Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Blaðsíða 17
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 17 Hjúkkurséuí mínípilsum Lækn- ar í bæn- um Iasi í Rúmen- íu vilja að allar hjúkkurn- ar í bæn- um gangi í míní- pilsum. Þeir hafa skrifað heilbrigðisyfirvöldum landsins bréf sökum þessa. Þar segja þeir að gömlu hjúkkubún- ingarnir séu orðnir úreltir og þeir vilji breytingar. Kröfur þeirra eru nú til skoðunar hjá viðkomandi ráðuneytí. Dr. Iulian Serban, tals- maður læknanna, segir: „Ég tel að allar kvenhjúkrunarkonurnar og kvenlæknarnir eigi að ganga í mínípilsum. Það er meira eleg- ant." Lengstu neglur í heimi Lee Red- mond, 65 ára kona frá Utah í Bandaríkj- unum, hef- ur komist í Heims- metabók Guinness íyrir að vera með lengstu neglur í heimi. Lee hefur látíð neglur sínar vaxa síðan árið 1979 og saman- lagt eru þær nú 7,5 metrar á lengd. Hún ætlar hins vegar að láta fjar- lægja neglumar með leiseraðgerð í næsta mánuði. Lee meðhöndlar neglur sínar á hverjum degi með volgri ólívuolíu og naglaherði og hún gemr sinnt flestum heimilis- störfum. Að auki getur hún rakað eiginmann sinn. Barnaperrarí skjóli páfans í nýrri heimild- armynd sem sýnd var á BBC nýlega er því haldið fram að núver- andi páfi hafi haft frum- kvæði að því að hylma yfir með prestum sem voru uppvísir að kynferðislegri misnotkun á böm- um. Þetta áttí sér stað árið 2001 þegar páfinn var enn Ratzinger kardináli. Á þeim tíma sendi hann biskupum kaþólsku kirkjunnar bréf þar sem þeir voru hvattir til að láta prestana og fómarlömb þeirra þegja en ekki tílkynna lög- reglunni um þessi afbrot. Forráða- menn kaþólsku kirkjunnar segja þessar ásakanir ekki eiga við rök að styðjast. Pumpuðu vodka til Litháens Rússneskir tollverðir hafa fundið mílulanga pípulögn sem notuð var til að pumpa vodka frá Rússlandi og til Litháen. Tollverð- ir í landamærabænum Buholovo segja að glæpamenn hafi grafið göng á sex feta dýpi til að pumpa heimabrugguðu vodka á milli landanna til sölu í Litháen. Göngin komu í ljós þegar bæjarstarfsmenn vom að grafa holur fýrir tré utan við bæinn. Tollvörðurinn Yakov Kabanov segir að þeir hafi löngum vitað að heimabruggað rússneskt vodka var til sölu í bænum en ekki fundið út fýrr en nú hvernig því var smyglað yfir landamærin. FBI, bandaríska alríkislögreglan, hefur nú vaxandi áhyggjur af því að tenging komist á milli al-Kaida og mafíunnar í Bandaríkjunum. Það eru engar sannanir til um bein tengsl þarna á milli en fyrstu visbendingarnar komu í ljós nýlega er uppljóstrari á vegum FBI keypti eldílaugar af manni með maflutengsl. Mafian Alls hafa um 100 meölimir ítölsku mafiu fjölskyldnanna fimm i New York verid handteknir á síÖastliðnum þremur árum. „Við erum að leita að sameiningarpunkti," segir Joseph Billy jr. einn af toppmönnum FBI í baráttunni gegn hryðjuverkamönn- um. „Og við leitum mjög stíft og ákveðið að honum núna." Talið er að mafían geti aðstoðað hryðjuverkamenn við hluti eins og fjármagnsfærslur eða peningaþvætti, smygl á fólki og kaup á vopnum eða sprengiefnum. hryðjuverkasamtakanna al-Kaída og mafíunnar í Bandaríkjunum. AP komst á snoðir um nýja rannsókn sem Pentagon lét gera þar sem varað er við hættunni á þess- um tengslum. Joseph Billy jr., einn af toppmönn- um FBI í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum, segir að embættíð leití nú ákaft að sámeiningar- punktí á milli al-Kaída og mafi'unnar. Fyrstu vísbendingar komnar Þótt ekki séu til bein- ar sannanir um tengsl milli hryðjuverkasamtaka og maf- íunnar í Bandaríkjunum eru fýrstu vísbendingar um slíkt komnar fram. Nýlega, í leyni- legri aðgerð FBI, keyptí einn af uppljóstrurum FBI eldflaugar af manni með tengsl við mafiuna en uppljóstrari þessi gaf sig út fyrir að vera hryðjuverka- Flestír bandarískir fjölmiðlar birtu frétt frá AP í vikunni þess efnis að FBI hefði nú vax- andi áhyggjur af tengsl- um á milli Al- Kaída FBI " hefurnú töluverðar áhyggjuraf þvlað liðsmenn Osama bin Laden muni notfærasér þjónustu maflunnar. „Hugsanlegur áhugi mafíunnar á að að- stoða hryðjuverkasam- tök hefur ekkert með hugmyndafræði eða samúð að gera. Þetta er bara einföld græðgi" maður. Þetta veld- ur FBI áhyggj- um. Allt er falt fyrirfé „Hugsan- legur áhugi mafíunnaráað aðstoða hryðju- verkasamtök hefur ekkert með hugmyndafræði eða samúð að gera. Þetta er bara einföld græðgi," seg- ir Matt Heron, forstöðumaður rann- sóknardeildar um skipulagða glæpi, í New York í samtali við AP. „Þeir munu eiga viðskiptí við hvern sem er ef þeir bara græða á slíku. Þeir munu selja jafrit tíl hryðjuverkamanna og munka í Fransiskusreglunni. Þetta eru bara viðskiptí í þeirra augum." Mun aðstoða hvern sem borgar Það sem styður þessi orð Matts Heron er reynsla Pats D Amuro, fyrr- verandi FBI manns og núverandi yf- irmanns Giuliani Security. „Ég veit af háttsettum mafíuforingja sem starfaði með yfirvöldum," segir Pat. „Hann var spurður að því hvort mafí- an myndi hjálpa hryðjuverkamönn- um við að smygla fólki til Evrópu í gengum Italíu. Hann svaraði því ein- faldlega að mafían myndi hjálpa öllum sem gætu greitt fýr- ir slíkt." Fjöldi mafíósa í New York ítalska, rússneska og asíska mafí- an eru áber- andi í New York. Sú ít- alska sam- anstendur af fimm þekkt- um fjölskyld- um og hafa um 100 meðlimir þeirra verið handteknir á undanförn- um þremur árum. Rússneska mafí- an teygir anga sína frá Brooklyn til Moskvu og asíska mafían er stöðugt að verða sterkari í borginni. Það veldur töluverðum áhyggjum því Asíumennirnir koma oft frá lönd- um þar sem al-Kaída hefur útibú eða sellur starfandi. Kínverskur prófessor olli nemendum sínum áfalli Klæddi sig úr öllum fötum í listfræðitíma Hinn 56 ára gamli prófessor Mo Xiaoxin olli nemendum sínum áfalli með því að afklæðast öllum fötun- um fyrir framan þá í listfræðitíma. Samkvæmt kínversku dagblaði var prófessorinn að sýna fram á afl lík- amans og að ögra boðum og bönn- um. Mo hafði þar að auki útvegað fjögur önnur módel tíl að fækka fötnum fyrir framan nemendur sína, annars vegar par á sjötugsaldri og hins vegar yngra par. Þetta stripp fór víst ekki síður í fínustu taugar nemanna en nakinn kroppur Mos. Nemendunum var boðið að fækka fötum en enginn þáði það boð próf- essorsins. „Prófessor Mo virtíst í til- finningalegu uppnámi," hefur blað- ið eftír einum af nemendum hans. Alls voru 30 nemendur viðstadd- ir þennan tíma hjá Mo í Instítute of Human Body Culture and Arts í Changzhou-borg og flestum þeirra leið illa er strippið fór af stað, horfðu ýmist á gólfið eða loftið meðan Mo hvattí þá tíl að fækka fötum. Tian Juntíng, fulltrúi kínverska mennta- máiaráðuneytísins í borginni, seg- ir að þessi kúrs hjá Mo sé enn á til- raunastígi og ekki vitað hvort hann hafi skilað jákvæðum eða neikvæð- um áhrifum á nemendur. Mo nakinn Nemendur kfnversks prófessors urðu fyrir töluverðu áfalli er hann fór úr öllum fötunum I tlma hjá þeim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.