfirvalda. Það er allt í lagi að lenda í
eftirliti en þá verður að koma sóma-
samlega fram við mann," segir Pét-
ur og bendir á að hann hafi oft þurft
að eiga við breskyfirvöld og annað sé
uppi á teningnum þar. „Það eru al-
gerir snillingar. Þar ferðu bara í gegn-
um ákveðið kerfi og ekkert vesen.
Maðurinn sem fer með þér í gegn-
um þetta er bara að djóka við þig,
en kemur ekki fram við þig eins og
glæpamann."
Tapaðfé
Pétur segist vera búinn að kynna
sér hvort hann geti með nokkru móti
fengið endurgreiddan þennan kostn-
að sem hann þurfti að leggja út í. „Ég
get ekki fengið þetta til baka, ég er
búinn að kynna mér það hjá hæsta-
réttarlögmanni. Hins vegar var brot-
ið á mér þarna því ég mátti fara með
meirihlutann af dótinu í gegn," segir
Pétur. Hann segist núna alltaf ætla að
ferðast með lögreglubréfið með sér.
„Ég tek það með mér á sólarströnd,"
segir Pétur og hlær dátt. Hann seg-
ist ekki hafa verið með nein hættuleg
vopn þegar hann fór út í fyrra skiptið
en nú taki hann öll sverðin og hníf-
ana með sér. Af því að hann má það.
Vesen í tollinum Pétur er ekki sáttur við meðferðina sem hann fékk.
BOLTINN I BEINNI
VEISLUSALUR
afmæli, steggir / gæsir og einkasamkvæi
POOL & SNOKERr
Hverfisgata 46 s: 55 25 300