Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006 Fréttir DV Sandkorn Jakob Bjarnar Grétarsson • í nýrri Gallupkönnun, þar sem mældur er lestur prentmiðla, er skýrt tekið fram að Séö og heyrt hafi fýlgt með Morgunblaðinu i frí- dreifingu þegar mæl- ing fór fram. Með öðr- um orðum: Ekkert er að marka mælingar á lestri Séðs og heyrðs að þessu sinni. Engu að síður gerir blaðið Blaðið sér mat úr því að lestur á Séðs og heyrðs hafi aukist um heil 55 prósent og skilur ekkert í því að ritstjóri sem skiiar slíkri aukningu, Bjami Brynjólfsson, hafi verið látinn fara. Velta menn því nú fýrir sér hvaða hag Blaðið hefur af því að hampa Bjama á fölskum forsend- • Reyndar þykir Mikael Torfasyni aðalritstjóra Fróða það einnig henta að horfa fram hjá þessari augljósu staðreynd og virðist nú hafa tekið þá ein- dregnu afstöðu að fólk sé fífl. Hann birtir nú víða heilsíðuauglýs- ingu með fýrirsögninni „íslendingar kunna ekki að meta eftirlík- ingar" þar sem segir að lestur Séðs og heyrðs sé helmingi meiri en eftirlíkingarinnar Hér&nú. Er það fróðlegt í ljósi þess að Mika- el sjálfur er aðal hugmyndafræðing- urinn á bak við Hér&nú, barðist fyrir því, stofhaði blaðið og teiknaði... • Blaðamannafélag íslands hélt Pressukvöld í vikunni og var yfirskrift- in: „Mega blaðamenn hafa skoðanir?" Yfirskriftin ein og sér er líklega ávísun á vitleysu — meira vit væri í: „Er hægt að koma í veg fýrir að blaðamenn hafi skoð- anir?" í það minnsta gerir blaðamaðurinn Páll Ásgeir Ásgeirs- son sér mat úr fúndin- um í grein á síðu sinni og verður ekki betur séð en hann geri grín að öllu saman. Segir hann til dæmis tvo framsögu- manna hafa frætt fundarmenn ítar- lega um atvinnuferil sinn og upplif- un af honum án þess að það kæmi beinlínis málinu við. Framsögumenn voru Birgir Guðmundsson, G.Pétur Matthíasson, Guðrún Helga Sigurð- ardóttir og Þór Jónsson... • Svavar HaUdórsson á NFS kvaddi sér hljóðs á Pressukvöldi og varpaði ffarn þeirri spumingu hvort ekki væri rétt að hafa félagsfundi lokaða. Menn litu í kringumsigog sáu ekki betur en Mörður Ámason alþingismað- ur væri sá sem Svavar beindi spjótum sínum að með hugleiðing- um sínum um iokaða • Nýjasta stjaman í blaðamannastétt var mætt á Pressukvöldið — ungkrat- inn Andrés Jónsson sem heldur úti vefridnu Orðið á götunni. Glöggir Netverjar komu auga á að þetta sama kvöld hafði verið sett upp fyrirsögnin „Starfsfé- lagar Jóhanns Hauks- sonar ræða uppsögn hans" á vefritið en ekkert varð úr að frétt fýlgdi. Er nú talið að Andrés hafi þama orðið fórnarlamb sjálfsritskoðunnar sem (x) G. Pétur Matthíasson gerði reyndar að um- ræðuefni á Pressukvöldinu. G. Pét- ur upplýsti að hann læsi helst aldrei síðu Bjöms Bjamasonar dómsmála- ráðherra svo hann hefði ekki áhrif á fréttamennsku sína... fundi... Lögmannsstofan Logos hefur skotið ágreiningi sínum við Samkeppniseftirlitið til Hér- aðsdóms. Logos vill að gögn frá stofunni, sem hald var lagt á í húsleit Samkeppniseftir- litsins í höfuðstöðvum VISA ísland í siðustu viku, verði ekki notuð. Gunnar Sturluson hjá Logos segir að um trúnaðarupplýsingar sé að ræða. Húsleit hjá VISA Halldór Guðbjarnarson, frai hérsvara blaðamönnum ef hafði gert húsleit I höfuðstö sfðustu viku. óri VISA, sést opniseftirlitið ’.kisins I H‘ÍiÉfíkims 'á milSs lögi fítæðings: Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit í höfuðstöðvum VISA í síðustu viku vegna gruns um brot á samkeppnislögum. Starfs- menn þess höfðu á brott með sér aragrúa af skjölum og meðal þeirra voru greinargerðir og álit sem lögmannsstofan Logos hafði unnið fyrir VISA. Lögmannsstofan hefur nú farið fram á að Sam- keppniseftirlitið fái ekki að nota gögn frá stofunni við rannsókn á meintu broti VISA á samkeppnislögum og hefur skotið málinu til Héraðsdóms. „Við teljum að ráðgjöf lögmanns við skjólstæðing njóti trúnað- ar samkvæmt >v, lögmanna- lögum, siða- reglum lög- manna og lögum um meðferð opinberra mála og því telj- H | Páll Gunnar Pálsson Forstjóri Samkeppniseftirlitsins vill ekkert segja fyrr en dómur I málinu | gegn Logos hefur verið kveðinn upp. DV-mynd Páll Bergmann I um við að Samkeppniseftirlitinu sé óheimilt að leggja hald á gögn sem innihalda trúnaðarupplýsingar af þessu tagi. Það er hluti af grundvall- arréttindum í réttarríkinu að það ríki trúnaðar á milli lögmanns og skjól- stæðings. Við teljum að Samkeppnis- eftirlitinu beri að virða þann trúnað," sagði Gunnar Sturluson, hæstarétt- arlögmaður hjá Logos, aðspurður um ástæður þess að stofan viU neita Samkeppniseftirlitinu að nota gögn- in við rannsókn málsins hjá VISA. Málið brennur á Gunnari Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gunnar tjáir sig um húsleit- ir Samkeppniseftirlitsins. Á fúndi Verslunarráðs íslands í september 2002 sagðist Gunnar telja afar brýnt að settar yrðu regl- ur um fram- kvæmd húsleitar samkeppnisyfir- valda líkt og raunin væri hjá embætti skattrannsóknarstjóra sem hann sagði til fyrirmyndar. Gunnar gekk reyndar svo langt að hann taldi að Samkeppniseftirlitið ætti sjálft að hlutast til um að slíkar reglur yrðu settar. Gunnari hefur ekki orðið að ósk sinni því ekki er minnst einu orði á húsleit í samkeppnislögum frá ár- inu 2005. Geymum okkar rökstuðning Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sam- tali við DV að málið yrði að hafa sinn vanagang. „Við óskuðum eftir hús- leitarheimild í höfuðstöðvum VISA hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og feng- um þá heimild. Við framkvæmdum hana og hún var fýrirvaralaus um þau gögn sem við kynnum að finna þar. Logos hefur beint kröfu til Hér- aðsdóms og þar verður hún útkljáð. Við teljum það ekki skynsamlegt að flytja málið annars staðar en þar. Lögmaður flytur málið fyrir oMcur þar og við geymum frekari rökstuðn- ing þangað til í þeim málflutningi," sagði Páll Gunnar. Dómur fellur fljótt Samkvæmt lögum um meðferð Gunnar Sturluson Lögmaður á Logos sem segir trúnað á milli lögmanna og skjólstæð- inga vera grundvallaratriði I réttarrlkinu. opinberra mála er Logos heimilt að skjóta ágreiningi stofunnar við Sam- keppniseftirlitið til Héraðsdóms. Málið verður flutt í dag og er búist við því að dómur falli fljótt. Aldrei áður hefur reynt á slíka kröfu fyrir dómi og því er málið fordæmisgef- andi. oskar@dv.is Agnar Þórarinsson dæmdur í fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot Agnar Þórarinsson, öryrki á fimm- tugsaldri var á dögunum dæmdur til tveggja ára óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fýrir að hafa flutt inn ríflega kíló af amfetamíni ásamt tæp- urm þremur og hálfu kílói af hassi. Efnin flutti hann inn í drifskafti Ford Econline-bifreiðar í desember síð- astliðnum. „Ég veit ekki hvað myndi bíða mín þegar ég kæmi úr fang- elsi og óttast hefndaraðgerðir," sagði Agnar við aðalmeðferð málsins að- spurður um hver íraki, sem hann sagðist flytja efnin fyrir, væri. Agnar sagðist hafa hitt írakann á kaffihúsi í hippakommúnunni Thyl- eren, sem er eins konar útibú hinn- ar sálugu Kristjamu, staðsett á Jót- landi í Danmörku. Með þeim hafi tekist samningar. Skömmu síðar hafi hann látið hann fá drifskaftið af bílnum. frakinn hafi verið með drif- skaftíð í nokkra daga og afhent Agn- ari það fullt af dópi. Eftir afhend- ingu drifskaftsins sendi Agnar félaga sinn með bílinn til fslands og kom hann um miðjan desember til lands- ins. Nokkrir aðilar voru handteknir í upphafi en Agnar sá eini sem ákærð- ur var. Héraðsdómarinn Ásgeir Friðriks- son skeytti engu um framburð Agn- ars og dæmdi hann til tveggja ára fangelsisvistar. Saeði hann í dóms- Drifskaft Agnar var dæmdur fyrir aö flytja efnin inn I drifskafti Ford Econoline bifreiðar. orðum að ekkert værikomiðfram í máliu sem styddiframburð Agnars: „Þvert á móti er ýmis- legt í hans fram- burði sem ekki er trúverðugt." Verjandi Agnars Jón Einar Jak- obsson, sagðií samtali við DV í gær að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvort dómnum yrði áfrýjað. Kolbrún Sævarsdóttir flutti málið fýrir hönd ákæruvaldsins. gudmundur@dv.is Ótrúverðugur Dómara þótti Agnar ótrúverðugur I framburði og dæmdi hann I tveggja ára fangelsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.