Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006
Fréttir DV
Nick Carter Kemur
ekki á óvartað Parls
Hilton vargripin með
marijúana i Mllanó.
Blindurfær
ökusekt
Blindur og
heyrnarlaus
maður hefur
fengið 8.000
kr. sekt fyrir hraðakst-
ur í Bretlandi. Lögreglan held-
ur því fram að myndavél hafi náð
Martyn Sfyles akandi á of miklum
hraða í Hull. Martyn furðar sig á
þessari staðhæfingu lögreglunn-
ar enda hefur hann aldrei ekið
bíl. „Látum þá sýna mér mynd
af mér í bílnum með hvíta staf-
inn og leiðsöguhundinn minn,"
segir Martyn sem hefur alls ekki í
hyggju að borga þessa sekt. Dag-
inn sem myndin var tekin var
hann og kona hans 400 km. frá
Hull á veitingastað. Grunur leikur
á að númeraplötur á fjölskyldu-
bíl þeirra hafi verið endurgerðar á
annan bíl.
Hákarlaveiðará
sjöttu hæð
Robbie
Hughes
býrásjöttu
hæð íVar-
sity Towers á
Gold Coast
í Ástralíu.
Áhugamál hans eru hákarlaveiðar
og þær stundar hann af svölunum
hjá sér. Sjórinn í kringum Gold
Coast er fullur af hákörlum og það
eina sem Hughes þarf að gera er
að kasta færinu fram af svölunum
og spila svo á Play-Station í stof-
unni hjá sér meðan hann bíður
eftir að eitthvað bíti á. Nýlega dró
hann hálfs annars metra lang-
an hákarl á land. Á síðasta veiði-
tímabili veiddi Hughes 12 hákarla
af svölunum sínum en einir 80
sluppu frá honum enda erfitt að
draga þessi flykki langa leið.
Bannað að
syngja í sturtu
Áströlum hefur ffjf’’..
verið sagt að þeir
verði að hætta að
syngja í sturtu til
að spara rafmagn
og hita. Orku-
málayfirvöld í
landinu halda því
fram að söngur-
inn í baðherberg-
inu bæti rúmlega 9 mínútum við
sturtutímann. Söngur, dagdraum-
ar, rakstur og aðrir „ónauðsynleg-
ir" hlutir í baðherberginu auki við
rafmagnsreikning heimilisins og
stuðli að auknum gróðurhúsaáhrif-
um. „Þú notar álíka mikið rafmagn
fyrir mínútu í sturtunni og nægir
til að keyra sjónvarpið í fjóra tíma,"
segir Paul Myors, sparnaðarsér-
fræðingur orkufyrirtækisins Energy
Australia, sem er stærst á markað-
inumíÁstralíu.
Tóku kanínu í
stað tígurs
Áhuga-
menn
um rétt-
indi dýra
brutust ný
lega inn á svæði sirkuss til
að frelsa sjaldgæfanhvítan
tígur sem þar var í haldi. Eft-
ir að hafa séð tígurinn f nálægð
skiptu þeir um skoðun og frelsuðu
kanínu í staðinn. Um var að ræða
fólk frá Animal Liberation Front
í Sviss en það hafði áður tjáð Oli-
ver Skreinig, forstjóra Circus Roy-
al, að þetta stæði til. Eftir þessa
hetjudáð birti fólkið mynd af sér
á netínu með andlitin hulin en
haldandi á kanínunni. Skreinig er
hlessa á þessu og segir að kanína
hafi ekki tilheyrt sirkusnum, hún
var gæludýr 6 ára dóttur hans.
París Hilton var algjört flopp í rúminu og yfirleitt svo útúrdópuð að hún gat ekkert.
Þetta kemur fram í viðtali breska vikuritsins News of the World við Nick Carter úr
Backstreet Boys, fyrrverandi kærasta blondínunnar. Hann segir að París Hilton sé svo
háð kannabis að hún taki það með sér hvert sem hún fer.
Felur kannabis alltaf í leik-
fangabanqsanum sínum
Nick Carter segir að hann hafi ekki tölu á þeim skiptum þar sem
hann þurfti að hirða París, útúrdópaða og sauðdrukkna, upp af
gólfinu og koma henni í rúmið. „Ég held að hún hafi notað dóp
og áfengi til að öðlast sjálfstraust í rúminu," segir Nick.
„En París varð dauða-
drukkin og kynlífið eft-
irþví. Við vorum bæði
ofdrukkin tilað njóta
þess. Þetta fór fram í
Jack Daniels-gufum."
Nick Carter, úr Backstreet Boys,
fyrrverandi kærasti dekurdúllunn-
ar Parísar Hilton segir að hún sé svo
háð kannabisefnum að hún taki þau
með sér hvert á land sem hún fer.
Það kom Nick því ekki á óvart þeg-
ar fregnir bárust af því að París hefði
verið ljósmynduð með poka af mar-
íjúana á tískusýningu í Mílanó fyrr í
mánuðinum. „Hún faldi kannabisið
í leikfangabangsanum sínum," seg-
ir Nick. „Ef hún þurfti að fara utan,
stakk hún gat á bangsann og tróð
dópinu þar inn."
Mjög ágeng í fyrstu
„Hún er drykkfelld snobbpía sem
að mínu matí er ekkert hrifin af kyn-
lífi," segir Nick í samtali við breska
vikublaðið News of the World. Hann
viðurkennir þó að þannig hafi þetta
alls ekki verið í upphafi sambands
þeirra. „Hún kom því greinilega til
skila að hún vildi sofa hjá mér,"
segir Nick. „Og hún
gat ekki hald-
ið höndunum
frá mér." Nick
segir enn-
fremur að
hann hafi
vitað að
París var
vön að fá
það
sem hún vildi. Því hefði hann ver-
ið ákveðinn í að láta hana bíða. Og
það virtist kynda mjög undir ástríð-
ur hennar. „Raunar hélt ég út í þrjár
vikur þar til ég hleypti henni í bólið
með mér."
Fyrstu samfarir í Jack Daniels-
gufum
Nick segir að þegar stóra stundin
hafi loksins runnið upp hafi
það verið hrein hörm-
ung. „Við flugum til Ba-
hama-eyja og ég vildi
að allt yrði fullkomið,"
segir Nick. „En Par-
ís varð dauðadrukkin
og kynlífið eftir því. Við
vorum bæði of drukk-
in til að njóta þess.
Þetta fór fram í
fack Dani-
els-guf-
um." Hins
vegar
voru
þau
svo
upp-
tek-
in af
hvort
öðru að
Nick lét
tattóv-
era nafn
Parísar á
höndina
á sér og
París lét
tattóvera
nafn hans
á aðra rass-
kinnina.
Auðæfin urðu
of mikið
Að lokum
Parfs Hilton Smygiar kannabis I leikfangabangsanum sinum hvertsem hún fer.
voru hin miklu auðæfi Parísar það
sem komst á milli þeirra. „Ég held
að raunverulega hafi hún elskað mig
þar sem hún hélt að hún gætí stjórn-
að mér með öllum sínum pening-
um," segir Nick. „Ég hef aldrei kynnst
annarri eins eyðslukló. Einn daginn
kom hún heim með tvo merði frá
Kaliforníu. Ég held að á þeim tíma-
punkti hafi hún verið orðin uppis-
kroppa með hlutí til að kaupa." Nick
varð einnig þreyttur á hégómagirni
Parísar. „Það eina sem gerði hana
hamingjusama var að sjá sjálfa sig í
spegli."
Framhjáhald og dópneysla
Það var að lokum framhjáhald
og dópneysla sem olli því að Nick
gafst upp á París Hilton. Hann seg-
ir að þau hafi verið dauðadrukkin
flest kvöld og París veltandi um á
gólfum næturklúbba í næstum eng-
um klæðum og út úr heiminum. Eft-
ir sjö mánaða samband fór Nick að
heyra að París væri að halda fram-
hjá honum. Til að hefna sín á henni
gerði hann það sama. Og þegar Par-
ís frétti af því var sambandi þeirra
lokið.
Klámstjarnan Mary Carey hættir óvænt viö framboð i Kaliforníu-fylki
mömmu í stað þess að berjast
gegn Arnold í ríkisstjóraslagnum
Klámstjarnan Mary Carey til-
kynnti óvænt í vikunni að hún væri
hætt við framboð sitt til ríkisstjóra
í Kaliforníu. öldruð móðir hennar
er komin á sjúkrahús í Flórída og
vill Mary frekar vera henni til hjálp-
ar og aðstoðar en berjast við Arn-
old Schwarzenegger um embættið.
Sú gamla þarf í aðgerð eftir að hún
hoppaði af fjórðu hæð byggingar í
Flórída í síðasta mánuði.
Mary Carey varð heimsfræg
árið 2003 er hún bauð sig fram
gegn Arnold í fyrsta sinn. Á stefnu-
skránni voru meðal annars frjálsar
ástir og meira klám. Og hún komst
í fréttirnar nýlega er hún krafðist
þess af Jay Leno að hún fengi sama
tíma í sjónvarpsþætti hans og Arn-
old fékk. En nú er hún dottin út.
„Þó að mig langi til að gera Kali-
forníu að betri stað er það mik-
ilvægara fyrir mig að vera með
mömmu minni og hjálpa henni,"
segir Mary Carey í skriflegri yfir-
lýsingu en móðir hennar mun vera
þroskaheft. „Ég er aðeins 26 ára og
hef verið í stjórnmálum í nokkur ár.
En núna verð ég að vera í Flórída
með mömmu og ég vil biðja alla að
biðja fyrir henni."
Mary hefur leikið aðalhlutverk
í myndum á borð við Boobsville
Sorority Girls. Nafn sitt tók hún á
sínum tíma því hún þykir sláandi
lík söngkonunni Mariah Carey.
Mary Carey Er hætt við framboð til
rikisstjóra Kalifornlu til að geta verið hjá
mömmu sinni i Flórida.