Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
Fréttir DV
Ætlarþú að strengja
áramótaheit?
Milljarðamæringurinn Hannes Smárason og eiginkona hans Unnur Sigurðardóttir
ætla að blása til galaveislu á Hótel Búðum um áramótin. Ljóst er að ekkert verður til
sparað og allt fljótandi í mat og drykk. Toppurinn verður flugeldasýning á miðnætti.
„Nei, ég ætla ekki að gera það. Það hefur
aldrei staðist hjá mér."
Birgir Steinn Theódórsson
„Nei, ekkert áramótaheit. Búin að reyna
það og fell alltafá reykingunum."
Selma Jóhannesdóttir, verkstjóri
Dýrt dæmi
Hannes hefur tekið allt hótelið
á leigu og ætlar að bjóða rúmlega
50 manns í veisluna. Ekkert verð-
ur til sparað í mat og drykk. Heim-
ildir DV herma að kostnaður við
hvern gest sé um 80 þúsund krónur
og er þá ekki talinn með kostnaður
við drykkjarföng eftir að borðhaldi
lýkur. Um er að ræða sjö rétta mál-
tíð með fínustu borðvínum og síð-
an verður barinn opinn fram undir
morgun. Ekki er óvarlegt að áætla
að kostnaður Hannesar og frúar
verði 8 til 10 milljónir við húsnæði,
mat og drykk.
Flugeldasýning að hætti
hússins
Heimildir DV herma jafnframt að
Hannes muni bjóða upp á flugelda-
sýningu sem jafnist á við sýning-
amar sem Landsbjörg stendur fyr-
ir um hver áramót. Hannes pantaði
ógrynni flugelda hjá íþróttafélaginu
Fylki og segir sagan að kostnaður við
flugeldasýninguna verði ekki und-
ir 7 milljónum króna. Ekkert verður
Hótel Búðir Vettvangur galaveislu sem Fiannes Smárason og frú halda um áramótin.
til sparað í sprengjum og bombum
hjá athafnamanninum Hannesi sem
ædar sér að lýsa upp Vesturland með
herlegheitunum.
Margt góðra gesta
DV hefur ekki gestalistann und-
ir höndum en gera má ráð fyrir því
að mikill hluti hinna frægu og ríku
á íslandi heiðri Hannes með nær-
veru sinni. Stórvinur hans Þormóður
Jónsson á auglýsingastofunni Fíton
verður í veislunni sem og banka-
maðurinn Ármann Þorvaldsson,
Þorsteinn Jónsson í Kók og athafna-
maðurinn Magnús Ármann en þeir
tveir síðastnefndu sitja í stjórn 365
sem gefur út DV.
„Nei, ég ætla ekki að gera þaö. Það hefur
aldrei staðist hjá mér.'
Marta Pálsdóttir, verslunarstjóri
á margra milljóna króna flugeldasýningu og
lýsa upp Vesturlandið.
„Nei, ég ætla ekki að gera það, þau klikka
alltaf:
Jóna Howard, verslunarkona
Milljarðamæringurinn Hannes
Smárason, sem er forstjóri FL Group
og stærsti eigandi félagsins, hefur
heldur betur verið í fréttunum að
undanförnu. Hann var valinn maður
ársins hjá Markaðinum, viðskipta-
blaði Fréttablaðsins, enda hefur
gengi FL Group verið frábært á þessu
ári sem nú er að líða. Hannes ætlar
að fagna góðu ári með því að bjóða
til galaveislu á Hótel Búðum um ára-
mótin ásamt eiginkonu sinni Unni
Sigurðardóttur.
SPORNING
vikunnar
HundaffGiUerí
Smáhundaræktun
Hundaræktin að Dalsmynni óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
með þökk fyrir viöskiptin á árinu sem er aö líöa megi guð og gæfan íylgja ykkur.
Vió ræktum: Papillon, Chihuahua, Pomeranian, Japanese Chin, Pug, French bulldog, Cavalier King Charles, Spaniel, Miniature Pinscher, Miniature Púðli, Pekingese. Silky Terrier
Dalsmynni +116 Fteykjavík, Sími:566-8417 Fax:5668457 hundagalleri@simnet.is, www.dalsmynni.is áfc;