Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Blaðsíða 39
PV Helgin FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 59 Ábyrgðarfull og sjálfstæð systkini „Þetta passar vel við mig svona í grunninn. Ég er ákveðin og metnað- arfull og hef alltaf verið afar ábyrgð- arfull," segir Dóra Takefusa um kenn- ingar Lemans um elstu systkini. „Ég fæddist með ábyrgðarkennd og taldi mig bera ábyrgð á öllum bekkjar- systkinum mínum strax í leikskóla. Það er mitt eðli frekar en að það hafi eitthvað með stöðu mína innan fjöl- skyldunnar að gera." Dóra segist þurfa að hafa allt á hreinu en hún leiti þó stöðugt eft- ir nýjum ævintýrum og fagni ávallt þegar lífið komi henni á óvart. „Kannski til að ná stjórn á því líka, ég veit það ekki, ég verð fá ögrun," segir hún hlæjandi og bætir við að kenn- ingarnar um miðjubarnið passi eng- an veginn við Björgólf bróður sinn. „Það skýrist kannski af því að þótt ég sé elst þá ólumst við ekki upp sam- an. Bjöggi er í rauninni eins og elsta barn sjálfur og ber frekar þau ein- kenni, svo við erum lík að mörgu leyti. Hann er ótrúlega ábyrgðarfull- ur, traustur og ávallt samkvæmur sjálfum sér. Hann er metnaðarfullur og vill hafa alla hluti á tæru og þarf að grandskoða allt ofan í kjölinn. Málið er að hann er ofsa- lega klár og þolir illa að gera mis- tök," segir Dóra og bætir við að Björgólfur, yngri bróð- hennar, geti stund- um gert hana vitíausa með full- komnunaráráttu sinni og hvað hann geti verið lengi að taka ákvarðanir. „Honum finnst ég líka stundum klikkuð hvernig ég get tekið sénsa því hann gerir yfirleitt ekkert nema hann sé 100% viss og hafi fullkomna stjórn á hlutunum. Ég er aftur á móti frekar fyrir að kasta mér út í eitthvert brjál- æði og ná svo stjórn á því. Við erum bæði mikið keppnisfólk og þar sem við erum bæði alin upp sem elstu börn er best þegar við erum sam- an í liði því við viðurkennum aldrei tap. Við erum ótrúlega náin systkini og lyndir vel enda þekkjum við hvort annað vel og berum mikla virðingu hvort fyrir öðru." „Þetta passar mjög vel við Dóru. Hún er afar ábyrgðarfull og flutti að heiman ung til að standa á eigin fót- um," segir Björgólfur Takefusa um kenningar Lemans um elstu systkin- in. „Dóra er mjög sjálfstæð og ábyrgð- arfull enda er hún með tvö böm og búin að búa þeim gott bú og hlúir Björgóifi lýst illa á lýsingarnar á miðjubarninu og segir fæst eiga við sig. „Þetta eigin leiðir. Sama hvort það skapar henni vinsældir eða hrós." Varðandi kenningar Lemans um yngsta barnið segir Pétur margt passa við sig. „Ég er einstaklega vin- gjarnlegur og hlýlegri mann er erf- itt að finna," segir hann hlæjandi og bætir við að hann kannist ekki við að vera trúður eða að leitast eftir sviðsljósinu. „Ég kann best við mig í faðmi fjölskyldunnar og að leik með sonum mínum þremur. Mér leiðist heldur ekki á góðri stundu innan um góða vini en er alls ekkert að trana mér fram. Ég er félagslyndur en hvorki frakk- ur né óábyrgur og sem bam myndi ég fr ekar segja að ég hafi verið alvörugef- inn," segir hann og bætir við að hann sé náttúrulega skaddaður eftir að hafa verið yngstur í stelpnahópi. „En fyrir vikið er ég mun notalegri í öllu við- mótí og ég hef gaman af því að segja frá. Svo myndi konan mín örugglega taka undir að ég gangi illa um en ég er því algjörlega ósammála." Stór fjölskyida fr/s með systrum slnum fjórum en systkinin eru I heildina sex talsins. Taiið frá vinstri: Erla, íris, Sigga og Unnur. neikvætt og ég er ekki tilbúinn að sam- þykkja neitt af þessu, nema kannski að ég eigi erfitt með að viðurkenna mistök og eigi góða vini en ég held að fjölskyldan hafi alls ekki fengið minni athygli af minni hálfu enda á ég ynd- islega fjölskyldu. Við Dóra emm jafh lík og við erum ólík og það er erfitt að alhæfa um þetta. Ég veit samt að hún getur ekki unnið mig í neinu." Líkari í seinni tíð „Mér finnast kenningar hans um elsta barnið passa fáránlega vel við mig. Það er bara eins og það sé verið að lýsa mér," segir Erla María Árna- dóttir sem þó kemur önnur í röð- inni af sex systkinum. „Kannski þar sem ég er elsta stelpan var ábyrgð- inni varpað yfir á mig. Ég er með full- komnunaráráttu og er mjög ábyrgð- arfull og hef alltaf verið. Er örugglega gömul sál sem er með allar heims- ins áhyggjur á herðunum," segir Erla María og bætir við að hún sé einnig samviskusöm og skipulögð. „Ég er alltaf með dagbókina á lofti og minn- ismiða út um allt, það vantar ekki." Varðandi kenningarnar um miðjubarnið segir Erla María margt passa við írisi Björk systur sína. „Það passar margt við írisi en enn meira við Unni sem kemur á eftir henni. íris er andstæðan við mig og því hefur lítil keppni eða samanburður verið á milli okkar því við erum svo ólíkar. íris á mikið af vinum sem hún eyð- ir tíma með en hún eyðir ekki minni tíma með fjölskyldunni. Hún er mjög mikið fyrir að hitta bæði vini sína og fjölskyldu og halda tengslunum." „Þetta er nú bara Erla María og eiginlega Gummi bróðir líka en hann er elstur," segir fris Björk Ámadóttir fyrrverandi fegurðardrottning um lýs- ingu Lemans á elsta systídninu. „Erla María er alltaf með allt á hreinu og það má ekkert út af bregða, þá fer hún yfir um af stressi. Það verður allt að vera típp topp og hún gerði þetta allt eftir bókinni, kláraði skólann, gifti sig og eignaðist börn," segir íris Björk og bætir við að Erla hafi stjómað í æsku. „Það er bara eitt ár á milli okkar og ég trítíaði á eftir henni hvert sem hún fór. Ég var mun meira í að passa yngri systkini okkar. Ég elskaði að fá að passa og dúllast með þau og var svona mamma þeirra númer tvö." Þegar íris er spurð hvernig lýsingin á miðbarninu passi henni segir hún margt passa. „Það eru til dæmis ekki til neinar myndir af mér í fjölskyldu- albúminu," segir hún og bætir við í gríni að það muni hún aldrei fyrir- gefa. „Ég veit samt ekki með þetta að taka vinina fram yfir fjölskylduna. Ég hef frekar átt fáa en góða vini en það er Unnur systir sem leitar kannski frekar til vina sinna." Aðspurð hvort þær systur séu lík- ar eða ólíkar segir íris að þær séu alltaf að verða líkari. „Núna þegar við erum báðar komnar með fjölskyldur sé ég hvað við erum í rauninni líkar. Ég hef alltaf verið meira fiðrildi, hef viljað prófa margt og ferðast en í dag erum við báðar gamlar sálir sem vilj- um helst vera heima, baka og halda matarboð fyrir fjölskylduna." indiana@dv.is bila -5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.