Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Qupperneq 32
52 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006
Helgin PV
llmvatn - Lovely frú Sarah Jessica
Parker:„Ég keypti þetta fyrst afþvíað
ég var með æði fyrir Sex andthe City
svo ég varð auðvitað að kaupa
ilmvatnið. En svo kom þetta svona
llka skemmtiiega á óvart. Milt og
gott- hversdagsilmvatn."
Varasalvi frá Sally
Hansen: „Þessi er
alveg geggjaður.
Hann stækkar
varirnar. Það verða
alliraðeiga svona.
Hann erekkimeð
miklum glans og svo
hefurhann mikinn
raka - ómissandi fyrir
fólk með litlar varir.
Ég var soldið skeptísk
fyrstenþettavirkarí
alvörunni. Rosa
fiottur, sérstaklega af
þvl að hann ermattur,
nú er attur gtans
búinn i bili. Núna á
bara að safna
augabrúnum, hætta
að fara i Ijós og nota
brúnkukrem og setja á
okkur rauða varaliti.“
Maskari frá Maybelline:
„Besti maskari í heimi.
Hann litur út fyrir að vera
algjört drasl en hann
endist vel, klessist ekki og
þornar ekki upp eftir
tvo mánuði eins og svo
margir. Það var ekki
hægtaðfá hann á
timabiii en svo byrjaöi
Hagkaup að flytja
hann inn - mörgum til
mikillar ánægju."
Golden Glow frá
Kanebo:
„Þetta verða allirað eiga. Ef
það er eitthvað sem ég myndi
taka með mérá eyöieyju þá er
það þettaj segirÁlfrún og
hlær. Þetta er litað dagkrem og gottefþú
ertþunná leið I fjölskylduboð, afskaplega
frlskandi. Ég gefþessu alveg 101 einkunnl'
Plokkari frá H&M:
„Þrátt fyrir að það mæli gegn nýjustu
tískustraumum þá er ég mjög vandlát á
augabrúnir. Plokkunin sjálfermjög
sátsaukafull en mér llður alltafsvo vel eftir á.‘
Alfrún Pálsdóttir er kennari hjá Emm School of Makup.„Ég kenni nokkur kvöld I
viku og finnst það mjög gaman og hressandi. Þetta er þó ekki aðalvinna mín, en
mér finnst mjög gaman að grípa í vel valin verkefni inni á milli. Ég sá til dæmis
um Nylon-stelpurnar um tíma sem var mjög gaman og skemmtilegt að fyigjast
með þeim slá I gegn," segir Álfrún sem vinnur annars I fullu starfi á innblaði
Fréttablaðsins þar sem hún sér meðal annars um að fræða landann um það
heitasta f tfskunni hverju sinni.„Ég byrjaði að vinna í Sautján þegar ég var
sautján ára svo það má eiginlega segja að ég hafí alist upp innan um fatnað,"
segir Alfrún aðspurð um áhuga sinn á tísku. En hvað er í tísku?„Það er mikið
verið að upphefja hversdagsleikann um þessar mundir, mikið um stórar og siðar
peysur og skemmtilega ýkt snið. Glamúr er eiginlega farinn í bili og það er alveg
kærkomið. (förðun er það svart, svart, svart og vínrautt, soldið skítugt og
pönkað. Svo það er bara að safna augabrúnum, kaupa hvitt púður og smella á
sig rauðum varalit vilji maður vera með."
í dag klukkan 13 hefst ráðstefnan Healing The Healers. Þetta er í
sjöunda sinn sem ráðstefnan er haldin og í annað sinn sem hún er
haldin hér á landi. Þóra Halldórsdóttir er einn af þremur skipu-
leggjendum hátíðarinnar en hún er mikil áhugamanneskja um
allt sem viðkemur heilsu og vellíðan manneskjunnar.
Hefðbundnar og óhefð-
bundnar lækningaaðferðir
Ráðstefhan verður haldin að Kríunesi við Elliðavatn og stendur
fram á sunnudag. Bandaríkjakonan Jacqueline Mast er heilinn á
bak við hátíðina en fyrirlesarar koma frá alls sjö löndum og fjalla
um málefrii af ýmsum toga. Þóra Halldórsdóttir veit meira um
málið.
„Jacqueline Mast kom í heimsókn
til íslands íyrir tveimur árum. Hún
hreifst af landinu og ekki síst Kríunesi
og hafði hug á að halda ráðstefriuna
hér á landi árið 2005. Hún leitaði því til
okkar önnu Katrínar Ottesen og Am-
ar Jónssonar og fékk okkur til þess að
halda utan um skipulagninguna hér
heima. Ráðstefnan í fyrra þótti heppn-
ast svo vel að það kom ekki annað til
greina en að halda hana aftur hér í ár."
Fólk er að verða meðvitaðra um
sinn þátt í eigin heilsu
Þóra starfar annars í hugbúnaðar-
bransanum en hefur mikinn áhuga á
öllu sem viðkemur heilsu og almennri
h'ðan manneskjunnar. Þátttaka Þóru í
undirbúningi ráðstefnunnar er ákveð-
ið hugsjónastarf þar sem hún hefúr
ánægju af að vera þátttakandi í því að
þekkingu og visku sé miðlað. „Ég reyni
að huga almennt vel að heilsunni. Ég
hugsa um það sem ég læt ofan í mig, fer
í sund tvisar sinnum á dag og geng mik-
ið auk þess sem ég nýti mér þær lækn-
ingaaðferðir sem henta mér hveiju
sinni svo sem nálastungui;" segjr Þóra.
„Ég held að fólk sé að verða meðvitaðra
um að það sjálft spili stærsta hlutverk-
ið þegar kemur að eigin heilsu og sé
farið að átta sig á því hvað það er mik-
ilvægt að huga vel að líkama og sál. 111
að einstaklingnum líði vel og finni sitt
jafnvægi, þá þarf lfkami, hugur og sál
að vera í lagi en fólk er í auknum mæli
farið að huga að öllum þessum þáttum.
Eitt af því mMvægasta fyrir einstakl-
inginn er að hann ftnni og þekki sínar
eigin þarfir og sinni þeim."
Óvenjuleg ráðstefna
Það er að mörgu að huga við skipu-
lagningu svona ráðstefnu enda margir
erlendir gestir á leiðinni og allir þurfa
þeir svefnstað. „Það þarf að samræma
þetta allt saman og huga að því hvaða
fyrirlesarar tala á hvaða tíma. En þetta
er búið að vera mjög skemmtilegt og
ég hlakka mikið tú helgarinnar. Þetta
er sérstök ráðstefiia, þar sem fólk
með ólíkan bakgrunn hittist og á frá-
„Til að einstaklingnum
líði vel og finni sittjafn-
vægi, þá þarflíkami,
hugur og sál aðvera í
lagi en fólk er í auknum
mæli farið að huga að
öllumþessum þáttum."
bæra helgi saman og ekki spillir um-
hverfið fyrir, en ráðstefnan er haldin
í skemmtilegu og friðsælu umhverfi í
Kfíunesi við Elliðavatn."
Fjölbreytt og fræðandi dagskrá
Dagskrá hátíðarinnar er með fjöl-
breyttasta móti. Fagfólk um heilsu
hvaðanæva að úr heiminum kemur
saman og miðlar sinni reynslu, bæði
af óhefðbundnum og hefðbundnum
lækningum. Það verður hægt að fræð-
ast um næringu, heilun, læknisaðferð-
ir Ibgo-ættbálksins í Afríku, hvemig
eigi að hugsa um og hreinsa líkamann,
Feng Shui og áhrif bænarinnar séð frá
vísindalegu sjónarhomi. Þetta er alls
ekki tæmandi listí og er áhugasömum
bent á heimasíðu ráðstefnunnar sim-
net.is/amarljos. berglind&dv.is
Það er svo leiðinlegt að vera í fýlu. Þegar þannig er komið fyrir okkur segjum við oft við
þá sem eru í kringum okkur: „Æ, þetta er bara þannig dagur.“ Betra er þó að taka ráðin
i eigin hendur og gera eitthvað til þess að hressa sig við.
Tíu ráð gegn óþarfa tárum
1. Hlustaðu á uppáhaldsgeisla-
diskinn þinn
Tónlistin þarf ekki nauðsynlega
að fá þig til að dansa. Fallegir tón-
ar og textar geta gert kraftaverk á
dimmum og drungalegum dögum.
2. Klæddu þig í litrfkustu
fötin þín
Það er oft þannig að fólk velur sér
svart eða grátt þegar risið er lágt en
það eru einmitt litirnir sem ber að
forðast. En hvað sem þú velur skaltu
forðast rauðan. Þó svo hann sé vissu-
lega skær, hressandi og góður fyrir
sjálfstraustið getur hann einnig ýkt
allan pirring.
3. Farðu út
Þó svo að dagurinn sé drunga-
legur er um að gera að fá sér heilsu-
bótargöngutúr. Það þarf ekki endi-
lega að vera löng ganga, bara smá
spölur, og þú kemur inn aftur með
roða í kinnum og mun meiri orku.
4. Dragðu andann djúpt
Með því að anda rétt örvar þú
taugakerfið þannig að þú verð-
ur bjartsýnni og jákvæðari. Dragðu
andann inn, djúpt ofan í maga, og
teldu upp á sex og andaðu út og
teldu upp að þremur. Gerðu þetta
nokkrum sinnum og þá ættirðu að
finna mun á tilfinningum þínum.
5. Spjallaðu við góðan vin eða
vinkonu
Þeir sem hafa gott félagslegt net
í kringum sig eru hamingjusamast-
ir, segja sérfræðingar. Taktu upp tól-
ið og hringdu í þann sem þér þykir
bestur. Það getur verið hressandi að
hlusta á annað fólk og dreifa þannig
huganum ffá neikvæðum hugsun-
um.
6. Gerðu góðverk
Það þarf ekki að vera stórvægi-
legt. Farðu út í búð fyrir ömmu þína,
leggðu góðu málefni lið með fjár-
stuðningi eða komdu einhverjum
nákomnum á óvart. Gæti verið mjög
hressandi.
7. Bakaðu köku
Ilmurinn af nýbakaðri köku hlýt-
ur bara að kæta þig. Ef þú bakar fyr-
ir fleiri en sjálfan þig færðu jafnvel
klapp á bakið fyrir ómakið. Kökuilm-
ur getur Uka dregið fram mjög já-
kvæðar æskuminningar sem gott
er að ylja sér við meðan japlað er á
kökunni.
8. Borðaðu karrí
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
sterkur matur getur framleitt kraft-
mikla vellíðunartilfinningu. Svo
verða margir rjóðir og sætir í fram-
an.
Þegar leiðindin verða okkur ofviða
Þá er um að gera að gera eitthvað hressandi.
9. Fáðu útrás
Settu rokklag á fóninn, hækkaðu í
botn og dansaðu í nokkrar mínútur.
Líkaminn þarf hressilegt adrenalín-
kikk annað slagið, ekki neita honum
um það.
10. Faðmaðu félagann
Fyrir þá lofuðu er fátt betra en
gott knús. Fyrir hina einhleypu er um
að gera að faðma góðan vin, nú eða
skella sér í gott nudd þar sem snert-
ing er alltaf jákvæð þegar fýlupúkinn
í okkur hefur náð yfuhöndinni.