Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Page 16
I
16 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
Fréttir DV
Höfuðborg landsins stækkar hratt og nýjar byggingar spretta upp eins og gorkúlur í nýjum sem rótgrónum hverfum.
Skipulagsráð borgarinnar er með til samþykktar hærri byggingar en tiðkast hefur að byggja og brátt munu nýir
turnar gnæfa yfir borg og bæ. Hvort leyfa eigi nitján hæða byggingu á Höfðatorgi gegnt Höfða er umdeilt og á fundi
skipulagsráðs í síðustu viku var ákveðið að fresta ákvörðun um það hvort leyfa ætti breytingar á deiliskipulagi þar
sem núverandi meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur styður að breyta sextán hæða byggingu í nitján hæðir. Þétting
byggðar og háhýsi eru það sem borgarbúar eiga von á á komandi árum. Háhýsi Reykjavíkur eru þó engir skýjakljúf-
ar miðað við það sem tíðkast í erlendum stórborgum og líklega er það óumflýjanleg staðreynd að byggðin í miðbæ
Reykjavikur muni hækka i þessari kornungu borg sem vex nú hraðar en nokkru sinni fyrr.
HÆSTU BYGGINGAR
BORGARINNAR
Árskógar 6 og 8 eru áttunda og "
níunda hæsta byggingin Blokkirnar eru
37,8 og 37,5 metrar á hæð og 183,5 metra
hæð yfir sjávarmáli.
Sólheimar 23 er fimmta hæsta
bygging borgarinnar Blokkin er
40,5 metrar á hæð og er i 77,7 metra
hæð yfir sjávarmáli.
wSementsturninn að Sævarhöfða 31
er sjötta hæsta bygging Reykjavíkur
Turninn er 38,8 metrar á hæð og í 43,8
metra hæð yfir sjávarmáii.
Fjöltækniskólinn á Háteigsvegi er
sjöunda hæsta byggingin Turninn er
38,7 metrar og er f 80,5 metra hæð yfír
sjávarmáli.
" Sólheimar 25 er tfunda hæsta '
bygging borgarinnar Blokkin er37,3
metrar og! 76,1 metra hæð yfir
sjávarmáli.
Turninn á Borgarspítalanum I
Fossvogi er næsthæsta bygging
borgarinnar
Turninn er 50,5 metrar en ef tekið ermið
afhæðyfirsjávarmáii nærhann 84
metra hæð.
Turn Kornax að Korngörðum 10
er fjórða hæsta mannvirki
borgarinnar
Turninn er 45,7 metrar á hæð og bara
I þriggja metra hæð yfír sjávarmáli
þannig að hann virðist ekki svo hár.
Kringlan 7 er þriðja hæsta
bygging borgarinnar Byggingin er
49,5 metrar á hæð en stendur í 35
metra hæð yfír sjávarmáli þannig að
toppur hennar er 184,5 metra hæð
yfir sjávarmáli.
> Hallgrímskirkjuturn er hæsta |
bygging Reykjavíkur Efmiðað er viö
hæsta punkt byggingarinnar sem er efst j
á krossinum er turninn 78,8 metrar á
hæðog i 116,8 metrahæðyfir
I sjávarmáii.
19 hæða blokk á Höfðatorgi
Efskipulagsráð samþykkir bygginguna
verðurhún næsthæsta bygging
borgarinnar á eftir Hallgrlmskirkju-
turni.