Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2006, Síða 38
58 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 Helgin PV Samkvæmt kenningum sálfræðingsins Kevins Leman mótumst við sem einstaklingar eftir því hvar við erum í systkinaröðinni. DV leitaði til nokkurra þekktra einstaklinga og athugaði hvort kenningar Lemans ættu við rök að styðjast í íslenskum systkinahópum. Flestir eru sammála um að margt sé til í þessum kenningum sál- fræðingsins en sjaldnast sé hægt að alhæfa. Systkinaröðin mótarokkur m Samkvæmt Leman er elsta syst- kinið haldið fullkomnunaráráttu og hefur mikla ábyrgðarkennd. Lem- an segir elsta systkinið hafa feng- ið mikla athygli foreldra sinna sem þótti allt merkilegt sem barnið gerði. Elsta bamið sé raunsætt, hati óvæntar uppákomur, sé samvisku- samt og skipulagt. Leman segir miðl- ungana verða fyrir áhrifum ofan frá. Barnið í miðjunni verði í raun and- stæða elsta barnsins. Miðlungurinn sé oft utanveltu í fjölskyldunni og eyði því meiri tíma með vinum sín- um. Samkvæmt kenningum Lemans hefur yngsta barnið hlýlegt og vin- gjarnlegt viðmót og er oftast trúð- urinn í fjölskyldunni. Leman telur yngstu börnin félagslynd, hvatvís og frökk og segir þau oft ábyrgðarlaus og jafnvel athyglisjúk. Trúðurinn og sá ábyrgðarfulli „Þetta passar allt við mig alla- vega. Nema hvað mér finnst ég ekki oft vera úti á þekju," segir Gunnar Helgason leikari en Gunnar er yngst- ur í stórum systkinahópi. Hann er aðeins yngri en Ásmundur tvíbura- bróðir hans og þeir eiga tvö eldri systkini, Nínu og Hallgrím sem er elsmr. „Ég var allavega alltaf trúður- inn," segir Gunnar en bætir aðspurð- ur við að aðrir verði að dæma um það hvort Ásmundur hafi verið jafn fyndinn og hann í æsku. „Þetta pass- ar allt við mig, ég er frakkur og geng illa um. Það getur konan mín borið vitni um." Þegar Gunnar er spurður hvort lýsing frumburðarins passi við elsta bróðurinn, Hallgrím Helgason rit- höfund, er hann ekki jafn viss. „Ég hef eiginlega ekki hugmynd um það, kannski þekki ég hann bara ekki nógu vel en lýsingin á miðlungnum, sem er þá Nína systir, á mjög vel við hana. Allavega að því leyti að hún hefur alltaf átt mikið af góðum, skemmtilegum og traustum vinum Gunnar telur að þessar kenningar Lemans geti vel staðist. „Þetta hljóm- ar allavega mjög sennilega en þetta er eins og með margt annað. Ef lýsingin hefði verið á einhvem allt annan hátt hefði ég ef til vill samþykkt það líka. Þetta er eins og með stjörnumerkin, ef það er nógu jákvætt er maður til í að samþykkja þá speki." „Ég held að þetta sé nokkuð lýsandi fyrir mig. í sambandi við vinnuna er ég frekar reglusamur og kannski svolítill karlskröggur varð- andi rútínu," segir Hallgrímur Helga- sonrithöfundur, elstibróðirGimnars. „í systkina- hópnum er ég örugglega sá sem er með mestu fullkomnunaráráttuna en ég veit ekki með ábyrgðarkenndina. Ég er alla- vega ekíd sá sem heldur íjölskyld- unni saman. Gunni er meira í því. Ég er ekki sá fyrsti til að taka upp tólið og hringja og athuga hvernig fólk hefur það. Það er helst það sem passar ekki við mig," segir Hallgrímur. Varðandi kenningu Lemans á yngsta barninu segir Hallgrím- ur varla til betri lýsingu á Gunna. „Sem barn var Gunni alvarlegur ungur maður, ég man ekki eftir að hann hafi verið með fíflalæti fyrr en hann varð fullorðinn. Ég held samt að hann gangi vel um en annars er þetta rétt. Hann er mjög félagslynd- ur og frakkur og stundum einum of. Hann er maðurinn sem.grípur alltaf inn í ef einhver er að halda ræðu." Fengum sama uppeldið „Sumt passar og sumt ekki," seg- ir Gunnhildur Gunnarsdóttir sjón- varpskona en Gunnhildur er rúmu ári eldri en ísgerður systir hennar sem er leikkona. Systurnar hafa allt- af verið góðar vinkonur þótt slest geti upp á vinskapinn eins og van- inn er hjá systkinum. „Þótt ég sé kannski með smá fullkomnunar- áráttu þarf ég alls ekki að hafa allt á hreinu og varðandi ábyrgðarkennd- ina, þá treysti ég systur mihni alveg til að taka réttar ákvarðanir þótt ég yrði fyrst til ef eitthvað kæmi upp á hjá henni. Ég veit að hún er skynsöm og ég er engin mamma hennar, bara vinkona hennar." Gunnhildur bætir við að foreldrar þeirra hafi komið eins fram við þær í æsku. „Ég held að við höfum lítið fundið fýrir því hvor væri yngri og hvor eldri heldur studdu þau okkur báðar í því sem við tókum okkur íyr- ir hendur og gerðu aldrei upp á milli okkar. Ég veit samt að ég er hvatvísari en hún en við erum báðar mjög opn- ar og frakkar. Ég missi samt frekar út úr mér einhverja óheppilega hluti, sem getur verið afar vandræðalegt," segir Gunnhildur hlæjandi. Skaddaður eftir systraskara „Ég þori ekki að sverja þessa lýs- ingu af mér að öllu leyti," segir Kol- brún Halldórsdóttir alþingiskona um lýsingu Lemans á elsta barninu. Kolbrún er elst í fjögurra barna hópi, næst kemur Elín Huld, þá Sigrún og Pétur Már er yngstur. „Ég hef lesið ýmislegt í þessum efnum og finnst margt passa enda er ég ljón með rís- andi ljón og fimm plánetur í ljóni svo ég hef gaman af svona hlut- Samrýnd systkini Lýsingar Lemans á elstu systkinunum passa bæöi við Dóru og Björgólf. um,“ segir Kolbrún sem var einka- bam upp að 6 ára aldri. „Ég held fast í tímaáætlanir, þarf á skipulagningu að halda og er frekar regluföst enda vil ég hafa vaðið iyrir neðan mig. Ég myndi einnig segja að ég hafi mikla ábyrgðarkennd og sé samviskusöm og kannski með smá fullkomnunar- áráttu, ber mig við þá sem eru betri og keppi að marki sem er ósanngjamt að ætla að maður nái," segir Kolbrún. Varðandi lýsingu Lemans á yngsta barninu segir Kolbrún margt passa við Pétur Má. „Pétur er þó ekki ábyrgðarlaus og gengur alls ekki illa um. Svo er það ffekar ég sem elska sviðsljósið heldur en hann en Pét- ur er mjög félagslyndur og þægileg- ur í viðmóti auk þess sem hann hefur örugglega mesta húmorinn af okkur systkinunum. Svo það er margt sem passar en annað alls ekki." „Sumt passar við Kolbrúnu, ann- að ekki," segir Pétur Már Halldórs- son, litli bróðir Kolbrúnar. „Kolbrún er mjög samviskusöm og vinnusöm og það finnst ekki meiri hugsjóna- manneskja. Hún er mjög fýlgin sér, trú eigin sannfæringu og hugsjón- um, það er hennar styrkur," segir Pétur og bætir við að Kolbrún sé afar heilsteyptur einstaklingur. „Hún er langt því frá að vera með fullkomn- unaráráttu þó að flest sem frá henni kemur sé unnið af mikilli nami og alúð og nálgist fullkomnun. Hún þarf ekki á hrósi að halda. Hún er sjálfri sér nóg, fylg- ir sinni eigin sannfær- ingu en nærist ekki /. á hrósinu, er ;: sjálfstæð og fer sínar Kenningar Lemans Elstu systkini: - gjarnan leiðtogar - með fullkomnunaráráttu - með mikla ábyrgðarkennd - þurfa á hrósi að halda - heilsteyptir elnstaklingar - fá mikla athygli foreldra sem finnst allt merkilegt sem þau gera - taka hlutina alvarlega - Ifta raunsæjum augum á tilveruna - illa við óvæntar uppákomur - vilja hafa allt á hreinu .- halda fast f tímaáætlanir - snemma fullorðinsleg - metnaðarfull - samviskusöm og skipulögð - vilja þóknast öðrum eða verða viljasterk og ágeng Miðlungan - veröa fyrir áhrifum að ofan - keppa við eldri systkini - andstæðan við frumburðinn • það eru oft engar myndir til af miðbarninu - utanveltu i fjölskyldunnl - eyða meiri tíma með vinum en fjölskyldunni - vinamargir - góðrl sáttasemjarar -dullr - leita sfður til sálfræðinga - halda tryggð við maka - viðurkenna ekki mistök Yngsta barníð: - hefur þægilegt viðmót, hlýlegt og vingjarnlegt - er stundum úti á þekju - oft trúðurinn f fjölskyldunni - finnst gaman að fá fólk til að hlæja - finnst það standa f skugga eldri systkina sinna - hefur á tilfinningunni að foreldrarn- ir séu orðnir þreyttir á hlutverki sfnu - félagslynt - hvatvisy og frakkt - ábyrgðarlaust og jafnvel barnalegt -gengur illa um -eigingjarnt - elskar sviðsljósið Gunnar, Asmundur og Hallgrfmur Gunnar er aöeins yngri en Asmundur tvlburabróöir hans og er þvl yngstur. Haligrlmur er elstur. Gunnhildurog Isgerður Aöeins rúmtárerámilli systranna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.