Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 23. JÚNl2006
Fréttir DV
Eignarhaldsfélagið ORK hefur fest kaup á lóðunum við Skerjabraut 1 og 3 á Seltjarnarnesi og hyggst byggja
þar íbúðir fyrir fólk sem er komið yfir fimmtugt. Tillögur félagsins voru kynntar íbúum á kynningarfundi í
gærkvöldi en Reynir Kristinsson hjá Frjálsa úárfestingabankanum sagði við DV að mikill skortur væri á íbúð-
um fyrir fólk á þessum aldri á Seltjarnarnesi.
Lóöln séö aÖ ofan
Einsogsjámðá þessari mynd er tóbln á
iinum staö á Seltjarnarnesi f námunda
við Elöistorg og ekki langt frá
nýuppgeröri sundlaug þeirra Seltirninga.
Loftmyndir
Þessi húsfáaðvíkja
Húsiö þarsem Prjónastof-
an löunn var áöur til húsa
aö Skerjabraut I og
einbýlishúsið aö
Skerjabraut3 fá að víkja
fyrir Ibúðum sem hýsa
eiga fimmtfu ára og eldri.
DV-myndGVA
ORK byggir íbúðir fýrir
eldra fólk á Nesinu
Eldra fólk á Seltjarnarnesi, sem hefur í hyggju að minnka við sig
en vill ekki flytja burt úr bæjarfélaginu, getur tekið gleði sína því
eignarhaldsfélagið ORK stefnir að því að byggja íbúðir fyrir fólk
yfir fimmtugu á lóð við Skerjabraut. Skortur hefur verið á slíkum
íbúðum því einungis hefur verið boðið upp á íbúðir fyrir eidri
borgara í Tjarnarmýri og á Vistheimilinu Bjargi á Skólabraut. í
gærkvöldi var haldinn kynningarfundur með íbúum þar sem
viðraðar voru hugmyndir arkitekta en DV var farið í prentun áður
en sá fundur hófst.
Fólk sem hefur búið á Seltjarnar-
nesi frá unga aldri vill gjarnan búa
þar áfram þótt árin færist yflr það.
Fáir möguleikar hafa verið í boði fyr-
ir fólk sem hefur viljað flytjast úr risa-
stórum einbýlishúsum sínum í íbúð-
ir sérhannaðar fyrir eldra fólk. Nú
hyggst hins vegar eignarhaldsfélag-
ið ORK bæta úr því. Félagið hyggst
byggja íbúðir fyrir fólk sem komið er
yfir fimmtugt á reitnum sem nær yfir
Skerjabraut 1 og 3. Þar stendur nú
húsið sem hýsti Prjónastofuna Ið-
unni auk einbýlishúss á Skerjabraut
3 sem var í eigu hjónanna Steinunn-
ar Stefánsdóttur, ritstjórnarfulltrúa á
Fréttablaðinu, og Arthurs Morthens
hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
Rándýr lóð
Aðstandendur eignarhaldsfélags-
ins vildu ekki gefa upp hversu mikið
„Við höfum ákveðið að
tala fyrst við íbúana
og heyra þeirra sjónar-
mið. Það mun svo ráð-
astafþeim viðbrögð-
um hvernig endanlegar
teikningar líta út"
greitt var fyrir lóðimar en heimildir
DV herma að það hafi verið um 150
milljónir fyrir rúmlega 2700 fermetra
lóð. Það er Frjálsi fjárfestingabank-
inn sem fjármagnar framkvæmdina
og sagði Reynir Kristinsson, fulltrúi
bankans íþessu máli, að mikill skort-
ur væri á íbúðum fyrir fólk á þessum
aldri á Seltjarnarnesi og þessi fram-
kvæmd liti að því að bæta úr því.
Mikil eftirspurn
Reynir sagði að hann hefði nú
þegar fundið fyrir miklum áhuga
íbúa á Seltjarnarnesi gagnvart
framkvæmdinni og nú þegar væru
einstaklingar farnir að falast eftir
því að tryggja sér íbúð. ORK hefur
ekki sett sig í samband við bæjar-
yfirvöld á Seltjarnamesi og sagði
Reynir það gert af ásettu ráði.
Ákveðið hefði verið að tala fyrst við
íbúa á Nesinu.
(búar með í ráðum
Reynir sagði að það væri rétt að
ekki væru farnar hefðbundnar leiðir
í þessu ferli. „Við höfum ákveðið að
tala fyrst við íbúana og heyra þeirra
sjónarmið. Það mun svo ráðast af
þeim viðbrögðum hvernig endan-
legar teikningar líta út. Það er mikil-
vægt fyrir okkur að gera þetta í sátt og
samlyndi við íbúana og síðan mun-
um við tala
við bæjaryf-
irvöld," sagði
Reynir.
oskar@dv.is
i húsið sitt Steinunn Stefánsdóttir,
ritstjórnarfulltrúi á Fréttablaðinu, og
eigínmaöur hennarArthur Morthens seldu
hús sitt á Skerjabraut 3 til ORK ehffyrir
rúmaF
Saltfiskveisla að
hefjast
Rannsókn að ljúka í hrottalegu ofbeldismáli
Fyrsta saltfisk-
veislan í Neðstakaup- .
stað verður laugardag-
inn 1. júlí. Hefð hefur komist á að
Byggðasafn Vestfjarða standi fyrir
fýrstu veislunni og fái nokkra kunna
alþýðukokka til að útbúa hlaðborðið
með sólþurrkuðum fiski af reit safns-
ins í Neðstakaupstað. Þá mun Salt-
fisksveit Villa Valla leika undir borð-
haldinu og laða ffam nokkur óvænt
dansspor hjá gestum. Fólki er bent á
að tryggja sér miða hjá safninu í sím-
um 456 3297 og 456 3299 eða í 896
3291. bb.is segir frá.
átning liggur fyrir í puttaklippumálinu
Rannsókn lögreglunnar á Akur-
eyri í hinu svokallaða puttaklippu-
máli, sem upp kom á Akureyri nú
undir lok maí, er senn að ljúka. Þrír
menn sem allir voru handteknir í
upphafi málsins afplána nú fyrri
fangelsisdóma sína enda hafa þeir
allir komist margítrekað í kast við
lögin. Þeir eru Kristján Halldór Jens-
son, Steindór Hreinn Veigarsson og
Gunnar Freyr Þormóðsson. Piltarnir
eru allir fæddir í kringum 1980.
Játning liggur fýrir í málinu en
Daníel Guðjónsson yfirlögregiu-
þjónn vildi ekki upplýsa nánar um
málið en á þann hátt að rannsókn
væri nánast lokið og málið væri í far-
vegi: „Rannsókninni er næstum lok-
ið, það eru einungis tæknileg atriði
eftir og næsta skref er ákærumeð-
ferð," sagði hann. Þeir Gunnar Freyr
og Steindór Hreinn fengu í byrjun
mars þunga dóma í hrottalegu lík-
amsárásarmáli sem upp kom á Ak-
ureyri í fyrra. Málið skók Akureyr-
arbæ en ungur drengur var barinn
illa af þeim og fleirum ásamt því að
þeir klæddu hann úr bol sínum. Að
því loknu drógu þeir hann eftir mal-
arplani í bænum svo illa að drengur-
inn hlaut áverka á líkama.
Að loknum misþyrming-
unum rændu þeir föt-
um drengsins og síma
og skildu hann eftir í
sárum sínum.
Verði drengirnir sak-
felldir bíður þeirra þung
refsing en refsiramminn
fyrir brot af þessu tagi
er sextán ár.
gudmundur@dv.is
Puttakllppumálið Kristján
Halldór Jensson og Steindór
Hreinn Veigarsson eru, ásamt
Gunnari Frey Þormóðssyni,
grunaðir um hrottalega
Hkamsárás.