Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Side 58
78 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 Síðast en ekki slst DV Kúrekarnbrðursins Friðrik ÞórFriöriksson ásamt stjörnunum i myndinni. Hér eru meðal annarra þeir Hallbjörn Hjartarson og Johnny King. Á inijfelldu myndinni er Friðrikl dag. Fasteignamarkaðurinn á uppleið Ha? Það er ljóst að fasteigna- markaðurinn er á uppleið, ef mið er tekið af auglýsingu sem er á fasteignavef mbl.is. Eftir nokkurra mánaða niður- sveiflu býður fasteignasalan Fasteignamarkaðurinn upp á hrörlegt 155 fermetra i einbýlishús á Lauga- “ vegi fyrir 35 milljón- ir króna. Fasteignasalar sem DV ræddi við hlógu allir þegar þeir sáu verðið og nokkrir sem höfðu skoðað húsið sögðu það hreint og beint í ömur- legu ástandi. Það hindrar þó ekki Fasteigna- Furðufréttin Lögbrot að líkja lögreglu við hund Furðufrétt vikunnar kemur frá fréttastofunni Antara í Indónes- íu og fjallar um tvo söngvara þar í landi sem hafa verið ákærð- ir fýrir að móðga lögregluna í lagi sem þeir fluttu á tónleikum. Tónleikar þessir voru haldnir á Balí til styrktar þeim sem misstu allt sitt í jarðskjálftanum á Jövu í maí síðastliðnum. í laginu sem söngvararn- ir fluttu er lögreglunni líkt við hund. Sökum þessa texta eiga söngvararnir yfir höfði sér allt að 18 mánaða fangelsi. Samkvæmt Antara segir meðal annars í text- anum: „...ég hélt að þetta væri glæpamaður en þetta reyndist vera lögregluþjónn sem hegðaði sér eins og hundur". Söngvar- arnir voru handteknir í júlí og réttarhöldin yfir þeim eru fram- undan. Samkvæmt Antara þykir það víst meiriháttar móðgun að líkja einhverjum við hund í Indó- nesíu. Eru söngvararnir ákærðir fyrir brot á lögum sem banna að opinberir aðilar séu móðgaðir á almannafæri. Hér heima á íslandi vakti það verulega athygli er Jóhann- es Jónsson í Bónus sagði í viðtali nýlega að H.B. í nafni Jóns H.B. Snorrasonar sem rannsakaði Baugsmálið stæði fyrir „hund- ur í bandi". En engum datt í hug að lögsækja Jóhannes fyrir þetta enda löngu aflögð lög sú sem banna fólki að móðga opinbera starfsmenn hér á landi. Enhverátti ólina? markaðinn í að setja þennan verð- miða á húsið. í lýsingu segir að einbýlishúsið sé á góðum stað við Laugaveg. Það stendur á baklóð og kemur fram að hús- ið þarfnist viðhalds. Það þarf ekki að koma á óvart miðað við myndirnar sem fylgja auglýs- ingunni. Þá er kjallari hússins fokheldur. En ef einhvern hefur allt- af dreymt um að eignast ein- býlishús á Laugavegi þá skyldi sá hinn sami ekki láta verð- ið stöðva sig. Sölumenn Fast- eignamarkaðarins skrifa væntanlega upp á að þetta sé toppverð fyrir toppeign. vtvoe.T wíuvok w At? \ie(tc' A EÍ>A HÁKABt lliH? •»’’. v>~V' *’< te- •V Auðunn BlöndaL- Segirþættma Fiáfa tekist frábæneg'a en býst við aö . erfitt verði að gera aðra syrpu - bað veröi allir frekdr varir um sig eftir þetta. -hugleikur Auddi Blö hrekkir fræga frá Bubba Nýr þáttur Auðuns Blöndal, | Tekinn!, hefur göngu sína á Sirkus ! mánudaginn 9. október. Þar fetar Auðunn í fótspor bandaríska leik- arans Ashtons Kutcher sem stýrði þættinum Punk’d við miklar vin- sældir. Þátturinn gengur út á það að þjóðþekktir einstaklingar eru leidd- ir í gildruog þeim strítt af Auðuni og hjálparkokkum hans. Auðunn sagði í samtali við DV að það hefði verið mjög gaman að taka upp þessa þætti og mikil spenna fólgin í því að sjá grínið ganga upp í hverju atriði. „Ég var kannski fullstressaður á köflum en það er * margt sem þarf að ganga upp til að brand- ¥ arinn virki. Oll atriðin gengu vel og það má eiginlega segja að þetta hafi heppnast full- komlega," sagði Auðunn sem lauk tökum á þáttunum nú í vikunni. Aðspurður um viðbrögð fórnarlambanna sagði Auðunn að enginn hefði orðið reiður. „Mannskapurinn tók þessu vel enda var ekki verið að særa blygðunarkennd neins. Fólk hefur yfirleitt húmor fyrir sjálfu sér og það var reyndin í þessum tilfellum," sagði hann. Brot úr þættinum þar sem Bubbi Morthens er tekinn hafa gengið á vefnum að undan- förnu og þar sést Bubbi reiðast allsvakalega við ungan mann. Auðunn sagðist ekki vita hvort Bubbi hefði verið mjög pirraður á með- an á gríninu stóð en verið rólegur eftir á, jafn- vel þótt hann hafi tekið Auðun þéttingsföstu hálstaki eftir hrekkinn. Auðunn sagði engan þáttanna standa sér- staklega upp úr en bætti þó við að Bubbi hefði verið frábær og íþróttafréttamaðurinn Hörð- ur Magnússon hefði verið yndislegur. Fyrsti þátturinn, sem sýndur verður 9. október, verð- ur með leikkonunni Höllu Vilhjálmsdóttur en síðan kemur Hörður Magnússon. Aðrir sem urðu fyrir barðinu á Auðuni eru meðal ann- ars Kastljóssdrottningin Eva María Jónsdóttir, Baddi, söngvari Jeff Who?, knattspyrnukapp- inn Tryggvi Guðmundsson, Páll Magnússon útvarpsstjóri, Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri á NFS, leikarinn Atli Albertsson og alþingismaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson auk Bubba Morthens. „Þetta verða tíu til tólf þættir og aðeins einn hrekkur í hverjum þætti. Við gerum meira úr hrekknum og fórnarlambinu heldur en gert var í Punk’d. Þetta er svakalega dýrt dæmi og til að mynda koma um tíu tækni- Tekið eins og það kom af skepnunni Gamla myndin „Þetta er mér mjög eftirminni- legt, ekki hvað síst að mér fæddist sonur er ég var á leið í bæinn aftur," segir Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri ^ um Gömlu myndina að þessu sinni sem tekin er á frumsýn- ingu myndarinn- ar Kúrekar norð- ursins í nóvember árið 1984. Með Friðrik á myndinni má sjá helstu „cow- boys" Islands á þessum tíma, þá Hallbjörn Hjart- arson og Johnny King. Myndin var gerð á kúrekahátíð sem haldin var þetta sumar á Skagaströnd. Friðrik segir að undanfari Kú- rekar norðursins hafi verið nær enginn. „Ég sá dagskrána að þess- ari útihátíð á Skagaströnd og hugs- aði með mér að þetta væri eiginlega tilbúið handrit að heimildar- mynd," segir Friðrik. „Ég svo samband við Einar Kárason sem hvatti mig til að fara norður og gera þetta. Daginn eftir vorum við fjórir fé- lagar búnir að leigja okkur Lödu og lagð- ir af stað norður." Friðrik segir að myndin hafi verið tekin eins og hún kom af skepn- unni. „Við náðum að veiða þetta andrúmsloft sem þarna var á hátíð- inni, allar uppákomurnar og ekki hvað síst messan þar sem Hallbjörn var meðhjálpari." Kúrekar norðursins er heimild um merkan kafla í íslenskri menn- ingu þar sem kántrí-aðdáendur söfnuðust saman yfir verslunar- mannahelgi og héldu íslenska kú- rekahátíð þar sem riðið var á hest- um inn á barinn og kálfar snaraðir með reiðhjóladekkjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.