Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2006, Qupperneq 17
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ2006 1 7
Eitraður
Beckham
Greenpeace hef-
ur prófað rakspír-
ann Instínct sem
David Beckham
hefur lagt nafit sitt
við. I ljós kemur
að rakspírinn inni-
heldur eitruð efni,
þar á meðal DEHP,
sem grunur leikur á að dragi
úr sæðisframleiðslu hjá karl-
mönnum. Instínct kom á
markaðinn í fyrra og í sölu-
herferðinni segir Beckham
meðal annars: „rakspírinn
hefur uppvekjandi, erótíska,
glamúrlega og stílörugga
fykt sem gefi viðkomandi
innri styrk." Fótboltastjarn-
an gleymdi bara að nefna að
rakspírinn er einnig eitraður.
Herinn í stríð
viðfroska
Ríkisstjórií
Vestur-Ástral-
íu hefur beðið
herinn í landinu
um aðstoð við að
hefta froskaplágu
sem herjar þar um
slóðir. Um er að
ræða eitraða froska af teg-
undinni Bufo Marinus. Þeir
voru upphaflega fluttir inn
tíl Queensland á millistríðs-
árunum á síðustu öld til að
berjast við bjölluplágu sem
var að leggja sykurreyrakra
í auðn. En nú er vöxtur og
viðgangur þeirra algerlega
kominn úr böndunum og
allar tilraunir tíl að hemja
þessa plágu hafa mistekist.
Hús Hróa
hattarfundið
Fomleifafræðingar segja
að þeir hafi fundið hús
Hróa hattar í Sheffield. Þessi
þekktasti útlagi sögunnar
hefur ávallt verið talinn
vera írá Nottingham en nú
er tahð að hann hafi kom-
ið íf á Bolsterstone í Yorks-
hire. Fornleifafræðingar eru
nú að grafa upp kastala frá
11. öld í þorpinu þar sem
Waltheof jarlinn af Hunt-
ington bjó. Talið er að sag-
an um Hróa hött sé byggð á
æfi sonar Waltheofs, Robert
Fitzwalter, en báðir voru
ákafir andstæðingar irmrás-
ar Normanna í landið.
Stefnir á núll
í prófunum
Stúdent í Tyrklandi von-
ast til að komast í metabæk-
ur eftir að hann svaraði öll-
um spurningum vitlaust á
inntökuprófi í háskóla. Sefa
Boyar, frá Ankara, svaraði
öllum 180 spurningunum
vitlaust með vilja því hann
vildi mótmæla inntöku-
prófinu. Flókin inntökupróf
þykja alger pína fyrir stúd-
enta í Tyrklandi. Samt und-
irbjó Sefa sig vandlega fyrir
prófið því hann segist hafa
þurft að vita réttu svörin við
spurningunum tíl að geta
svarað þeim rangt.
Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa vaxandi áhyggjur af eyðnismiti meðal danskra ferða-
manna sem sækja á framandi slóðir. Á stöðum eins og Indlandi, Sri Lanka, Suður-Afríku,
Víetnam, Dóminíska lýðveldinu og Jamaíku fer eyðnismituðum nú fjölgandi samkvæmt
nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um málið. Og ekki hefur dregið að ráði úr eyðnismiti
í löndum eins og Taílandi undanfarin ár þrátt fyrir viðleitni stjórnvalda í þá átt.
Taíland Fallegar strendur
og veðurbllða lokka marga
á framandi slóðir.
Helmingur gagnkynhneigðra Dana sem árlega smitast af eyðni
fær sjúkdóminn í ferðum til ffamandi landa. Um karlmenn er að
ræða í flestum tilvikum. Og ástæða smitsins er oftast kynlíf án
smokks. Jan Fouchard, yfirlæknir á Forvarnastofnun heilbrigðis-
ráðuneytisins í Danmörku, segir að aukning í ferðum á þessa
staði muni hafa aukningu á eyðnismiti í för með sér.
Á síðustu fimm árum hefur ekki
dregið úr fjölda eyðnismita með-
al danskra ferðamanna sem fá sjúk-
dóminn í ferðum erlendis. Og nú
þegar áhuginn á ferðum til framandi
staða á borð við Indland, Sri Lanka,
Víetnam og Jamaíku, hefur stórauk-
ist hvetur Jan Fouchard yfirlæknir
landa sína tíl að muna eftir að taka
smokka með sér í ferðalagið og ekki
tapa áttum þegar þeir fá freistandi
tilboð um kynlíf hjá staðarbúum.
Eykst um fjórðung
f umfjöllun Ekstra Bladet um
málið í vikunni kom meðal annars
fram að samkvæmt upplýsingum
frá Star Tour, einni stærstu ferða-
skrifstofunni, munu 25% fleiri Dan-
ir en áður ferðast tíl framandi landa
næsta vetur. Þá er átt við lönd á borð
við Indland, Sri Lanka, Suður-Afr-
íku, Víemam, Dóminíska lýðveld-
ið og Jamaíku. Sökum þessa mun
Star Tour bæta við ferðum tíl þess-
ara staða til að anna eftirspurninni.
„Danskir ferðamenn þekkja ekki
smitmynstrið hjá staðarbúum og
áhættuna á að smitast," segir Stíg
Elling sölustjóri Star Tour. „Því sjúk-
dómar eru ekki það fyrsta sem fólk
hugsar um þegar það ferðast."
Asía efst á blaði
Samkvæmt opinberum upplýs-
ingum í Danmörloi er Asía sá heims-
hluti þar sem flestír Danir hafa smit-
ast af kynsjúkdómum undanfarinn
áratug, einkum Taíland. í öðru sætí
er Evrópa, í þriðja sætí Afríka og síð-
ast koma Norður- og Suður-Ameríka.
Hvað Evrópu varðar er aukningin
hvað mest í löndum Austur-Evrópu
eins og Búlgaríu þar sem kynh'fsiðn-
aður hefur blómstrað í kjölfar frelsis-
ins frá gömlu Sovétríkjunum.
Ekki ástæða til að aðvara
Stíg Elling segir að það sé ljóst
að vændi og kynh'fskaup séu hlutí af
ferðamunstri margra Dana og hann
er mótfahinn slíku. Á sama tíma seg-
ir hann að Danir séu upplýst þjóð og
telur ekki að sérstök ástæða sé tíl að
aðvara viðskiptavini ferðastofunn-
ar. „Við seljum upplifanir og viljum
ekki leika lögreglu gagnvart kúnn-
um okkar," segir Stíg. „Því teljum við
það ekki okkar hlutverk að upplýsa
kúnna okkar."
Barstúlkur Barstúlkur á
Pattaya-ströndinni I
Tallandi sem stundum
hefur verið kölluð
stærsta hóruhús I heimi.
tUT'sy
Þjóðsögn lætur af störfum í bandarísku sjónvarpi
Dan Rather hættir eftir 44 ára feril
Ferli hins þjóðsagnakennda
fréttamanns Dans Rather er lok-
ið hjá CBS-stöðinni. „Það er ver-
ið að ganga frá starfslokasamningi
mínum sem bindur enda á 44 ára
langt starf mitt hjá CBS News," segir
Rather í samtali við New York Daily
News fyrr í vikunni. Rather er raun-
ar samningsbundinn CBS fram í
nóvember en allt fór í háaloft ný-
lega þegar ónafngreindur stjórn-
andi CBS sagði við Washington
Post að það væri ekkert pláss fyrir
Rather í þættinum 60 Minutes.
Að hætta á þessum nótum bind-
ur enda á hálfs annars árs tíma-
bil sem verið hefur mjög erfitt fyr-
ir Rather. Honum var bolað í burtu
sem aðalfréttalesara í kvöldfréttum
CBS (CBS Evening News) í mars í
fyrra. Þetta gerðist eftir að þáttur-
inn „60 Minutes II" birti ranga frétt
um feril Bush forseta í þjóðvarð-
liðinu. Jafnframt þessu var sagt að
Rather myndi eftir sem áður vinna
við 60 Minutes II en sá þáttur var
síðan tekin af dagskrá skömmu síð-
ar. Eftir það hafði Rather aðeins
vinnu við 60 Minutes aðalþáttinn
en fékk lítið að gera þar. Sem dæmi
er nefnt að frá áramótum hafi þeir
sem vinna við þáttinn átt að jafnaði
18-20 innslög í hann. Rather hefur
aðeins átt 8 slík.
„Vinnan við 60 Minutes hefur
ekki reynst eins og ég vonaðist til,"
segir skúffaður Rather í samtali við
NY Daily News. Kate Couric mun
taka við stöðu Rathers í kvöldfrétt-
um CBS og 60 Minutes í haust og er
talið að stjórnendur CBS vilji Rath-
er úr húsinu áður en hún mætir.
Rather er samt ekki dauður úr
öllum æðum og segir að ýmislegt
sé í pípunum hjá sér. „Ég er ekki
persóna sem slappar af
hvílist," segir
hann.