Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Qupperneq 17
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 1 7 Ungir Bretar mest í kynlífi Bresk- ir unglingar stunda mest kynlíf með- al jafnaldra sinna í Evr- ópu. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á veg- um Institue for Public Policy Re- search. 38% 15 ára unglinga í Bret- landi sögðust hafa stundað kynlíf á liðnu ári en næstir koma unglingar í Svíþjóð, Finnlandi og Þýskalandi með 28% hlutfail. Minnsta kynlífið var hjá Pólverjum og Spánverjum eða 15%. Bretar upplifa neikvæð- ar hliðar þessa kynlífs, því hvergi í Evrópu er jafnhátt hlutfali mæðra á unglingsaldri. ísland var ekki með í þessari rannsókn. Vill hórurhanda hernum Ein af fremstu þingkonum Hol- lands wili að hollenskar hór- ur verðir sendar utan til að hjálpa hollenskum her- mönnum við að slaka á þar sem þeir eru staðsett- ir. Annemarie Jorritsma, meðlimur hægriflokksins WD og borgarstjóri í Almere, kom fram í hollenska ríkissjónvarpinu með þessa kröfu sína. Og verkalýðsfélag vænd- iskvenna í Hollandi styður þéssa kröfu Annemarie. Hins vegar eru yfirmenn hersins ekki jafnhrifnir af hugmyndinni. „Ég held að konan mín verði ekki hrifin af þessu," seg- ir ónefndur hollenskur herforingi í samtali við eitt dagblaðanna þar- lendis. Um 2.000 hollenskir her- menn eru nú erlendis, að mestu í Bosm'u og Afganistan. Brutust inn í tóman banka Gengi af rúmenskum banka- ræningjum greip í tómt þegar það braust inn í Nova Bank í miðborg Constanta. Þeir bjuggust við góð- um feng en áttuðu sig ekki á því að bankinn var að flytja í nýtt húsnæði svo allar hirslur hans voru tómar. Að sögn lögreglunnar reyndu þjófamir að stela hverju sem var þegar ljóst var að engir peningar voru til staðar. Reyndu þeir meðal annars að rífa hitalagnir af veggjum bankans en ánárang- ms.Vitnisátil þjófanna á hlaup- um frá bankan- um, tómhentra, en lögreglan var of sein á staðinn til að grípa þá. Vodkasafn í Rússlandi Rússar hafa opnaðvodka- safnmeðyfir 50.000 flöskum afþjóðardrykk sínum til sýnis. Á safninu, sem er í Moskvu, eru sýnd ýmis afbrigði af áfenginu, þar á meðal flöskur sem eru yfir 200 ára gamlar. Þar eru einnig safngripir eins og sérút- gáfan sem gerð var til að minnast þeirra sjóliða sem fórust með kaf- bátnum K-19. Aiexander Nikishin, forstjóri safnsins, býður öllum gestum að smakka tíu mismun- andi afbrigði af vodka og fullvissar alla um að ekkert af þeim sé ólög- lega bruggað. Á hverju áru deyja hundruð Rússa af því að drekka ólöglegan vodka/landa sem seld- ur er á svartamarkaðinum. Sacha Baron Cohen, eða Ali G, eða Borat frá Kasakstan, fór um víðan völl í Bandaríkj- unum við upptökur á mynd hans sem brátt verður tekin til sýninga. Ýmislegt er farið að spyrjast út um atriði í myndinni og í nýlegri umfjöllun BBC kemur fram að Borat hafi skilið eftir sig slóð af stórmóðguðu þekktu fólki vestan hafs. En þegar Borat fór að segja þeim að konan hans ynni öll verkin á bóndabæ þeirra, „...já, hún dregur pióginn.." og að konur gengju þremur skrefum á eft- ir mönnum sínum, „...það voru tíu skref áður, land mitt er að þróast írétta átt...". KnnEWiUiU diifeiidii Talskonur Veteran Feminists of America töldu Borat vera að gera heimildarmynd um konur í þriðja heiminum. Þó runnu á þær tvær grímur þegar Borat spurði þær hvemig hann kæmist í sam- band við Pamelu Anderson - og bað þær um að lyfta upp pilsum sínum. Og spurði þær óvænt hvort þær þekktu Baywatch. Flestir búast við því að nýjasta mynd spaugfuglsins Sachas Bar- ons Cohen, eða Ali G, um ævintýri blaðamannsins Borats frá Kasak- stan í Bandaríkjunum, verði met- sölumynd. Ýmislegt hefur spurst út um myndina og efni hennar. í ný- legri umfjöllun BBC kemur fram að Borat hafi skilið eftir sig slóð af stór- móðguðu þekktu fólki vestan hcifs. Femínistar sármóðgaðir Þegar frekar sjúskaður erlendur blaðamaður með yfirvaraskegg og í krumpuðum jakkafötum, sem talaði lélega ensku, kom í stúdíó listakon- unnar Lindu Stein í New York taldi Linda að hún væri að hjálpa til við að stuðla að auknum réttindum kvenna. Linda og tvær aðrar talskonur sam- takanna Veteran Feminists of Amer- ica samþykktu viðtal við blaðamann- inn Borat þar sem þær töldu að með því væru þær að taka þátt í heimildar- mynd til hjálpar konum í vanþróuðu ríkjunum. En þegar Borat fór að segja þeim að konan hans ynni öll verkin á bóndabæ þeirra, „...já, hún dregur plóginn...'1, og að konur gengju þrem- ur skrefum á eftir mönnum sínum, „...það voru tíu skref áður, land mitt er að þróast í rétta átt..." og spurði svo hvemig hann gæti kynnst Pamelu Anderson, fóru að renna á þær tvær grímur. Þegar hið saima er komið í ljós eru þær sármóðgaðar. Töldu hann bara ómenntaðan „Ég hélt að við værum að tala við ómenntaðan mann, kannski frá ein- hverjum ættflokki," segir Linda Stein í samtali við BBC. „Við töldum í sann- leika sagt að við værum að hjálpa konum um allan heim." Linda og vin- konur hennar eru ekki þær einu sem Borat gabbaði upp úr skónum. „En þegar viðtalið var hafið spurði hann allt í einu mjög óvænt: „Þekkið þið Baywatch?" Það var hins vegar ekki fyrr en Borat sagði að konur væru með minni heila en karlmenn að Linda Stein reyndi að henda honum út. „Framleiðendur" Borats tókst hins vegar að róa hana niður, sögðu að Borat vissi ekki bet- ur. En Borat gekk svo endanlega fram af femínistunum þegar hann bað um að fá að kíkja undir piis þeirra. „Borat skuldar mér fyrir þetta, hann ætti að kaupa eina styttu af mér," segir Linda en henni hefur verið boðið á frumsýn- ingu myndarinnar 2. nóvember. Ali G eða Borat Skildi eftirsig slóð afsármóöguðum þekktum persónum IBandarikjunum. Ræðuþjálfari tekinn á beinið Af öðrum sem lentu í Borat og BBC hafði samband við má nefna ræðuþjálfarann Pat Haggerty í Wash- ington. Sá taldi sig vera að reyna að kenna Borat húmor en sá síðar- nefndi sagði brandara um kynlíf með tengdamóður sinni og að hann hefði vangefinn bróður sinn læstan inni í búri. „Þegar kennslusmndin var hálfii- uð gekk ég að einum framleiðend- anna og sagði honum að þessi gaur gæti ekki verið raunverulegur," segir Haggerty. „En þeir höfðu borgað mér fyrir þetta svo ég reyndi að vera eins fagmannlegur og ég gat." Haggerty er orðinn þekkmr fyrir þessar upptökur með Borat og vonast til að það hjáipi sér með ferilinn. Wesley Snipes fundinn í Namibíu við upptökur á nýrri kvikmynd Snipes er á flótta undan skattayfirvöldum Leikarinn Wesley Snipes er kominn fram í dagsljósið en hann vinnur nú við upptökur á nýrri hryllingsmynd í Namibíu. Snipes er á flótta undan skattayfirvöldum í Bandaríkjunum sem hafa ákært hann fyrir skattsvik að jafnvirði um 850 milljóna kr. í síðustu viku greindum við frá því að skatturinn vestan hafs vissi ekki hvar Snipes væri niðurkominn og því ekki búið að birta honum ákæruna. Nú í vikunni fór skatturinn fram á að Snipes yrði framseldur en yfirvöld í Namibíu höfnuðu þeirri beiðni. Það var breska blaðið Daily Mir- ror sem fyrst birti fréttina um hvar Snipes heldur sig þessa dagana. Myndin sem leikarinn vinnur að núna ber nafnið Gallowwalker og staðfesti framleiðandinn, Joanne Reay, það í samtali við blaðið að Snipes væri við upptökur í bænum Swakob. „Þetta mál hefur engin áhrif á okkur eða framleiðslu mynd- arinnar," segir Joanne. „Snipes hafði þegar í september á síðasta ári ákveðið að leika í myndinni og einbeitir sér nú að því verki." Þrátt fyrir erfiðleika með skatt- inn lifir Snipes eins og kóngur í ríki sínu í Namibíu og hefur tekið tvö strandhús á leigu undir sig sem kosta um tvær milljónir kr. Hann mun einnig hafa sést í hópi stað- arbúa þegar þeir fögnuðu komu Brads Pitt og Angelinu Jolie til landsins í maí síðastliðnum. Talsmaður bandaríska sendi- ráðsins í Namibíu neitaði að tjá sig um málið við Mirror að öðru leyti en því að enn væri unnið að því að koma Snipes til Bandaríkjanna. Wesley Snipes Lifireins og kóngur í riki sínu I Namibiu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.