Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Side 34
46 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006 Helgin PV Felldi tvi Hún tók riffilinn, miðaði og hitti beint í hjartastað. Á því augnabliid felldi hún tvö afrísk dýr í einu, antil- ópu og strútabónda. Niel Jeppe kolféll fyrir þessari ljóshærðu gyðju með bláu augun sem vílaði ekki fyrir sér að maka blóði úr Jifur hins fellda dýrs á kinn- ar sér, drekka kom'ak og borða lifrina heita og hráa. Hún hélt að hún væri að haida í heiðri siðvenju. Sem hún var að gera. Siðvenju, sem enginn karlmann- anna sem með henni voru höfðu lagt í að framkvæma sjálfir. En Unnur Berg- lind Guðmundsdóttir lætur ekki skora sig á hólm nema einu sinni. Hún er kona sem þorir eins og sagan sýnir. Núna, nákvæmlega ári síðar, skelli- hlær hún að endurminningunni. Á einu ári hefur orðið umbylting á lífi þessar- ar ungu konu. Kennari við Korpuskóla sem lendir í verkfalli er skyndilega orð- in „Misses" á stóru strútabúi í Suður- Afríku. Frá því að þvo 24 klósett á dag um borð í fimm stjömu skemmtiferð- arskipi, má hún eldd dýfa hendi í kalt vam. Á morgnana færir þjónustustúlk- an henni kaffi í rúmið. Húsið sem hún býr í er yfir 500 fermetrar og landar- eignin 1700 hektarar. Þar em tuttugu vinnumenn við störf. Sambýlismaður hennar er „Bass" - Stjórinn, sá sem á og stjómar lándinu. Sjálf er hún ekld með atvinnuleyfi í landinu og til að hafa eitthvað fýrir stairii ákvað hún að vinna að endurbótum þessa 200 ára gamla fallega húss. Þá féll hann í ann- að sinn, lögfræðingurinn og strúta- bóndinn. Tískusýningardama og kvikmyndaleikkona Unnur Berglind er vel þekkt úr ís- lensku þjóðlífi. Allt frá því að hún var h'til telpa hefur þjóðin vitað hver hún er, dóttir Hennýjar Hermannsdóttur, danskennara og fegurðardrottningar og Guðmundar heitins Kristinsson- ar, sem var vaktstjóri hjá Loftleiðum á KeflavíkurflugveUi. Hún sýndi á tísku- sýningum frá því hún var smástelpa, kom ffarn í auglýsingum, kynnti teiíöii- myndir í sjónvarpinu í tvö ár, lék í kvik- myndunum Húsið og Stelia í orlofi - að ógleymdum danssýningum og dans- keppni sem hún tók þátt í með góð- um árangri. Dansinn er henni í blóð borinn og hún lauk danskennaraprófi jafnhliða stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík þegar hún var 19 ára. Fór óbeint í lögfræði í Suður- Afríku Unnur Berglind hugsar sig um þeg- ar ég spyr hvort það hafi verið ást við fyrstu sýn þegar hún hitti Niel, mann- inn sinn. „Nei, líklega ekki, en vissulega fannst mér hann afar heillandi mað- ur," segir hún og brosir. Svo heillandi, að augun í henni tindra bara við að tala umhann. „Hver fellur ekld fyrir hjartahlýjum, skemmtilegum manni, sem opnar dyr fýrir konuna sína, gætir þess að hún sé aldrei með tómt glas - og lifir fýrir að annast hana?" segir hún og hlær. „Slík- an mann hafði ég ekki hitt á íslandi." En það var ekki bara framkoma mannsins sem var eitthvað sem hún ekki þekkti að heiman. „Þetta eru mikil viðbrigði frá því llfi sem ég lifði á Islandi," segir hún. „Ég hef alltaf unnið fýrir mér, var við dans- kennslu frá því ég var unglingur, lauk kennaraprófi og keypti mér íbúð og bfl Afríska fjölskyldan A landareign Niels og Unnar Berglindar búa 60 manns. Þetta er hluti afafrlsku fjölskyldunni. 22 ára," útskýrir hún. „Ég starfaði sem kennari við Korpuskóla í þrjú ár fram að verkfallinu 2004 og kenndi samtím- is dans við íþróttakennaraháskólann á Laugarvatni og í dansskóla í borginni. Eftir verkfallið varð mér ljóst að það skipti ekfd máli hversu mikla reynslu kennarar hafa, launahækkanir fara eft- ir aldri. Þetta er letjandi launakerfi sem á ekki við mig. Ég vil að einstakling- um sé umbunað eftir vinnuframlagi, ekld að ailir sitji við sama borð hvort sem þeir vinna eða eru áskrifendur að laununum. Ég ákvað að breyta til og sótti um í meistaranámi við Háskólann í Reykjavík. Þetta var í fýrsta sinn sem átti að gefa öðrum en lögfræðinemum tældfæri til að nema lögfræði. Við vor- um fimmtán sem náðum inn og ég var vissulega mjög stolt. Ég keypti bækum- ar í fýrrasumar og ákvaö að vera dugleg að lesa í sumarleyfinu mínu." Hélt í gamlar hefðir - borðaði heita lifur... Það má segja að hún hafl lcert lög- frceðina á sinn hátt. Þótt hún hafl aldrei opnað námsbcekumar er hún margs vísari um lögfrceði - enda erNiel Jeppe menntaður lögfrceðingur. Þannig að þú fórstóbeint í lögfrœðina? „Já, það má orðaþað svo að ég hafi tekið lögfræðina!" segir hún og hlær. „Niel og vinir hans fóru með mig á veiðar, enda er mUdl veiðimennska stunduð í landinu hans. Þeir vildu að ég prófaði að skjóta antilópur, sem eru um allt, en létu mig fýrst æfa mig að skjóta á Aloa Vera plöntu. Ég hitti beint á plöntuna, þeir hlóðu byssuna, réttu mér hana og ég miðaði á antilópu. Skaut - og hitti hana beint í hjartastað. Þeir djóka með þetta vinimir, að á því augnabliki hafi ég fellt tvö afrísk dýr í einu skoti!" segir hún. Ogþá varkomið að hejðinni? „Þeir sögðu mér að það væri hefð fýrir því eftir fýrsta dráp, að veiðimað- urinn yrði að drekka koníak, blóðga andlit sitt með lifrinni úr dýrinu og borða hana svo, heita og hráa. Ég bara hlýddi - en svo kom í ljós að þeir hafa aldrei gert þetta sjálfir! Ég var fýrsta konan sem kom á bæinn sem hafði skotið dýr og borðað lifrina." Antilópan dó, en strútabóndinn og lögfrceðingurinn var sprelllifandi, hcefður íhjartað? „Hann sannfærði mig um að ég ætti að flytja til hans, en ég var með mín framtíðarplön og var ekki alveg á því fýrstu dagana að setjast að í Suður-Afr- flcu. Það sem ég vissi ekki fyrr en eftir á var að Niel og Björk æskuvinkona mín, höfðu gert með sér samkomulag: Ef hann fengi að hafa mig megnið af mán- uðinum, lofaði hann Björku því að hún fengi að hafa mig í nágrenni við sig í framtíðinni. Að lokum hugsaði ég með mér: „Af hveiju ekki, ef þetta gengur ekki upp, þá fer ég bara heim, sæki aft- ur um í meistaranám og..." Ég átti hvort sem er eftir að kynnast Suður-Afríku!" segir hún brosandi, en Unnur Berg- lind hefúr farið um allan heim, nema syðsta hluta Suður-Ameríku. „Ég vissi að ég gæti séð eftir því ef ég prófaði ekki. Heim kom ég og þurfti að tilkynna fjölskyldu og vinum að ég ætíaði að flytja til Suður-Afríku. Þá tók við mánuður sem ég hafði til að Ieigja íbúðina, selja bflinn og segja upp öÚ- um störfunum mínum. Mamma er svo jákvæð að henni fannst þetta bara eðli- legt. Það var frekar að vinkonur mín- ar litu á mig stórum augum og spyrðu hvað ég væri eiginlega að hugsa. Niel Bláeygðar drottningar Unnurmeð Silju, dóttur Bjarkar. Unnur Berglind fór með hlutverk Silju I Stellu I orlofi en segir nafngiftina tilviljun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.